
Eins og margir vita er haglastærð mikilvæg eins og margt fleira, t.d. samspil þrenginga og haglastærðar. Blý vs stál (sem er efni í aðra umræðu). Ég ruglast ævinlega á enskri og US haglastærð og býst við að fleiri séu þannig. Þulan sem ég fer með í skotveiðibúðum, þegar sölumenn eiga ekki það til sem ég vil en reyna að selja mér það sem ég kannski get notað er þessi:
"Enskur þrír er þrír komma þrír í millimetrum. Enskur er einum minni."
Enskur þrír (US 4) er að vísu 3,25 mm en nógu nálægt. Eina kerfið sem ég hef séð er US kerfið, þar er 0,01 tomma milli haglastærða, þ.e. ca 0,25 mm. Þar sem tomman er 25,4 mm þá er þetta ekki alveg rétt heldur, en kannski nógu rétt. Þá er US 4 (enskur 3) 3,25 mm en US 2 3,81 mm (ætti að vera 3,75 mm samkvæmt þumlinum og þulunni

Allavega ætti taflan að neðan, þó hún sé ekki fullkominn (vantar t.d. enskan 1 sem er 3,6 mm) að hjálpa mönnum.