Eins og sést þá er tíkin dálítið ör en lætur samt að stjórn. eftir 3 aðrar var hún kjurr á hæl en hún lætur fiðrið ekkert bögga sig og finnst þetta alltaf jafn gaman sem betur fer Og ég hálf vorkenni rjúpuni því hún finnur þær og lætur mig vel vita að það sé rjúpa á svæðinu.
Vinur minn Höskuldur tók þetta upp á símann sinn
Skemmtilegt myndband! Góður hundur sem þú átt! Tíkin mín sótti einmitt sínar fyrstu rjúpur um liðna helgi. Ég held að þetta hafi verið einn skemmtilegasti dagur lífs hennar til þessa! Svo ég tali nú ekki um hvað þetta gerir fyrir mig.. Gerir þetta fína sport enn betra! Vonandi verða þeir mikið fleiri þessir góðu dagar..
Gaman að þessu og gaman að sjá að þú ert ALVÖRU veiðimaður, með því á ég við að þú virðist taka með þér allt heim sem tekið er með á veiðislóð (patrónur) merkilegt hvað maður sér mikið af þeim á veiðislóð.
Hérna eru myndir af tíkinni hjá mér í fyrstu rjúpnaveiðinni sinni.
Artý
Artý á sjúpu 3.jpg (115.42 KiB) Viewed 13894 times
Artý
Artý á rjúpu1.jpg (127.13 KiB) Viewed 13894 times
Svo var helgin fullkomnuð með því að sækja mér nýjan hvolp á leiðinni heim
Takk og jú ég reyni að skilja ekkert eftir mig nema sporin en það kemur fyrir á gæs að gamli remminn minn spýtir skothylkjunum full langt og það fer smá tími í að finna þau en það er ekkert mál með svona 36 gramma númer 6 eins og ég nota á rjúpu. Ég sé að Artý er með einbeitinguna á hreinu á myndunum og hamingjan í botni
Já einbeitingin og hamingjan var sko alveg til staðar. Enda vinnugleðin endalaus.
Rakkinn stóð sig mjög vel líka en ég er ekki með mynd af honum á veiðum núna.
Ég þarf að skella inn einni mynd af hundonum mínum við tækifæri, svona ef ég næ að láta hvolpinn sitja kyrran nógu lengi til að ná mynd af þeim öllum saman.
Það er ótrúlega gaman að hafa hund með sér á veiðum og mig langar að kikja á rjúpu einn dag um helgina ef veðrið gengur niður, bara til að leyfa tíkinni að sækja aðeins meira, rakkinn sótti megnið af fuglinum um þessa helgi.
Heyrðu Árnmar þú ættir að senda neðri myndina í myndasamkeppnina hjá Kjartani Antons
Þetta er flott mynd og svo líka bara svona að vera með http://vorsteh.weebly.com/zelda.html
Lengst til hægri á síðuni efst þar stendur myndasamkeppni.