Ráðleggingar vel þegnar!
- Gunnar Óli
- Posts: 71
- Joined: 16 Jun 2012 06:16
- Fullt nafn: Gunnar Óli Kristjánsson
- Location: Akureyri
Ráðleggingar vel þegnar!
Sælir/ Sælar
nú er svo komið að fara að íhuga kaup á nýjum riffli, en vanþekking hrjáir þá sem ekki spyrja og því spyr ég!
Hvaða riffil ætti ég að kaupa?
"fídusar"
Cal sem koma til greina. 6,5-55, 270 og 308
Tréskepti
Ryðfrítt hlaup
Vinstri handar
Veiðiriffill....
Og ef einhverjum finnst ég vera að gera vitleysu í "fídusum" endilega látið í ykkur heyra, því ég er algjör nýgræðingur..
Kv Gunnar Óli

Gunnar Óli Kristjánsson
murtur525@gmail.com
ef þú átt gamlan cal. 22 þá er ég að safna þeim
(það er betra að spyrja og vera asni í einn dag en að spyrja ekki og vera asni alla ævi)

Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Það hafa komið allmargir rifflar inn á borð til mín, þess erindis að fá í þá hleðslur sem henta þeim. Rifflar af ýmsum gerðum, bæði gamlir og nýir.
Í flestum tilfellum hafa Sako rifflarnir verið þeir rifflar sem fljótlegast og auðveldast hefur verið að fá til að skjóta.
Væri ég að fá mér nýjan verksmiðjuframleiddan riffil, þá veldi ég Sako með timburskepti /laminated, og með þungu hlaupi, í cal 6,5 eða 308.

Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Sammála Gylfa því ef maður mun meiga setja framlengingu á hlaupið sem nefnist hljóðdeyfir í framtíðinni þá er þungt hlaup málið.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
- maggragg
- Skytta
- Posts: 1287
- Joined: 02 Jul 2010 07:59
- Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
- Location: Vík
- Contact:
Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Sammála Gylfa en mættir líka skoða Rössler riffla. Það eru gæðarifflar með gæðahlaupum sem hægt er að skipta um og kosta ekki of mikið. Sammála með þungt hlaup.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Bæði sammála og ekki 
Í veiðiriffli hefurðu lítið að gera við þungt hlaup.
Í veiðiriffli er hinn feikilega nákvæmi 308 frekar leiðinlegur, tæki hina báða frammyfir.
Í Sako ertu að borga soldið mikið fyrir Sako. Tikka er t.d vel frambærileg, Howa og Rem 700 línan.
Ekki 710 eða 770 eða svoleiðis. Og margir aðrir. Sako er fín smíði en kostar soldið.
Remmin hefur þann kost að það er auðvelt að fá í hann skepti gikk ofl. Í Sako þarftu þess ekki.
Tikka í 6,5-55 væri mín 2 cent.
Kostar ca 150-180 meðan Sako er tæplega 300.
Nota aurin í betri stækkunargler.
Ef þú vilt setja meira í þetta þá auðvitað Blaser en það er bara ég

E.Har
Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja

- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Sæll Gunnar Óli.
Þetta er klassísk spurning og svörin jafn mörg og mennirnir
Tegund riffilssins velur þú enfaldlega eftir hvað þú vilt leggja mikinn pening í dæmið
Þumalputtareglan er sú að eftir sem þú kaupir dýrari riffil er hann ,,betri"
Spurningin er hvað þú ætlar að nota riffilinn og hvað mikið.
Ef þú ætlar að nota hann mikið ferðu í dýrari tegund en ef þú ætlar að nota hann lítið færðu þér ódýrari tegund.
Þú minntist á veiðar og ef þú ætlar að nota hann aðallega til veiða er ekki spurning að taka 270 af þem caliberum sem þú nefnir, síðan mundi ég líka skoða 2506 í þeim efnum, bæði 270 og 2506 eru nekkuð í 3006 hylki.
2506 er með grennri kúlu, um 6,24 mm í þvermál á móti 6,92 mm í 270 en 3006 aftur með kúlu 7,62 mm í þvermál.
En ætlir þú að nota hann jöfnum höndum til veiða og markskytteríis er 6,5x55 sennilega berti kostur.
Það sagði einu sinni við mig mjög byssufróður og byssuvanur maður (vanari en ég) að ef ég ætlaði bara að eiga einn riffil skildi ég fá mér 6,5x55.
Ef þú ætlar hins vegar að nota hann eingöngu til markskyttríis skaltu fara eftir leiðbeiningum annarra en mínum, ég hef svo takmarkað vit á markskytteríisfræðunum

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Það sem breitir öllu í upptalninguni hjá þér er að hafa hann vinstri handar því það er EKKERT flutt inn af vinstri handar rifflum hér á landi.
Að finna einhvern vinstri handar riffil er ekki algengt, hvað þá að hann sé eins og þú vilt hann.
Merki sem þú getur gleimt ef þú vilt hafa hann vinstri handar eru td, Sako og Howa því þeir framleiða ekki vinstri handar riffla( jú Sako framleiðir núna eina týpu en gangi þér vel að fá eitt stikki).
Best er fyrir þig að panta þér Jalonen, Sauer, Blaser eða Rössler og láta setja hann saman eins og þú vilt hafa hann, þar ertu kominn með góðann riffil eins og þú vilt hafa hann og kostar í raun ekki mikið meira en aðrir rifflar eftir að þú ert búinn að láta breita honum til að hafa hann eins og þú vilt!
Einnig er góður kostur að kaupa custom lás eins og Stiller Pretador og fá Finna til að smíða toppklassa græju fyrir þig.
Ódýrasti kosturinn er sennilega að panta Rössler og getur fengið hann með öllum þeim eiginleikum sem þú taldir upp.
Auðvita hægt að nota hægri handar riffil en allavega hef ég aldrei verið sáttur við þá og aldrei átt þá lengi.

Ég og veiðimeistarinn hugsum þessa hluti greinilega mjög svipað........ég fékk mér einmitt veiðiriffil í 25-06 rem með milliþungu hlaupi og svo annan með þungu hlaupi í 260 rem (6,5mm-08), en ef þú villt eiga einn til að veiða og gata pappír þá er ekki spurning um að fá sér 260 rem (6,5mm-08) eða 6.5x55 t.d. eins og Gylfi nefnir Sako Varmint Laminated. Hér er mynd að mínum í 260 rem.....algjör draumur þessi riffill. En eins og Einar Har. segir þá þarft þú ekki þunghleyptan riffil sem veiðiriffil.

Last edited by konnari on 21 Jun 2012 11:47, edited 1 time in total.
Kv. Ingvar Kristjánsson
Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Þarf reyndar að leiðrétta hann Sigurð pínulítið þ.e. að þvermál hlaups í 25-06 er 6.35mm ekki 6.24mm ekki að það breyti miklu 

Kv. Ingvar Kristjánsson
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Nú, ég heyrði þetta einhverntíman.
Hvernig reiknar þú þetta út ?
Ég gúgglaði einhverja reiknivél og eftir japl og jaml og fuður fékk ég út að þetta væru 6 mm
Hvernig reiknar þú þetta út ?
Ég gúgglaði einhverja reiknivél og eftir japl og jaml og fuður fékk ég út að þetta væru 6 mm

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Ég fann mjög góðann lista á Chuck Hawk á sínun tíma....en hlaupvídd fyrir 25-06 er .250 tommur eða 6.35mm og þvermál kúlu er .257 eða 6.53
- Attachments
-
[The extension doc has been deactivated and can no longer be displayed.]
Last edited by konnari on 21 Jun 2012 12:50, edited 3 times in total.
Kv. Ingvar Kristjánsson
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Ég er ekki alveg að ná þessu, eitthvað ruglaður í dálkunum
Netfangið mitt er hérna fyrir ofan, í föstu kveðjunni minni
Síðan getur þú líka sett þetta inn hérna sem viðhengi eins og mynd annað hvort í Ward eða pdf

Netfangið mitt er hérna fyrir ofan, í föstu kveðjunni minni

Síðan getur þú líka sett þetta inn hérna sem viðhengi eins og mynd annað hvort í Ward eða pdf

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Takk fyrir það ! Ég búinn að setja inn skjalið.......sendi það einnig á þig á e-maili
það eru líka mjög góðar upplýsingar á wikipedia síðunni:
http://en.wikipedia.org/wiki/.25-06_Remington
það eru líka mjög góðar upplýsingar á wikipedia síðunni:
http://en.wikipedia.org/wiki/.25-06_Remington
Kv. Ingvar Kristjánsson
Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Sæll Gunnar Óli
Ég var í svipuðum hugleiðingum fyrir stutt. Eftir þónokkra umhugsun og ábendingar frá þeim sömu reynsluboltum (og nokkrum til viðbótar) sem segja sína skoðun hér að ofan þá endaði ég á Tikku T3 Varmint 6,5x55 og sé lítið eftir þeim kaupum.
Getur séð þær ráðleggingar sem ég fékk hér.

Mbk.
Þórarinn Ólason
Þórarinn Ólason
Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Sæll Gunnar, það er ekki nógu gott hversu fáir framleiða riffla fyrir örfhenta og hve fáir af þeim rata svo hingað upp á skerið
Held að Veiðihornið hafi verið með Savage í örfhentri útgáfu, en þori ekki að hengja mig upp á það
Rössler er til fyrir örfhenta en hvort þú færð hann riðfríann og í viðarskepti veit ég ekki, aðrir mér vitrari verða að segja til um það. Skiptihlaupa möguleikinn í Rössler er alltaf heillandi
Ég er með .270 og vel sáttur en 6,5x55 er frábært kalíber líka, hár flugstuðull, mikið úrval af kúlum til hér á landi, léttara á öxlina en .270 og virkilega gott alhliða kalíber. (Ég er með .223 í smáverkin
)
Mín niðurstaða er sú að ef þú ætlar að vera með einn alhliða riffil þá tekur þú 6,5x55 og verður ekki svikinn.
Kveðja Keli

Held að Veiðihornið hafi verið með Savage í örfhentri útgáfu, en þori ekki að hengja mig upp á það

Rössler er til fyrir örfhenta en hvort þú færð hann riðfríann og í viðarskepti veit ég ekki, aðrir mér vitrari verða að segja til um það. Skiptihlaupa möguleikinn í Rössler er alltaf heillandi

Ég er með .270 og vel sáttur en 6,5x55 er frábært kalíber líka, hár flugstuðull, mikið úrval af kúlum til hér á landi, léttara á öxlina en .270 og virkilega gott alhliða kalíber. (Ég er með .223 í smáverkin

Mín niðurstaða er sú að ef þú ætlar að vera með einn alhliða riffil þá tekur þú 6,5x55 og verður ekki svikinn.
Kveðja Keli
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Gunnar.
Hefur þú séð þessa auglýsingu?
http://hlad.is/forums/comments.php?foru ... did=197959
Mér sýnist hann auk þess eftir myndinni vinstri handar!
Svo getur þú bara fengið þer annað hlaup á hann
og hent þessu 308 braki af honum

Hefur þú séð þessa auglýsingu?
http://hlad.is/forums/comments.php?foru ... did=197959
Mér sýnist hann auk þess eftir myndinni vinstri handar!
Svo getur þú bara fengið þer annað hlaup á hann

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Gunnar Óli
- Posts: 71
- Joined: 16 Jun 2012 06:16
- Fullt nafn: Gunnar Óli Kristjánsson
- Location: Akureyri
Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Sælir og þakkir fyrir skjót og góð svör!
Sýnist mér á öllu að Rössler verði fyrir valinu.....
Sigurður takk fyrir ábendinguna en sérviska mín virðist ekki eiga sér takmörk...
Plastskepti og camó eru ekki minn tebolli
Og þar sem þetta mun verða minn fyrsti "nýji" riffill ætla ég ekki að slaka á kröfum mínum;)
6,5-55 með viðarskepti fyrir vitlaust-henta skal það vera (er ekki en búinn að ákveða hvort það verði ryðfrítt hlaup eður ei)
Væri fínt ef þið "sérfræðingarnir" gætið upplýst mig um kosti og galla þess að vera með ryðfrítt hlaup?
Kv Gunnar Óli.
Sýnist mér á öllu að Rössler verði fyrir valinu.....
Sigurður takk fyrir ábendinguna en sérviska mín virðist ekki eiga sér takmörk...
Plastskepti og camó eru ekki minn tebolli

Og þar sem þetta mun verða minn fyrsti "nýji" riffill ætla ég ekki að slaka á kröfum mínum;)
6,5-55 með viðarskepti fyrir vitlaust-henta skal það vera (er ekki en búinn að ákveða hvort það verði ryðfrítt hlaup eður ei)
Væri fínt ef þið "sérfræðingarnir" gætið upplýst mig um kosti og galla þess að vera með ryðfrítt hlaup?
Kv Gunnar Óli.
Gunnar Óli Kristjánsson
murtur525@gmail.com
ef þú átt gamlan cal. 22 þá er ég að safna þeim
(það er betra að spyrja og vera asni í einn dag en að spyrja ekki og vera asni alla ævi)
murtur525@gmail.com
ef þú átt gamlan cal. 22 þá er ég að safna þeim

(það er betra að spyrja og vera asni í einn dag en að spyrja ekki og vera asni alla ævi)
-
- Skytta
- Posts: 9
- Joined: 18 Jul 2010 23:47
- Fullt nafn: Ingi Lárus Ágústsson
- Location: Fljótshlíð
Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Sæll vertu.
Tikka og Rössler eru þeir rifflar sem ég mæli með! Færð góða og vel smíðaða hluti fyrir peninginn þinn.
Átti vinstri handar Tikku T3 Hunter í .243 og var það mjög góð græja. Seldi hann svo því mig langaði í stærra cal og er búinn að vera veltast til og frá yfir því hvað átti að koma í staðinn. Svo eftir miklar pælingar fram og aftur, þetta í dag og allt annað á morgun, hitt svo hinn daginn og svo og svo. Ætla að fara í Rösslerinn með alskefti, spangikk og með fiper sigtum þó svo að ég eigi ekkert eftir að nota þau og tek hann í 6.5x284. Held þú verðir ekki svikinn að fara í Rössler!!
Rústfrítt á svo bara að vera í gjafagrindum. En annars svara nú alvöru kallarnir hér þér betur með það

Ingi Lárus Ágústsson.
Fljótshlíð.
indro_kot(hjá)hotmail.com
Fljótshlíð.
indro_kot(hjá)hotmail.com
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Ingi Lárus, vel valið, þú ert minn maður
Gunnar Óli þú hefur ágæta sérvisku og ástæðulaust annað en fara eftir henni
Riðfrítt hlaup og ekki riðfrítt, það fer nú eftir sérvisku hvers og eins og hvernig liturinn matsar við skeftið

Gunnar Óli þú hefur ágæta sérvisku og ástæðulaust annað en fara eftir henni

Riðfrítt hlaup og ekki riðfrítt, það fer nú eftir sérvisku hvers og eins og hvernig liturinn matsar við skeftið

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Dr.Gæsavængur
- Posts: 57
- Joined: 05 Jun 2012 15:08
Re: Ráðleggingar vel þegnar!
Sæll Gunnar Óli.
Þú hefur sennilega séð þráð fyrir stuttu þar sem ég var að velta fyrir mér riffilkaupum. Allavega varð Rössler Titan 6 fyrir valinu með þungu riðfríu hlaupi og viðarskepti (eitthvað sem ég er mjög veikur fyrir). Kaliberið er 6,5x47, sem ég var orðinn mjög spenntur fyrir ásamt 6,5x284. Nú er bara að sjá hvernig gengur en ég er bara rétt svo búinn að prufa og lofar riffillinn mjög góðu.
Ég heillaðist fljótt mjög mikið af Rösslernum, sérstaklega vegna allra þeirra fídusa sem hann bíður upp á. Smíðin og hönnunin finnst mér líka mjög góð og falleg í alla staði. Sér í lagi boltinn sem er 6 lögga og læsist í hlaup, hann er úr einu massífu stykki sem auðvelt er að losa af aftasta hlutan til að ná alveg í sundur og þrífa. Öryggið er vel staðsett. Spangikkurinn er skemmtilegur, ég er ekki vanur spani en það frábært að skjóta með gikkinn spenntann, en það þarf ekki. Magasínið losar maður á sérstakan hátt með að klemma saman með tveimur puttum og þá dettur það beint í lófann. Skiptihlaupakostinn kemur maður svo eflaust til með að nýta sér einn daginn, úrvalið er mikið. Svo er margt annað einsog fljótandi hlaup, beddun og hvað riffiliinn er léttur miðað við þungt hlaup.
Hef allavega ennþá ekkert nema mjög gott um þennan nýja grip minn að segja og er ég hæst ánægður. Vantar reyndar ennþá sjónaukafestingar til frambúðar en ég kem til með að skoða það í rólegheitum.
Hinn valmöguleikinn hjá mér var Tikka T3 Varmint SS, en ég er lítið fyrir plastskepti og hafði því hugsað mér að skipta því út fyrir kkc skepti í tíð og tíma. Kaliberaúrvalið var líka takmarkað, en þá hefði ég tekið 6,5x55 og með tímanum þá látið rýma til í 6,5x284. Þetta hefðu þó orðið dýrar breytingar sem kanski ekki var þörf á í Rössler. Þú hefur svo mikla möguleika, getur raðað í nákvæmlega það vopn sem þú vilt, meira að segja fyrir örvhenta!
En já, þetta er mitt innlegg í pælingarnar hjá þér, mæli með Rössler. Annars er margt annað gott í boði. Gangi þér vel með þetta og góða skemmtunn! Fátt skemmtilegra en að eignast nýtt "dót"

Kv. Atli Freyr Runólfsson
atlifreyrrunolfsson@gmail.com
atlifreyrrunolfsson@gmail.com