Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Mr. Wilson er mættur á klakan... eftir langa bið og pælingar ákvað ég að skella mér bara á Wilson neck sizing die og kúlusetningar die og keypti Arbor pressu frá Sinclair í leiðinni!
Þegar ég tók dótið upp þá var eitthvert klístur utan á die-unum sem maður verður líklega að þrífa af, en hvernig er best að ná þessu af? Á ég bara að skella þessu í ultra sonic bað eða nota bara WD-40? Ég er ekki mjög hrifinn af WD-40 þegar kemur að byssum og íhlutum tengdum þeim, svo kannski eru menn með eitthvað annað sem gott væri að nota til að þrífa þessa feiti af sem er örugglega bara sett á til þess að verja die-ana á meðan þeir eru í búðinni að bíða eftir kaupanda!
Það verður gaman að sjá hvernig þetta kemur allt saman út þegar ég verð búinn að koma saman 6,5 x 47 rifflinum sem dettur vonandi í hús á næstu vikum...
Lyman hylkjasmurninging sem er þarna í bakrunninum virkar þrælvel til að ná feitinni af dæjunum(=
Er með Wilson dæja líka og er mjög hrifinn af þeim en það þarf að hafa body dæja með því það kemur altaf að því að þurfi að skella öxlunum aftur.
Er með Redding body dæja í það sem er eins og allt frá Redding top smíði.
Já, ég þarf að redda mér body die frá Redding fyrir axlirnar.
Þessi pressa er örugglega bara nokkuð fín, lítil og handhæg... Þess vegna er mjög auðvelt að taka hana með á skotvöllinn ef maður fer í að prófa kúlusetningar. Annars hef ég ekki samanburð við aðrar Arbor pressur, virðist nú vera svipuð smíði á þeim flestum samt...
Já hef verið að spá í að fá mér þessa pressu fljótlega.
Redding body dæjarnir eru mjög þægilegir, snerta ekki hálsinn og eru ekki með pinna til að taka hvellhettuna svo maður er ekki lengi að forma hylkin.
Nei ég er með 22-250 ackley improved en er með Jalonen í 6,5x47 í pöntun svo ég á eftir að fá mér annað sett af Wilson dæjum(=
Vertu í sambandi við mig áður en þú panntar Wilson Die-ana það getur verið að ég eigi bush-ningar fyrir þig! Ég á tvær ónotaðar .288 og .289 ef það er eitthvað sem hugnast þér!
Sæll aftur
Takk fyrir það en mun sennilega þurfa sömu bushingar og þú notar þar sem bara Lapua framleiðir brass í þetta cal.
Nema maður renni utan af hálsunum, veit ekki hvort það sé þörf á því.
En allavega gott að vita af þeim, aldrei að vita hvernig hlutirnir fara(=