Þetta gæti átt sínar eðlilegar skýringar.
Neðangreind krækja vísar á grein þar sem öldungur frá Alaska er stútfullur af haglaskotum - sem safnast höfðu fyrir í botnlanganum eftir áralanga neyslu á veiðibráð.
Röntgen myndin sýnir þetta ágætlega og botnlangi konunnar lýsist upp.
http://www.freerepublic.com/focus/f-news/1554434/posts
Mig grunar að þessi háa tala af fálkum sem greinast með högl, stafi einfaldlega af að þeir hafi innbyrt gæsir sem hafa særst vegna lélegrar hittni veiðimanna.
Vert er að hafa í huga að fálkinn er ofarlega í fæðukeðjunni.
Þar sem stórt hlutfall af gæsum eru særðar eftir haglaskot, hljóta þær að verða auðveldari bráð fyrir fálkann. Sama gildir væntanlega um særðar rjúpur, þótt mig rekur ekki minni til að hafa séð neinar tölur þar að lútandi.
Það væri því full ástæða fyrir Náttúrufræðistofu að kryfja fálkana til að fá úr því skorið hvort þeir hafi verið skotnir - eða innbyrt skotna gæs.