Sælir.
Er einhver hér á spjallinu sem þekkir til þessarra sjónauka. Ég var orðinn heitur fyrir Hawke til að skella ofan á 22lr hjá mér (ef hann klárast einhverntímann en rak svo augun í þessa á opticsplanet.
Virðast vera að fá góða dóma og miðað við upplýsingar á heimasíðu framleiðanda þá eru góð gler í þeim.
Sælir.
Ég er búinn að horfa í gegnum fullt af þessum "ódýru" sjónaukum frá hinum og þessum td. Hawke, Nikko Stirling, Bushnell, Luger, Barska, BSA, Tasco og alskonar no name Kína dóti. Allt á þetta eitt sameiginlegt ef þetta stækkar meira en ca. 12-16x þá er skýrleikinn horfinn, með öðrum orðum þá eru þessir "ódýru" sjónaukar sem stækka um 20x plús er ekki nothæfir nema svona hálfan skalan.
Það sem hefur komið mér mest á óvart undanfarið er sjónauki sem heitir Dead Ringer er merkilega skýr miðað við svona no name en veit svo sem ekki um verð á honum er til í Vesturröst. Annars er ég ferlega hrifinn af Burris og Meopta svo er Leupold altaf klassi, Readfield er eh. sem ég vildi prufa en það merki er gamalgróið nú í eigu Leupold. það er oft hægt að gera fín kaup á theopticzone.com og þeir senda til Íslands, líka með því að filgjast með hér heima td. bland og Hlað í notuðu.
Ég veit að þú gerir það miklar kröfur Guðmann að þú sættir þig ekki við hvað sem er í þessum málum.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Sæll Jón, það er svipuð reynsla og ég hef af ódýrari sjónaukunum....maður heldur samt áfram að leita og vonast til að detta í lukkupottinn Ég hef verið að lesa ýmislegt um þessa Swift sjónauka og menn hafa jafnvel gengið svo langt að líkja þeim við Leupold.
Svo var ég líka að skoða Pentax og er svolítið spenntur fyrir þeim líka
Annað sem böggar mig er að það virðist ekki vera í boði að fá neitt nema milot krossa í ódýrari sjónaukum í dag...og flestir þeirra eru svo grófir að maður sér varla A4 blað fyrir punktum
Sæll Guðmann.
Nikon og Pentax eru eh. sem ég mundi vilja fá að horfa í gegnum en eins og ég sagði þá kom þessi Dead Ringer all verulega á óvart bæði í skýrleika og er með til tölulega fínum krossi.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson