Hvað finnst mönnum um þetta? Var ekki einhver umræða um það að menn ættu að geta tekið prófið alveg fram undir veiðitímabil? Þarf maður þá að sækja um einhverja undanþágu?
Ekki það að ég stefni á prófið í kvöld Finnst þetta bara áhugavert.
Kæri veiðimaður
Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum þá átt þú eftir að fara í skotpróf vegna hreindýraleyfis sem þú fékkst úthlutað.
Þann 14. júni 2011 var samþykkt breyting á 14.gr laga 64/1994 þar sem gerð var aukin krafa til hreindýraveiðimanna. Enginn má stunda hreindýraveiðar nema að hafa til þess leyfi, vera í fylgd með leiðsögumanni og hafa staðist verklegt skotpróf.
Hafi veiðimaður ekki lokið skotprófi fyrir 1. júlí er veiðileyfi hans endurúthlutað.
Reglugerð 424/2012 fjallar um skotpróf vegna hreindýraveiða og þar kemur fram hvaða kröfur eru gerðar til veiðimanna. Í stuttu máli felst skotprófið í að skjóta fimm skotum á 14 sm skotmark í 100 m fjarlægð á innan við 5 mínútum. Öll skotin fimm þurfa að snerta eða vera innan hringsins. Í prófinu má eingöngu nota þann riffil sem ætlunin er að veiða með og eingöngu má nota skotfæri sem eru leyfileg til hreindýraveiða.
Ítarlegri upplýsingar um framkvæmd skotprófsins og lista yfir þá staði sem bjóða upp á skotpróf er að finna á vef Umhverfisstofnunar og hreindyr.is. Hægt er að fara í próf á 22 stöðum á landinu. Veiðimenn eru hvattir til að æfa sig áður en farið er í skotprófið.
Hugsanlega hefurðu nýlega lokið skotprófi og í því tilfelli biðjumst við velvirðingar á bréfi þessu.
Á þessu ári, 2012, endurgreiðum við staðfestingargjaldið hætti menn við veiðileyfi sitt vegna skotprófsins.
Bestu kveðjur, Best regards
Steinar Rafn Beck
Sérfræðingur, Advisor
Svið náttúruauðlinda, Department for natural resources
Var einmitt að senda inn fyrirspurn vegna tveggja Ungverja sem eru að koma á hreindýr á mínum vegum, þeir geta ekki tekið prófið fyrr en þeir koma til landsins og það var búið að segja mér hjá UST að þetta yrði ekkert mál.
Væri svo sem eftir öllu ef þeir (UST) endurúthluta leyfunum þeirra vegna þessa að þeir hafi ekki tekið prófið fyrir 2. Júlí.......
Gott og vel. En mér finnst það mjög ósanngjarnt þar sem prófið var sett á rétt um eða eftir sjómannadagshelgina ef ég man rétt (leiðréttið ef ég fer með rangt mál). Það gefur/gaf mönnum rétt um mánuð til þess að klára þetta, sem er náttúrulega óásættanlegur fyrirvari ef út í það er farið.
Þessir menn, margir hverjir eru úti í 3-4 vikur og því lítill tími sem gefst til þess að finna viðeigandi aðila sem hefur tíma og slíkt. UST hlýtur að þurfa að vera aðeins liðlegir þar sem þetta próf er í rauninni bara hálf "ólölegt". Það segi ég af því að þessar forsendur voru ekki til staðar þegar menn sóttu um og borguðu staðfestingargjald. Þ.a.l. má líkja þessu við "breytingu á samningi" eftir að hann hefur verið staðfestur/undirritaður.
En þetta hafðist nú allt saman og það má ekki skilja fyrrgreind svör sem svo að ég sé á móti prófinu. Mér finnst það mjög þarft. Sérstaklega í ljósi þess að 30% manna séu að falla á hittni.
42 af 50 mögulegum
Small_IMG506.jpg (97.92 KiB) Viewed 1457 times
Last edited by TotiOla on 22 Jun 2012 14:45, edited 1 time in total.