Hreinn 2012 SKAUST

Allt um Benchrest, Silhouette, ISSF og aðrar riffilgreinar ásamt öllu sem viðkemur skotfimi með rifflum
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Hreinn 2012 SKAUST

Unread post by Veiðimeistarinn »

Þá eru úrslitin komin á blað í skotmóti SKAUST Hreinn 2012.
http://www.skaust.net/index.php?option= ... &Itemid=60
Attachments
Þátttakendur í mótinu frá vinstri, Ingvi Þór Sigurðsson, Jón Magnús Eyþórsson, Elmar Logi Einarsson, Pálmi Skúlason, Kristján Berg Árnason, Dagbjartur Jónsson, Bjarni Þór Haraldsson, Sigurður Aðalsteinsson, Tómas Stanislafsson, og Kjartan Ottó Hjartarson

Verðlaunahafar á mótinu frá vinstri Kristján Berg Árnason flest hjörtu 2, Sigurður Aðalsteinsson 3 sæti, Elmar Logi Einarsson 1 sæti og flestir hreinar 10 eða fullt hús, Pálmi Skúlason 2 sæti og Dagbjartur Jónsson lengsta færi á drepin hrein.

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Hreinn 2012 SKAUST

Unread post by TotiOla »

Til hamingju með 3. sætið Sigurður! Helvíti ertu vígalegur svona camo-aður :D Hatturinn toppar alveg outfit-ið.

Ég hef gaman af því hvað SKAUST-menn eru duglegir að halda skemmtileg skotmót.
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Hreinn 2012 SKAUST

Unread post by Veiðimeistarinn »

Takk fyrir það Þórarinn.
En þetta þriðja sæti var frekar súrt í brotið :?
Ég lenti í miklum hremmingum í fríhendisskotunum á 50 og 100 metrunum, raunar ekki á 50 metrrunum þar fékk ég 10, enn síðan skaut ég fríhendis 100 metra skotinu líka á 50 metra skífuna og það fór naumlega í 9 svo ég fékk bara 9 út úr fríhendisskotunum vegna þess að verra skorið gildir með tvö göt á sömu skífu, tapaði 10 þar með þessu vanhugsaða skoti :(
Síðan gekk þetta vel eins og sést á myndunum hérna fyrir neðan af þeim 7 hreinum sem ég hitti :D
Hleðslan var 60 gr. N560 á bakvið 100 gr. Nosler ballistic tip á cirka 3400 fet per sekund.

Gefin voru 10 stig fyrir skot sem hitti lunga næst hjarta, 8 stig fyrir lunga fjær hjarta,
7 stig fyrir skot sem hitti hjarta og 3 stig fyrir skot sem hæfði dýr það er að segja það sem er á blaðinu.
Attachments
200 metrarnir voru innan marka
200 metrarnir voru innan marka
271 meter var í lagi en hefði mátt vera aftar
271 meter var í lagi en hefði mátt vera aftar
375 metrarnir voru líka í lagi
375 metrarnir voru líka í lagi
Á 400 metrunum seig þetta aðeins í en samt í tíuna, slapp naumlega við hjartað og 7 stigin.
Á 400 metrunum seig þetta aðeins í en samt í tíuna, slapp naumlega við hjartað og 7 stigin.
Þarna á 439 metrunum tók vindurinn aðeins í frá hægri.
Þarna á 439 metrunum tók vindurinn aðeins í frá hægri.
Last edited by Veiðimeistarinn on 21 Jul 2012 19:06, edited 1 time in total.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Hreinn 2012 SKAUST

Unread post by Veiðimeistarinn »

Hér koma myndirnar af tveimur síðustu hreinunum.
100 metra hreininum og 50 metra fríhendistvískotna hreininum :shock:
Attachments
Hér kemur súri tvískotni fríhendis hreinninn. Andskotans bömmer þetta kostaði mig fyrsta sætið.
Hér kemur súri tvískotni fríhendis hreinninn. Andskotans bömmer þetta kostaði mig fyrsta sætið.
Skotið á 100 metra hreininn hefði mátt vera aftar eins og reyndar öll skotin en ég var ekki með neinar æfingar, vildi bara tryggja tíurnar
Skotið á 100 metra hreininn hefði mátt vera aftar eins og reyndar öll skotin en ég var ekki með neinar æfingar, vildi bara tryggja tíurnar
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Hreinn 2012 SKAUST

Unread post by TotiOla »

Helvíti súrt þetta með fríhendis-skotin :( En maður lærir víst á mistökunum og þú tekur bara næsta mót með trompi.

Takk fyrir að deila myndunum með okkur. Maður sér að þetta eru allt flott skot þrátt fyrir þennan eina flyer á 439 metrum.

Segðu mér, var skotið sitjandi eða liggjandi á þessum lengri færum?
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Hreinn 2012 SKAUST

Unread post by Veiðimeistarinn »

Það var skotið sitjandi af borði á átta seinustu færunum.
Já vindurinn jókst eftir sem lengra kom úteftir og færin lengdust, enda hittu skotin mín á tveimur síðustu færunum ekki, man ekki hvað það næst lengsta var en minnir að það hafi verið rétt innan við 500 metra en lengsta færið var 641 meter en það hittu 4 skyttur á því færi eins og sést á skortöflunni á skaust.net.
Það er nú varla hægt að tala um flyer á 439 metrum, þar má ekkert útaf bera og svona verður að skrifa alfarið á skyttuna, en hreindýrið sem hefði fengið þetta skot hefði verið jafn dautt og öll hin sex sem ég hitti, lungun ná nefninlega svona langt aftur í alvöru dýri og náttúrlega fríhendisdýrið tvískotið alveg STEINDAUTT. (ætli það sé ekki eins og tvíreykt hangiket, hroðalega gott) :lol:
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
joivill
Posts: 46
Joined: 26 Jun 2012 20:01

Re: Hreinn 2012 SKAUST

Unread post by joivill »

Siggi þú ert snillingur
Kv Jóhann Vilhjálmsson
Jóhann Vilhjálmsson byssusmiður
www.icelandicknives.com
j.vilhjalmsson@simnet.is
Post Reply