Sútun á hreindýraskinnum

User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Sútun á hreindýraskinnum

Unread post by Veiðimeistarinn »

Sælir ágætu spjallverjar.
Ég fékk þessa orðsendingu frá sútara hér eystra, fannst tilvalið að setja þetta hérna inn.
,,Ég undirritaður tek að mér að loðsúta hreindýrshúðir verð 20.000 kr. + vsk fyrir húð af hreindýrskúm og 28.000 kr. + vsk fyrir húð af hreindýrstörfum.
Ég væri þakklátur ef þið létuð þetta berast meðal veiðmanna. Mjög mikilvægt er að vanda kælingu og fláningu.
Gott er að hafa i huga eftirfarandi atriði.
Vanda fyrirristu fram úr hálsi svo jafn mikið skegg sé beggja vegna, þegar merki er sett í hækil skal flá hækil áður en merki er sett í, einnig þegar rist er á kvið að skera ekki þvert á skurð, varast skal að draga dýr svo hár skaðist, mjög mikilvægt er að skinnið berist til mín sem fyrst til mín eftir fláningu".
Kveðja
Karl Jóhannsson
Þrep
701 Egilsstöðum
Símar 898-3845 og 471-3845 netfang minkur@simnet.is
Attachments
Sútað kýrskinn á vegg
Sútað kýrskinn á vegg
IMG_0767.JPG (85.1 KiB) Viewed 2761 times
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
gkristjansson
Skytta
Posts: 250
Joined: 02 May 2012 14:21
Location: Ungverjaland

Re: Sútun á hreindýraskinnum

Unread post by gkristjansson »

Ég á tvö skinn sem Karl sútaði og get mælt með vinnunni hjá honum.
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: Sútun á hreindýraskinnum

Unread post by iceboy »

Hvernig haldast hárin á þeim? Ég er með eitt skinn , ég veit ekki hver sútaði það, en það er ekki hægt að koma nálægt því vegna þess hversu mikið hárlos er af því.
Árnmar J Guðmundsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Sútun á hreindýraskinnum

Unread post by Veiðimeistarinn »

Það er ekki sútuninni að kenna að hárin haldist ekki á loðsútuðum hreindýraskinnum, það er í eðli þeirra.
Vegna þess að hreindýrahárin eru hol að innan eins og hár ísbjarna til dæmis, eru hárin stökk og brotna sérstaklega þegar þau þorna vegna þess að dýrið er dautt og viðheldur ekki náttúrulegum raka og fitustigi háranna og losna af við hárrótina. Þetta gerist frekar ef skinnin eru sett á gólfið og álagið á þau verður meira, einkum ef þau eru á stað þar sem mikið er gengið á þeim.
Loðsútuð hreindýraskinn skyldi ávallt hengja upp á vegg ef menn vilja lengja líftíma þeirra.
Hárafar hreindýra og ísbjarna er svipað eins og ég sagði hér ofar, þess vegna hafa þessi dýr alveg sérstakt sundlag.
Hárin á þeim eru hol innan, þess vegna er mikið loft í hárunum og þau eru þess vegna grunnsynd, það er hryggurinn á þeim stendur nánast uppúr vatninu á sundinu, þetta hef ég séð hjá hreindýrum á sundi og á myndum af ísbjörnum á sundi.
Þess vegna var þetta greinilega ekki ísbjörn á myndinni sem ítölsku ferðamennirnir tóku á Vatsnesinu á dögunum, ísbirnir lóna aldrei svona á sundi með aðeins bláhausinn uppúr sjónum eins og selur eins og sást á myndinni.
Ísbjörninn er alltaf að synda frá a til b þegar hann er á annað borð á sundi.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Sútun á hreindýraskinnum

Unread post by Gisminn »

Þarna komstu með það Sigurður. Ég var mikið búinn að vera að skoða myndina af ættluðum ísbirni en það var alltaf eitthvað að plaga mig að þetta gæti ekki verið bangsi og það var einmitt að renna upp fyrir mér hvað var rangt við myndina. Það var bara haus uppúr.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Post Reply