Þessi verkfæri eru þau sem ég er mest að handleika þessa dagana.
Efri riffillinn Valmet combi 12/222rem. tófybyssan mín sem ég er að nota á grenjunum þessa daga. Sjónglerið er Bushnell trophy, red dott sem stækkar 1x með 28 mm. linsu.
Neðri riffillinn er hreindýrariffillinn minn sem ég nota að vísu líka á tófu þegar ég þarf að skjóta á löngu færunum úti í 300 metrunum.
Mauser 98 lás úr þýskum Mauser sem var orginal 8x57 eftir viðkomu með 243 hlaup sem mér líkaði aldrei 243 hentar mínum veiðiskap afskaplega illa, setti Arnfinnur á hann hlaup í kaliberinu 6,5-284 árið 2005 og setti hann ofan í plastskefti.
Plastskeftinu skipti ég út á síðasta ári, Jói Vilhjálms setti hann ofan í límtrés skefti, Eletric blu Silhouette Traditional frá Richards Microfit Gunstocks.
Sjónglerið á honum, 30 ára Tasco 6-24x42 hefur dugað einstaklega vel öll þessi ár við mikla og ekki alltaf mjög nærfærna notkun.
Bendi þeim mönnum sem eru að velta fyrir sér hér á spjallinu hvernig sjónpípur þeir eigi að fá sér eins og oft ber við og eiga að endast á Tasco
