5 skot á 5 mínútum paranoja

Allt sem viðkemur byssum
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

5 skot á 5 mínútum paranoja

Unread post by konnari »

Varðandi umræðuna um skotprófið þá hefur mér alltaf fundist það grátbroslegt þegar sumir hafa verið að kvarta yfir því að 5 mínútur fyrir 5 skot fari svo illa með hlaupið bla bla og það ofhitni bla bla....með magnum kaliberum o.s. frv. Ég ráðlegg þessum mönnum að horfa á þetta Video með þessari stórskyttu en hann er með 7mm rem mag. n.b. í þessu video sést vel hvað alvöru veiðirifflar þola og eru gerðir fyrir !

http://www.youtube.com/watch?v=FIBEwY4_ ... re=related
Kv. Ingvar Kristjánsson
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: 5 skot á 5 mínútum paranoja

Unread post by maggragg »

Sammála þér með þetta Ingvar. 5 mínútur með 5 skot er svo yfirdrifið nóg. Riffill sem ekki getur skotið 5 skotum á 5 mín er ónothæfur... eða það er mín skoðun.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: 5 skot á 5 mínútum paranoja

Unread post by TotiOla »

Ég var rétt tæpar 4 mín. að skjóta úr 6,5x55, þó það sé auðvitað engin sérstök hitamaskína.

Feikinægur tími að mér fannst. Amk. ef ekkert alvarlegt kemur upp á.
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: 5 skot á 5 mínútum paranoja

Unread post by E.Har »

Af hverju 5 skot eru 3 ekki nóg til að sýna að rifill grúppi?
Þó hólkar þoli þetta er þetta ekkert sérstaklega holt.

Hef svo sem engar áhygjur, þannig séð
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: 5 skot á 5 mínútum paranoja

Unread post by maggragg »

Sumir vilja meina að þrjú skot sé ekki nóg, heldur þurfi að vera 5. Allavega þegar maður sýnir sína flottu þriggja skota grúppurnar sínar ;) En að öllu gríni slepptu þá held ég að það sé áræðanlegra próf ef það eru fimm skot, þá kemur virkilega í ljós hvort menn geti hitt aftur og aftur.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: 5 skot á 5 mínútum paranoja

Unread post by E.Har »

Huga að ég og Siggi séum báðir sammála um að ef einhver er búin að skjóta hreindýr þrisvar og það ekki fallið þá tökum við yfir :-)

Mér finnst að menn ættu að fara eftir umgengnisreglum skotfélaga. Hver er t.d ábirgur ef einhver dettur skemmir bolta sem verið er að rölta með opinn!

En ekki skrifaði ég þessar reglur og ekki sá ég þær frekar en nokkur annar leiðsögumaður.

Finnst þær bara spes!

E
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: 5 skot á 5 mínútum paranoja

Unread post by Veiðimeistarinn »

Þetta skotpróf snýst ekki um hittni, allir sem æfa sig í riffilskotfimi á annað borð og kunna eða láta búa rétt upp í hendurnar á sér (þar á ég aðallega við frágang á kíki og stillingar) eiga að geta hitt 5 skotum vandræðalaust inn í 14 cm. hring.
Þeir sem ekki telja sig geta gert það skammlaust eiga ekki að vera að sækja um hreindyraleyfi yfirleitt. Allir sem æfa sig á annað borð geta hitt 5 skotum inn í þennan hring.
Þessi taugaveiklun í kring um þetta skotpróf ber vott um að fólk er að vantreysta sér til að klára þetta próf og ber öllu við, ef það er ekki eitthvað tæknilegt kring um prófið er nöldrað um verðið, nú eða hvernig það er til komið.
Við leisögumenn verðum til dæmis að borga 8000 já ég segi og skrifa, átta þúsund krónur, fyrir að fá leisögumannaskírtenið endurnýjað, auk þess að borga 4500 krónur fyrir skotpróf sem er skilyrði fyrir endurnyjun, sem mér finnst nokkuð vel í lagt, skotvopnaleyfið er 5000 og veiðikortið 3500 til viðmiðunar. Hvað um það, þetta var bara útúrdúr.
Mér lýst vel á að hafa þetta 5 skot á tíma, þetta setur skyttuna undir ákveðna pressu og mér finnst gott að veiðimenn séu prófaðir í því hvernig þeir skjóta undir pressu. Það hefur borið á því að veiðimenn sem fara með mér á veiðar standast illa pressuna, svo það er gott að taka úr þeim mesta skjáftann i þessu skotprófi.
Öryggisreglurnar eru góðar fyrir sinn hatt en svolítið ,,owerkill" í þessu sambandi, þar á ég helst við þetta að kíkja gegn um hlaupið og að taka boltann úr rifflinum eða ganga með hann opinn að skotmarkinu og setja ekki skot í magasín fyrr en tíminn er byrjaður að telja, þetta er ekki svona í praktikinni.
Það ætti til dæmis hiklaust að leyfa mönnum sem eru með laus magasín að hlaða þau þegar riffillinn er tekinn upp úr töskunni og vera með þau í vasanum og stinga þeim í riffilinn eftir að tíminn er byrjaður að rúlla, rifflana með föstum skotgeymi týnir maður skotin í jafnóðum hvort að er, til dæms úr smeig á afturskeftinu.
Að ganga með lásinn opinn að skotmarkinu er ekki góður siður, bæði að það getur komið skítur í boltann og skothúsið, auk þess sem töluverð hætta er að menn týni boltanum úr rifflinum, ég veit mörg dæmi um slíkt og það er algert klúður.
Praktikin er sú hjá mér að magasín eru hlaðin áður en skriðið er að dýrunum, skotum ýtt niður og bolti settur fram. Þegar komið er í skotstöðu er skoti rennt fram í hlaup, síðan er eftir atvikum skotið, ef ekki útaf að dýrin færi sig til, læt ég taka skotið úr hlaupinu og setja aftur í magasín og lásnum lokað tómum, ÞESSU FYLGIST ÉG MEÐ SJÁLFUR AÐ SÉ GERT.
Síðan þegar búið er að skjóta og dýrið fallið læt ég menn liggja kjurra, bannað að taka patrónu úr (ég geng ákveðið eftir því, þyki stundum half leiðinlegur með mínar vinnureglur) og beðið eftir að dýrin fari úr sjónmáli.
Þegar dýrið er að falla vill oft brenna við að veiðimaður reynir að hlaða riffilinn aftur í skyndi, ég beiti umsvifalaust handafli til að koma í veg fyrir það vegna þess að sé riffillinn hlaðinn aftur getur alltaf gleymst að afhlaða hann, það er alveg á hreinu hjá mér að enginn hleður riffil fyrr en ég leyfi það.
Ef dýrið særist sem gerist sjaldan fer í gang annað ferli sem verður að vinna eftir aðstæðum .
Þegar dýrin eru komin það langt burt að þau styggist ekki þegar staðið er upp, stend ég upp, tek riffilinn af skyttunni tek úr honum patrónuna og tæmi magasínið og rétti honum riffilinn til að halda á honum að dýrinu, þar sem myndataka og innanúrtaka hefst.
Taki veiðimaðurinn patrónuna sjálfur úr rifflinum og tæmi magasín, tek ég riffilinn eigu að síður af honum og tékka hvort hann er ekki örugglega tómur, adrenalínið hjá veiðimanninum er oft hátt á þessari stundu og menn kannski ekki alveg með sjálfum sér, þó það sé misjafnt eins og gengur.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Feldur
Posts: 20
Joined: 28 Jun 2012 09:14

Re: 5 skot á 5 mínútum paranoja

Unread post by Feldur »

Frábært myndband en sannar ekki að hlaupið hafi ekki farið illa á þessu. Ætli hann hafi bara ekki fengið nýtt hlaup þegar þetta var búið, enda myndbandið framleitt af byssuframleiðandanum!
Ingvar Ísfeld Kristinsson
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: 5 skot á 5 mínútum paranoja

Unread post by Gisminn »

Ég var að taka við rifflinum mínum aftur eftir að sá sem fékk hann lánaðann féll 3x þegar við fórum að krifja málið afhverju hann féll þegar ég set 5 skot í 2cm hring kom í ljós þótt hann eigi riffil sjálfur í minna cal þá er hann haglabyssuskytta fyrst og fremst og þar lá hundurin grafinn.Hann punkt hitti fyrsta skoti en setti alltaf skot nr 2 út fyrir hring í öll 3 skiptin.En næstu 3 nálægt miðpunkti.Getur verið að þar sem gikkurinn minn er mjög léttur að fyrsta skot kom honum á óvart svo kippir hann en eftir það sé hann stöðugur ég allavega skil þetta ekki.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Post Reply