Kvöldflug?

Ef einhverjum vantar stað til að veiða á, eða einhver veit um stað til að veiða á.
Padrone
Posts: 150
Joined: 02 May 2012 11:15
Location: Kópavogur

Kvöldflug?

Unread post by Padrone »

Þar sem ég fæ núll upplýsingar um heppileg svæði til að veiða gæs þá ætla ég að spyrja...

Er þetta ákjósanlegt svæði til að taka kvöldflug?
http://ja.is/kort/#x=382922&y=466107&z=5

Með von um góðar undirtektir...
Kv. Árni Vigfús Magnússon
arni1980 (hjá) gmail.com
699 4569
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Kvöldflug?

Unread post by Gisminn »

Sæll voða erfitt að svara þessu.
A. Hvaðan er gæsin að koma ?
B. Ertu að miða á sandana með Hvítánni eða einhverja af tjörnunum þarna ?
C. Ertu að sjá gæsir í einhverju magni þarna á svæðinu ?
D. Veistu til að það sé mikið verið að skjóta þarna í kvöldflugi.
Þegar þú ert búinn að svara þessum spurningum þá ætti að vera hægt að ráðleggja eitthvað.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Padrone
Posts: 150
Joined: 02 May 2012 11:15
Location: Kópavogur

Re: Kvöldflug?

Unread post by Padrone »

Til að svara því sem ég hef svör við...

A: ég gæti trúað að hún væri að koma úr Vesturátt frá Mýrunum. (bara ágiskun)
B: Er að skoða bara hentugt svæði þarna, sandarnir litu vel út og svo eru spennandi tjarnir uppi á Síðufjalli og á Hálsi
C: Ekki hugmynd, hef aldrei komið á þetta svæði, en ég gæti fengið leyfi til að nota smá hluta af Hvítánni og þarna í kringum þessi fjöll/hæðir
D: Ekki hugmynd, ég er að bíða eftir að fólkið sem býr þarna komi heim frá útlöndum (næstu viku)

Vonandi hjálpar þetta eitthvað =)
Kv. Árni Vigfús Magnússon
arni1980 (hjá) gmail.com
699 4569
Post Reply