Berger að koma með nýjar SAAMI veiðikúlur

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Berger að koma með nýjar SAAMI veiðikúlur

Unread post by maggragg »

Berger var að tilkynna að þeir væru búnir að hanna nýjar veiðikúlur sem eru hannaðar fyrir SAAMI staðla. Fyrir þá sem ekki vita hvað það þýðir þá er átt við að kúlurnar eru hannaðar til þess að virka með veiðirifflum, það er að þær eiga að virka með stöðluðum "chamberum" og komast í magasín.

Hefðbundnu VLD kúlurnar hjá þeim eru svokallaðar VLD kúlur sem eru mjög langar og bæði getur verið erfitt að finna "réttu" hleðsluna og svo komast þær sjaldnast í magasín vegna lengdar.

Þessar nýju kúlur byggja á hybrid tækni Berger, en þeir hafa gefið út nokkar hybrid kúlur, sem hafa kosti bæða VLD og hefðbundinna kúlna, þ.e. að þær eru bæði með tvískiptum boga á oddi, bæði tangent og secant en það er lengri saga. Þær kúlur hafa hentað vel í fleirri gerðir riffla en hingað til hafa þær aðeins fengist sem markkúlur, þ.e. ekki hentað til veiða.

Þessar nýju kúlur hafa því veiðieiginleika VLD kúlnanna, en henta fyrir hefðbundna veiðiriffla og hafa þeir náð eins góðum flugstuðli og hægt er miðað við að hafa þurft að stytta þær til að virka með SAAMI stöðlum. Þar sem Bryan Litz hannaði þessar kúlur þá býst ég við að BC stuðullinn á þeim á eftir að koma á óvart og skjóta öðrum sambærilegum veiðikúlum ref fyrir rass í þeim efnum.

Image

Ekki eru komnar frekari upplýsingar um þyngdir í öllum kaliberum eða spekkar en hérna eru smá upplýsingar.

Frumgrein: http://02b0516.netsolhost.com/blog1/201 ... c-bullets/

Og meira: http://bulletin.accurateshooter.com/201 ... g-hybrids/

Image
95. graina 6mm kúla virðist allavega vera að koma á markaðinn.

Image

Grein sem útskýrir munin á tangent, secant og hybrid eftir Bryan Litz:
http://bulletin.accurateshooter.com/201 ... -explains/
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Berger að koma með nýjar SAAMI veiðikúlur

Unread post by Gisminn »

Ég er einmitt í basli með berger kúluna. Ekki vantar nákvæmnina og hún passar í sakoinn en vandamálið er bráðin.
Ef ég tek skot á gæs þá fer kúlan hreint í gegn þó ég skjóti beint á bringu og ég er ekki að reyna að skjóta haus á 250-300 metrum.
Hef nú í þrígang lent í að skjóta gæs sem bara virtist ekki taka eftir því að kúla fór í gegnum hana fyrr en löngu seinna og ef ekki væri fyrir tíkina væru þær tíndar og tröllum gefnar.
En taki ég skot á haus á sel er hausin bara farin nánast af honum.
Hún virðist þurfa meiri mótstöðu en gæs til að opna sig.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Berger að koma með nýjar SAAMI veiðikúlur

Unread post by maggragg »

Sæll Þorsteinn

Þessi lýsing gæti passað við kúluna en henni er lýst þannig að hún opni sig eftir 2" - 5". Líklega er ekki næg mótstaða í gæsinni fyrir þessa kúlu, enda hef ég aðeins séð ummfjallanir um hana í stærri bráð. Ætli aðrar kúlur (varmint) séu ekki heppilegri á gæs hvað þetta varðar. Gaman að heyra svona reynslusögur um kúlurnar.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Berger að koma með nýjar SAAMI veiðikúlur

Unread post by maggragg »

Hérna er myndband sem lýsir hvernig þessi gerð af kúlum er uppbyggð og aðeins farið í það hvernig hún kemur út í bráð

http://www.youtube.com/watch?v=dAaP6xibpQA
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Berger að koma með nýjar SAAMI veiðikúlur

Unread post by gylfisig »

Einhver sagði við mig að Hornady A- Max væri óhæf í tófu. Rynni bara beint í gegn.
Það er ekki mín reynsla, með 123 grs kúluna sem ég nota í 6,5x47.
Þennan stokkandarblika skaut ég áðan með slíkri kúlu á 189 metra færi.
Það var lítið eftir af honum.
Attachments
23102012278.jpg
23102012278.jpg (115.2 KiB) Viewed 2901 times
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Post Reply