Friðun rjúpunnar ?

Almennt um veiði eða veiðar á bráð sem ekki eru í undirflokkunum
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Friðun rjúpunnar ?

Unread post by gylfisig »

Hugleiðing um „friðun“ rjúpunnar eins og hún kemur mér fyrir sjónir.
Senn líður að því að rjúpnaveiðitímabilið gangi í garð.
Alltaf hlakkaði maður til þessa tíma. Beið með óþreyju eftir því að 15. okt. gengi í garð. Spáði í veðrið; hvernig það myndi verða fyrstu veiðidagana, o.sfrv. 15. okt. skipaði alltaf sérstakan sess, og sem krakki og unglingur, varð ég alltaf að fá frí í skólanum heima, þessa fyrstu veiðidaga. Skólastjórinn var afar skilningsríkur, og alltaf fékk ég frí þessa fyrstu veiðidaga. Fékk reyndar ordrur frá Pálma, um að læra vel heima í staðinn.
Í dag eru tilfinningarnar aðeins blendnari til veiðitímabilsins. Líklegast vita allir sem veiðarnar stunda, að búið er að færa tímabilið aftur um 2 vikur, sem mér finnst miður. Það eru meiri líkur á að erfiðara sé að stunda veiðarnar, einkum sökum ófærðar. Einnig má reikna með því að allra veðra sé von, þegar líður á haustið. Ég hef ekkert gaman af því að stunda rjúpnaveiðar í slæmu veðri. Síðast liðið haust komst ég á veiðar fyrstu helgina, sem var föstud. Laugard. og sunnudagur. Veðrið ekki upp á marga fiska, þoka og rigning, og talsverð ófærð á heiðum.
Engu að síður hugsaði maður sér til hreyfings, því veiðidagar eru ekki margir, og allra veðra von, þegar komið er nær nóvember, og vissara að nýta dagana vel, hugsaði ég með mér, eins og margir aðrir.
Veiðisvæði sem Húsvíkingar fara mest á er Reykjaheiði, Þeistareykir, Gjástykki, Gæsafjöll, og Hrútafjöll svo eitthvað sé nefnt, og á þetta svæði fór ég, sem ég hef og gert sl. 30 ár.
Var mættur í birtingu. Og það voru fleiri mættir en ég. Hvar sem maður fór, voru bílar á ferð. Ég mætti upp í 7 bílum í einu, til að víkja fyrir. Sama hvar maður bar niður, og ætlaði að ganga, var kominn köttur á ból Bjarnar, og þegar leið á morguninn, gæti ég trúað að einhver hundruð manns hafi verið mættir upp í Gjástykki og nágrenni. Þetta voru veiðimenn alls staðar af landinu. Mikið bar á veiðimönnum af höfuðborgarsvæðinu. Komnir alla leið að sunnan til að komast í rjúpu.
Þessi svokallaða friðun finnst mér algjörlega missa marks, þar sem m.a. dagafjöldi er takmarkaður, og friðun í gangi sunnan heiða. Það skilaði sér meðal annars í því að veiðimenn flykktust hingað norður, svo hvergi var þverfótað á hefðbundnum veiðisvæðum í Þingeyjarsýslum fyrir veiðimönnum.

Nú má ekki skilja það svo að ég sé að agnúast út í veiðimenn sem koma hingað frá öðrum landshlutum, og veiðisvæðið í Þingeyjarsýslum sé bara fyrir okkur, sem búum á svæðinu.. Ég hef ekkert á móti öðrum veiðimönnum. Mér finnst bara friðunin missa algjörlega marks, þegar mörg hundruð veiðimenn flykkjast á sama svæðið, í 2-3 daga í senn. Fuglinn á hvergi afdrep, hver lófastór blettur skannaður, og fuglar sem eru til staðar, eru allir drepnir með sama.
Að vísu skal ég viðurkenna, og ég býst við að svo sé um flesta, að einhvern tíma vilja allir veiðimenn fá að vera í friði, og er ég varla undantekning þar. En með svona fyrirkomulagi sem er við líði, er gríðarlegur ágangur á veiðsivæðin, og friðun er alls engin.
Ég skrifaði svipaðan pistil fyrir 3 árum og setti inn á annan spjallvef, og fékk eiginlega bágt fyrir.
Ég er samt enn sama sinnis, varðandi þetta fyrirkomulag, og tel það skila afar lítilli friðun fyrir rjúpuna. Nú.. og mér skilst að nú sé Ólafur Níelsen mættur hér með sitt lið, til að skjóta í kringum 200 rjúpur, sem nota á til enn einnar rannsóknarinnar.
Ég set líka stórt spurningamerki við þær veiðar!
Last edited by gylfisig on 04 Oct 2012 21:17, edited 1 time in total.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Friðun rjúpunnar ?

Unread post by Gisminn »

Veistu ég er hverju orði sammála og ég skil samt sunnan mennina sem hrekjast undan einhverjum friðlýstum svæðum eða hreinlega friðuðum svæðum þó að loksins um daginn viðurkendi ólafur að rjúpan hefði vængi og flygi langar leiðir.
En ég hjó eftir öðru hjá manninum sem kom dálítið spánskt fyrir sjónir. Það var að varp hefði tekist sérstaklega vel enda sé ég það hér heima að venjulega er bæjarstofninn 18-23 rjúpur en bara í morgun taldi ég 37 og var pínu að klappa mér á öxlina að kannski ætti ég pínu í fjölgununi með að skjóta sílamáv og svartbak í miklu mæli. En aftur að orðunum sem stungu svona í stúf Hann sagði að varpið hefði tekist svona svaka vel en stofnin myndi samt mínka til 2018!!!! Með öðrum orðum sama hve varp tekst vel eða veiðar stunadaðar hóflega þá mínki stofninn.Veiðar hafa sem sagt engin áhrif á stofnsveifluna ef ég skil manninn rétt.En aftur að orðunum þínum Gylfi manstu þegar við höfðum 2 mánuði tila að veiða rjúpu en maður fór samt ekki nema 10-15 sinnum ef veðrið var gott og nenti stundum ekki að vera allan daginn.Held að veiðiálagið á rjúpuni hafi bara verið mikið minna þá í staðin fyrir þessa stormsveit sem við erum vegna veiðidaga skerðinga svo allir verða að fara sem á annaðborð ætla burt séð frá veðri. Enda hef ég skrifað svipað á hinum vefnum um veiðisiðferðið og fleira sem mér finnst undan láta í svona kapphlaupi.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Post Reply