Browning A500

Allt sem viðkemur byssum
Hjaltilitli
Posts: 8
Joined: 02 Oct 2012 18:55
Location: Akureyri

Browning A500

Unread post by Hjaltilitli »

Sælir spjallverjar.

Ég er með eina spurningu til ykkar sérfræðinganna.
Faðir minn á Browning A500 hálfsjálfvirka.
málið er það að pinninn sem maður togar í til að opna skothúsið og hlaða byssuna datt úr, ekki veit ég hvernig hann datt úr eða hvert hann fór, ég fékk annan pinna til að setja í staðinn en ég er ekki alveg með það á hreinu hvernig honum er komið fyrir aftur svo hann detti ekki úr aftur, er þetta eitthvað sem er ekkert mál eða á ég að láta byssusmið græja þetta fyrir mig ?

http://www.yabanavmalzemeleri.com/img/u ... 500g-2.jpg

hérna sést pinninn sem ég er að tala um, þið vitið ábyggilega hvað ég er að tala um.

öll svör og leiðbeiningar með þetta eru mjög vel þeignar.

mbk. Hjalti Þórarinn Ásmundsson
Hjalti Þórarinn Ásmundsson
User avatar
Gunnar Óli
Posts: 71
Joined: 16 Jun 2012 06:16
Fullt nafn: Gunnar Óli Kristjánsson
Location: Akureyri

Re: Browning A500

Unread post by Gunnar Óli »

Sæll

Veit í sjálfu sér ekki hvernig þetta er nákvæmlega í þessari byssu en í minni (fabarm)
þá smellur hann bara í og málið dautt... Er ekki komið slit í sporið fyrir pinnann?
Gunnar Óli Kristjánsson
murtur525@gmail.com
ef þú átt gamlan cal. 22 þá er ég að safna þeim ;)
(það er betra að spyrja og vera asni í einn dag en að spyrja ekki og vera asni alla ævi)
User avatar
osig
Posts: 8
Joined: 19 Oct 2012 14:22

Re: Browning A500

Unread post by osig »

Sæll Gunnar.

Það sem þú gerir er að taka hlaupið úr láhúsinu. Þá smellur boltinn fram og þú getur sett nýja pinnann í gatið þegar það er á móti grópinni sem sést vel á myndinni þinni.

Gangi þér vel

Kveðja Ólafur
Ólafur Sigvaldason
Post Reply