Hversu oft má endurhlaða skothylki?

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
User avatar
T.K.
Posts: 166
Joined: 03 Sep 2010 20:54

Hversu oft má endurhlaða skothylki?

Unread post by T.K. »

Daginn meistarar.

Hversu oft er óhætt að hlaða í sömu skothylkin?

Er með Norma brass fyrir 6,5x55 og að spá í hvort ég eigi að nota það einu sinni enn eða eyða pening í nýtt? Er vanur að gera fullsize á hylkjunum. Sé ekki sprungur í hálsinum en vissulega eru hylkin farin að teygjast um brot úr millimetra, enda sjálfsagt skotin ca
8 sinnum.

Gaman væri að heyra fra reynsluboltunum.
Elskið friðinn og strjúkið kviðinn
Þórir Kristinsson
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Hversu oft má endurhlaða skothylki?

Unread post by E.Har »

Ef ekki sér á þeim þá geturðu lúðrað þeim aftur og aftur og ....... :D
Ef Þau eru farin að lengjast þá bara trimma þau til baka :-)

henda öllu sem einhvað sér á sama hve lítið.
Svo sem engin endurhleðslubolti, bara svona bolti in general :-)

E.Har
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Hversu oft má endurhlaða skothylki?

Unread post by Veiðimeistarinn »

Ég hleð þau þar til það fer að sjá á þeim, oftast kemur rifa ofan í hálsinn, nekkdæja 5-6 sinnum þá er stundum orðið stíft að loka boltanum á þau og þá full dæja ég þau.
Einar (bolti) flottur, með trimmið og allt það á hreinu:)
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
El mundos
Posts: 2
Joined: 20 May 2012 00:11

Re: Hversu oft má endurhlaða skothylki?

Unread post by El mundos »

Daginn

Ég er með riffil í cal 223. er maður að endurhlaða svoleiðis skothylki?

kv. Ingimundur Óskarsson
Ingimundur Óskarsson
896-1093
ingimundurosk@simnet.is
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Hversu oft má endurhlaða skothylki?

Unread post by Gísli Snæ »

Já, öll centerfire hylki
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Hversu oft má endurhlaða skothylki?

Unread post by konnari »

El mundos wrote:
Ég er með riffil í cal 223. er maður að endurhlaða svoleiðis skothylki?

n
Að sjálfsögðu ! Öll centerfire hylki er hægt að endurhlaða....
Kv. Ingvar Kristjánsson
Post Reply