Sæll Konni, ég hef bara góða reynslu af Howa og man ekki eftir að nokkur eigandi slíkra riffla hafi kvartað eða verið óánægður.Rifflar frá þeim fá hvað eftir annað titilinn "Best out of the box" hjá hinum ýmsu tímaritum og vefsíðum sem að fjalla um skotvopn. Hér heima hafa menn verið að vinna mót með svona rifflum eða lenda ofarlega.
Ég á sjálfur Howa talon í 270 með léttu flútuðu hlaupi og er verulega ánægður með hann:
Svo á ég Weatherby vanguard í 223 sem er með Howa hlaupi og bolta, en þeir framleiða mikið fyrir Weatherby:
Ég er mjög ánægður með báða rifflana enda var ég búinn að hugsa mig um í nokkur ár og lesa mikið um bæði kaliber og tegundir á netinu og endaði á þessu
Það var nú þráður um 204 ruger hérna ekki fyrir svo löngu og annar á Hlað-vefnum og menn virðast vera mjög ánægðir með það kaliber.
Svo að til lukku með nýja gripinn þegar hann kemur
Kveðja Keli