Strax farið að vinna í veiðilöggjöfinni á Alþingi

Almennt um veiði eða veiðar á bráð sem ekki eru í undirflokkunum
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Strax farið að vinna í veiðilöggjöfinni á Alþingi

Unread post by maggragg »

Á þriðja degi alþingis er búið að leggja fram eitt lagafrumvarp og eina þingsályktunartillögu.

Annarsvegar hafa Birgitta Jónsdóttir, Árni Þór Sigurðsson og Mörður Árnason lagt fram lagafrumvarp um breytingar á veiðilögum með það að markmiði að selir falli undir veiðilöggjöfina og verði ekki lengur útundan lögum. Ekki er farið út í almennar friðanir, en hinsvegar opnar það möguleikan á því.

Sjá má frumvarpið hér: http://www.althingi.is/altext/141/s/0046.html

Hinsvegar er þingsályktunartillaga um breytta skipan refaveiða á Íslandi og standa eftirtaldir þingmenn að henni: Ásmundur Einar Daðason, Gunnar Bragi Sveinsson, Vigdís Hauksdóttir, Birkir Jón Jónsson, Höskuldur Þórhallsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Einar K. Guðfinnsson, Ólöf Nordal, Jón Gunnarsson,
Guðlaugur Þór Þórðarson, Árni Johnsen.

Hljóðar hún svo:
Alþingi ályktar að fela umhverfis- og auðlindaráðherra að breyta framtíðarskipan refaveiða. Markmiðið verði að refastofninum verði haldið innan eðlilegra marka en svo það náist feli breytingarnar eftirfarandi í sér:
a. að refaveiðar verði ekki bannaðar á ákveðnum landsvæðum,
b. að teknar verði aftur upp greiðslur úr ríkissjóði vegna fækkunar refa,
c. að rannsóknir verði á hendi vísindamanna en veiðistjórnun, þ.e. skipulagning, stjórnun og leiðbeiningarþjónusta við veiðimenn, á hendi reyndra veiðimanna,
d. að samið verði við Samband íslenskra sveitarfélaga eða landshlutasamtök sveitarfélaga um að sjá um skipulagningu veiðanna og greiðslur til veiðimanna,
e. að greiðslur fyrir hlaupadýr og grenjavinnslu verði þær sömu um land allt.
Ráðherra leggi fyrir Alþingi fyrir 1. apríl 2013 frumvarp til laga um þau atriði sem krefjast lagabreytinga.
Hægt er að sjá tillöguna með greinargerð hér: http://www.althingi.is/altext/141/s/0084.html
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
hpþ
Posts: 38
Joined: 24 Aug 2012 12:06

Re: Strax farið að vinna í veiðilöggjöfinni á Alþingi

Unread post by hpþ »

Það er vonandi að þetta verði tekið fyrir á þessu þingi og samþykkt.
Kveðja,

Halldór P. Þrastarson
halldor@gks.is
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Strax farið að vinna í veiðilöggjöfinni á Alþingi

Unread post by maggragg »

Ásmundur hefur sett inn fyrirspurn á Alþingi

1. Hefur ríkisstjórnin í hyggju að koma til móts við bændur vegna þess tjóns sem hlýst af fjölgun refa?
2. Telur ráðherra að það hafi verið skynsamlegt að hætta fjárstuðningi við refaveiðar?
3. Hver er stefna ríkisstjórnarinnar þegar kemur að refaveiðum?

http://www.althingi.is/altext/141/s/0140.html

Verður fróðlegt að sjá hvað atvinnuvega og nýsköpunarráðherra svarar.

Post Reply