Blessaða skotprófið.

Almennt um veiði eða veiðar á bráð sem ekki eru í undirflokkunum
User avatar
skepnan
Skytta
Posts: 256
Joined: 01 Apr 2012 12:35

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by skepnan »

Jahérnahér :o skotfélög að semja um skotfélög við skotfélög, hver var að tala um LÍÚ :lol: :lol: :lol:
Svo mikið grín, svo mikið gaman hahahahahaha-lalala (smá grínverji hérna hjá minns) :mrgreen:

Kveðja Keli sem kann á skítakvíslar ef þarf að moka út :twisted:
Þorkell D. Eiríksson
keli.skepnan@gmail.com
Fljótsdalur í Fljótshlíð
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Jááááááá nú skil ég þetta er allt eitt alsherjar samsæri ég er viss um að norðmenn koma að þessu líka prófið er jú sniðið eftir því norska og þar verður þú að vera í skotfélagi til að fá veiðileyfi :mrgreen:
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by Veiðimeistarinn »

Nei, þetta er eitt allsherjar klúður, eins og annað sem kemur frá Umhverfisráðuneytinu og UST, þeir virðast ekki geta komið með neinar breytingar nema það sé ekkert á hreinu varðandi þessar breytingar, hafa lítið sem ekkert samráð við þá sem hafa vit á praktísku hlið málanna, athuga nær aldrei hvort sé lagaheimild fyrir breytingunum. Sé á annað borð lagaheimild, kemur strax upp spurningin um ,,löglegt en siðlaust".
Sporin hræða, dæmi af handahófi, veiðbann í Vatnajökulsþjóðgarði, námskeið hreindýraleiðsögumanna, skotprófið, málefni hreindýraveiða flutt úr heimabyggð og svo má lengi telja :evil:
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by Spíri »

Jæja piltar, nú hef ég þreytt þetta blessaða próf og er skemmst frá að segja að ég náði :P En það kom mér verulega á óvart að menn eru að falla á þessu, og veit ég fyrir víst að það er töluvert fall á meðal þeirra sem hafa tekið prófið, en um 15% þeirra sem ætla að skjóta hreindýr hafa þreytt prófið. Þannig að til ykkar sem eruð á leið í próf, æfið ykkur og prufið að skjóta á skífuna áður en þið farið í prófið :shock:
hérna er tengill á skotskífuna:


http://www.ust.is/library/Skrar/Einstak ... fa2012.pdf
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by sindrisig »

Já það er alltaf skemmtilegra að vera búinn að skjóta sig inn fyrir átökin. Hvort sem heldur þau eru á vafasömu skotprófi eða í raunveruleikanum.

Var að slást við verkfærið mitt og komst að lokum að því að vaktaskipti á slípimassanum í hlauphreinsunninni voru nauðsynleg til að ná honum á blaðið. Tala nú ekki um hinn áhættuþáttinn sem yfirþrýstingurinn er. Þetta er árangurinn, nb. átti eftir að stilla inn kíkinn sem nýlega var settur á. Hugmyndin er að sýna myndina, ef ég bara væri viss um að hún birtist.... Sem hún gerir ekki blessunin, hvernig laumar maður mynd hér inn ?

kv.
Sindri
Sindri Karl Sigurðsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by Veiðimeistarinn »

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by sindrisig »

Auðvitað gat ekki verið flókið að setja inn mynd, þegar búið er að útskýra hvernig það er gert....

Skotprófið er ekkert leyndarmál, frá mínum bæjardyrum séð. Kemur á hlið en hvað um það.

Já og til þess að róa ykkur hin niður, 2 mínútur og 52 sekúndur. Með öðrum orðum þá er nægur tími, ég hlóð 1 skot í einu.
Attachments
Dautt hreindýr sama hvernig spjaldinu er snúið.
Dautt hreindýr sama hvernig spjaldinu er snúið.
skotprof2012.jpg (43.95 KiB) Viewed 3450 times
Sindri Karl Sigurðsson
User avatar
Bowtech
Posts: 184
Joined: 11 Jan 2011 12:34
Fullt nafn: Indriði Ragnar Grétarsson
Location: Sauðárkrókur
Contact:

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by Bowtech »

Flott, en hins vegar þá virðist það vera aðalástæðan að fólk er ekki að hitta. en það getur verið um fyrsta skot og eða síðasta skotið um að ræða. En þar sem þessi próf eru háð trúnaði að þá er spurning hvort það verði gefið upp hvað það er sem fólk er að falla á en maður skyldi halda að það væri æskilegt að opinbera niðurstöður sem fyrst til að gagnsæis sé gætt í þessu og að menn séu ekki með einhverjar getgátur og líka þannig að hægt sé að vinna upp úr þessum upplýsingum með áframhald.
Kv
Indriði R. Grétarsson.
Bogaskytta Cal.308
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by sindrisig »

Sælir.

Nei.

hittni í þessu vita sumir að betra er ósagt látið.
Sindri Karl Sigurðsson
User avatar
Bowtech
Posts: 184
Joined: 11 Jan 2011 12:34
Fullt nafn: Indriði Ragnar Grétarsson
Location: Sauðárkrókur
Contact:

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by Bowtech »

Það er kannski rétt hjá þér. En mér finnst samt spurning að velta þessu fyrir sér gagnvart heildarmynd..
Kv
Indriði R. Grétarsson.
Bogaskytta Cal.308
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by TotiOla »

Til lukku með þetta Sindri :) Mig langar að forvitnast um það hjá þér hvort prófdómari hafi verið stífur á því að þú gengir með opinn riffil að skotmarkinu eins og kröfur prófsins virðast gera ráð fyrir? Ég lái þér það auðvitað ekki ef þú kýst að halda þessu fyrir þig. Bara forvitni af minni hálfu þar sem ég er á leiðinni í prófið.

Eins findist mér áhugavert ef UST gæfi út tölfræði um hver væri helsti fall-liður veiðimanna. Svo er aftur spurning hvort það yrði svo kannski bara notað gegn okkur veiðimönnum :roll:
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by sindrisig »

Jú það er þannig, tók lásinn úr og setti hólkinn á bakið. Þetta er í sjálfusér ekkert flókið og menn ættu nú ekki að hafa einhverjar áhyggjur af skotprófinu sem slíku. Það er rétt sem haldið er á lofti að framkvæmdarvaldið er ábyrgðalaust í þessu og þó að það sé ekki sagt opinberlega þá er hægt að taka þetta próf alveg þangað til farið er á veiðar. Enda get ég ekki annað séð en að það væru auðsóttar skaðabætur í gegnum dómstóla ef svo bæri undir. T.d. veiðimenn erlendis frá osfrv.
Sindri Karl Sigurðsson
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by maggragg »

Prófaði að taka þetta skotpróf og er bara mjög sáttur. Ég vildi auðvitað setja á mig meiri pressu þar sem ég er líka prófdómari og setti skífuna því á 200 metra og skaut svo 5 skotum undir mínútu og er bara nokkuð sáttur :D Reyndar skotið af 6+ kg riffli með sjónauka í 32x stækkun en að öðru leyti á sama hátt og prófið.

Varð bara að monta mig :twisted:
Image
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
cruser 90
Posts: 11
Joined: 25 Jun 2012 23:16

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by cruser 90 »

sælir félagar er að vandræðast með þetta skotpróf og er alveg að guggna á þessu ég er með 30 06
næ ekki að setja nema 3- 4inn í hringin hitt 3-4 cm frá er að vísu með lítin kíkir 3-9x32 hvað er til ráða
Jóhann V Helgason
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by Gisminn »

Nú eru góð ráð dýr ég vill þér vel en ég hreinlega get í bestafalli stungið upp á nokkrum tillögum.
Ertu nokkuð óvanur að skjóta úr riffli en vanur að skjóta úr haglabyssu og ert þessvegna að kippa í gikkinn í stað þess að þrýsta?
Fáðu reynda skyttu til að taka 3-4 skot og heyra hvað hann segir.
Ef þú sérð tölurnar á skotskífuni í mestu stækkun er það nó og þú þarft ekki annan kíki nema vandamálið sé að kíkirinn haldi ekki núlli þá þarft þú nýjan kíki helst í gær.
Þekkir þú einhvern sem er með nákvæman riffil og er til í að lána þér hann á hreindýr og til æfinga ?
Prófaðu aðra kúlutegund eða aðra hleðslu en sú aðferð er að brenna inni því miður,
En vonandi gat þetta hjálpað pínulítið og gangi þér vel
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by TotiOla »

Fljótlegast væri auðvitað, eins og Þorsteinn bendir á, að fá lánaðan riffil ef þú ert í aðstöðu til þess.

Annars myndi ég halda að næsta skref væri að bruna á næsta skotsvæði og fá vanann mann til þess að skjóta úr honum. Ef það gengur jafn illa þá er bara að breyta einum þætti í einu. Kíkir, festingar, kúla, hleðsla, etc.

Annars er ég viss um að vanari menn hér á spjallinu geta ráðlagt þér enn betur.
Mbk.
Þórarinn Ólason
cruser 90
Posts: 11
Joined: 25 Jun 2012 23:16

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by cruser 90 »

hér er skífan kanski er þetta bara klaufaskapur
Attachments
DSC00003.JPG
DSC00003.JPG (54.17 KiB) Viewed 3349 times
Jóhann V Helgason
cruser 90
Posts: 11
Joined: 25 Jun 2012 23:16

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by cruser 90 »

heldur ekki núlli þú seigir nokkuð þegar ég fékk byssuna lánaða þá var hann lánt frá því að vera á núlli
ég þarf að skoða þetta en þetta er í fyrsta skiftið sem ég fer á hreindír hef aðalega verið að skjóta gæs og fleirra
Jóhann V Helgason
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by TotiOla »

Einhvertíman var mér kennt að riffill á núlli fyrir einn mann væri ekki endilega á núlli fyrir annan. Sérstaklega óvana menn.

Þ.e.a.s. menn rífa mismunandi í gikkinn og þ.a.l. verður ákoman mismunandi. Ég held að sért þú óvanur þá verður þú að stilla sjónaukann inn fyrir þinn skotstíl/ávana eða æfa þig þangað til skotstíllinn samræmist stillingunum (erfitt og tímafrekt).

Það er kannski lítill tími í það en þú hefur þó nokkra daga til þess að æfa þig ef þú kemst að hjá prófdómara á síðustu metrunum.

Ein spurning. Gat sá sem á riffilinn skotið þokkalega úr honum þegar hann lánaði þér hann?
Last edited by TotiOla on 26 Jun 2012 00:44, edited 2 times in total.
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Blessaða skotprófið.

Unread post by Gisminn »

Var vindrek frá vinstri til hægri ?
Ef ekki þá myndi ég skrúfa hæðarstillinguna niður um 6 klikk og hliðarstillingunguna 8 klikk en bara ef það var ekki hliðarvindur frá vinstri til hægri en ef það var hliðarvindur úr hinni áttinni þá skaltu hafa skífuna með þér á völlinn og fá góð ráð hjá góðri skyttu.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Post Reply