Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Allt sem viðkemur riffillsjónaukum og handsjónaukum
User avatar
dain
Posts: 13
Joined: 11 Oct 2012 02:26

Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by dain »

Svo ég keypti mér Sako Quad í dag - keypti einnig Hawke Sport Optics 3-9x40 á hann og fékk strax samviskubit að hafa keypt einn dýrasta riffil sem ég fann en svo ódýrasta sjónaukan svo ég spyr ykkur meistarar, hvaða vandaða sjónauka mæli þið með f. 22 cal riffil?

Verður mest notaður á skotæfingar en reikna svo með að fara að veiða með honum. Fyrirfram þakkir til allra!
Last edited by dain on 31 Oct 2012 00:25, edited 1 time in total.
Daníel Ingólfsson
Sako Quad Synthetic .22 cal
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by Aflabrestur »

Sæll.
Í þínu tilfelli tæki ég Burris Quad hann var jú hannaður á þennan riffil, mínus er að hann er held ég bara til í 3x9-40 ef ég man rétt sem er kænski í minna lagi ef þú ætlar að gata pappa á 50+ m.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
User avatar
dain
Posts: 13
Joined: 11 Oct 2012 02:26

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by dain »

Nú þekki ég sjónauka ekki nógu vel, hvað þarf ég sirka góðan aðdrátt og hvað meira þarf ég að skoða? Ef veit ekki hvort ég fái mér .17 HMR hlaupið svo ég veit ekki alveg nákvæmlega hversu langt sjónaukinn þarf að duga.

Ef þið gætuð linkað á þá sjónauka sem þið mælið með, þá væri það frábært! ;)
Daníel Ingólfsson
Sako Quad Synthetic .22 cal
User avatar
skepnan
Skytta
Posts: 256
Joined: 01 Apr 2012 12:35

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by skepnan »

Sæll Daníel, notaðu Hawke-inn til að byrja með, hann ætti ekki að bregðast þér á 22 og æfðu þig sem mest þú mátt. Þá öðlastu reynslu og þekkingu á rifflinum og ferð að sjá hvort þú þurfir betri sjónauka og fyllir á sjónaukasjóðinn í leiðinni :D

Kveðja Keli
Þorkell D. Eiríksson
keli.skepnan@gmail.com
Fljótsdalur í Fljótshlíð
User avatar
257wby
Posts: 193
Joined: 21 Sep 2011 07:39
Fullt nafn: Guðmann Jónasson
Location: Blönduós

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by 257wby »

Sæll Daníel.
Ég er búinn að vera í svipuðum pælingum síðustu vikurnar,byrjaði á að skoða hvað væri á boðstólnum hér heima,ég ákvað það að ég myndi ekki versla mér kíki sem kostaði einhvern helling á 22lr en á sama tíma vildi ég fá þokkalega skýran kíki með allavega 14x stækkun, hentugum kross og með lága turna....og þá fór nú málið að vandast :D
Skoðaði Hawke Varmint SF 4-16x44 og er pínuskotinn í honum.Fór svo inn á Opticsplanet síðuna og fann þar Swift 6-18x44CS ( http://www.swift-sportoptics.com/rscopes1.html ) og líst fjandi vel á hann,skoðaði mig svo aðeins betur um og datt niður á Vortex Crossfire II 6-18x44 ( http://www.opticsplanet.com/vortex-cros ... scope.html ) og hann er í körfunni hjá mér þessa stundina (Ég ætla samt að fara í Ellingsen við tækifæri og skoða Hawke kíkinn betur áður en lengra er haldið)

Kv.
Guðmann
Kv.
Guðmann Jónasson
kronos@simnet.is

Helstu verkfæri
Antonio Zoli Kronos 12 Ga u/y
Beretta A-300 12Ga semi auto
Otterup M70 breyttur á flesta kanta.
Mossberg 352 semi auto 22lr.
User avatar
Dr.Gæsavængur
Posts: 57
Joined: 05 Jun 2012 15:08

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by Dr.Gæsavængur »

Sæll.

Endilega haltu þig við þennan sjónauka fyrst, skjóttu helling og prufaðu vel og vandlega.. Svo sérðu fljótlega hvort hann sé að há þér í að ná því útúr rifflinum sem þú vilt. Ef ekki er hann alveg nógu góður og óþarfi að skipta. Ég er með 3-9x40 á mínum 22. og finnst það duga. En 12 eða 18 stækkun væri skemmtileg til að sjá betur götin á 100m eða 50+m. Ég keypti sjónauka á 17 þúsund og finnst hann æðislegur.. dugar mér vel. Núna vantar mig bara betri festingar á hann þvi þær sem fylgdu voru drasl.

Ég mæli þó með Leupold ef þú ert í stuði til að eyða.. Átti vx-1 3-9x40 sem var kristaltær og bjartur.

Gangi þér annars sem best með nýja riffilinn og góða skemmtun!
Kv. Atli Freyr Runólfsson
atlifreyrrunolfsson@gmail.com
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by iceboy »

Guðmann. Ef þú ert á leiðinni í bæinn þá er þér velkomið að kikja við og fá að horfa í gegnum kikjana hjá mér.
Ég er með bæði Vortex og Hawke, ekki alveg þessar típur sem þú ert að spá í en það gæti verið nóg til þess að sjá mun á þessum merkjum ef þú hefur áhuga.
Það getur verið ágætt að horfa í gegnum báðar tegundir áður en þú ferð að eyða pening.

En ég væri ekki í vafa í dag og tæki Vortexinn. Enda ætla að ég að skipta út Hawke kíkinum við tækifæri, þarf bara fyrst að fá nýjan kíki í staðinn fyrir Leupold vx-III kikinn sem er ónýtur
Árnmar J Guðmundsson
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Er Leupold ekki með "life time guarantee" ? allavega flottari típurnar, eða lenti hann í óhappi ?
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by iceboy »

JúJú þeir eru það og þessi er að sjálfsögðu með það.

Ég á eftir að staðfesta það endanlega að hann sé ónýtur, geri það um leið og lægir.
Hann hefur ekki lent í neinu er ég hef grun um að krossinn sé laus í kikinum, og ætli það sé búið að skjóta nema ca 100 skotum úr rifflinum. Er á Tikku t3 cal 6,5x55.

Það á bara eftir að taka tíma að fá þetta viðgert og ég vil geta notað riffilinn á þeim tíma.

En svo ég sé ekki að eyðinleggja þennan þráð þar sem þetta kemur þessu ekkert við þá vil ég skjóta því hér inn að ég er með Bushnell kiki á mínum 22 cal riffli og er mjög ánægður með hann. Og hann kostaði ekki mikið þegar hann var keyptur.

Ég held að ódýru kikjarnir henti betur á þessa litlu riffla þó svo að ég myndi kannski ekki setja þá á stór cal
Árnmar J Guðmundsson
User avatar
257wby
Posts: 193
Joined: 21 Sep 2011 07:39
Fullt nafn: Guðmann Jónasson
Location: Blönduós

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by 257wby »

iceboy wrote:Guðmann. Ef þú ert á leiðinni í bæinn þá er þér velkomið að kikja við og fá að horfa í gegnum kikjana hjá mér.
Ég er með bæði Vortex og Hawke, ekki alveg þessar típur sem þú ert að spá í en það gæti verið nóg til þess að sjá mun á þessum merkjum ef þú hefur áhuga.
Það getur verið ágætt að horfa í gegnum báðar tegundir áður en þú ferð að eyða pening.

En ég væri ekki í vafa í dag og tæki Vortexinn. Enda ætla að ég að skipta út Hawke kíkinum við tækifæri, þarf bara fyrst að fá nýjan kíki í staðinn fyrir Leupold vx-III kikinn sem er ónýtur
Takk fyrir það, aldrei að vita nema ég bjalli í þig við tækifæri :)

Kv.
Guðmann
Kv.
Guðmann Jónasson
kronos@simnet.is

Helstu verkfæri
Antonio Zoli Kronos 12 Ga u/y
Beretta A-300 12Ga semi auto
Otterup M70 breyttur á flesta kanta.
Mossberg 352 semi auto 22lr.
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by iceboy »

Ekki málið.

Simi 8578769 verð heima til 11 nov þarf víst að skottast í vinnu þá
Árnmar J Guðmundsson
User avatar
dain
Posts: 13
Joined: 11 Oct 2012 02:26

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by dain »

Fór áðan í Egilshöllina og prufaði nýju græjuna, sjónaukinn var alls ekkert svo slæmur - riffillinn var tær snilld! Mig grunar þó að ég sé eftir að vilja örlítið meiri aðdrátt, sérstaklega þegar ég fer í .17HMR hlaupið.

Ef þið ættuð að velja á milli ákveðna sjónauka, hvað myndu þið taka?

Leupold LPS 3.5-14x50
- 140.000 kr

Zeiss Duralyt 3-12x50
- 90.000 kr

Eða er e-h sem þið myndum mæla með á sirka þessu verðbili? Langar í einn sem ég á og myndi etv. henta vel fyrir uppfærslu í framtíðinni. Mega vera notaðir.
Daníel Ingólfsson
Sako Quad Synthetic .22 cal
User avatar
257wby
Posts: 193
Joined: 21 Sep 2011 07:39
Fullt nafn: Guðmann Jónasson
Location: Blönduós

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by 257wby »

Sæll Daniel.

Ég myndi bæta við.
Meopta (Hlað)
Burris (Ísnes)
svo er spurning með
Vortex (Hlað)
Bushnell elite 6500 (Vesturröst)
Weaver Super Slam (Vesturröst)

Kv.
Guðmann
Kv.
Guðmann Jónasson
kronos@simnet.is

Helstu verkfæri
Antonio Zoli Kronos 12 Ga u/y
Beretta A-300 12Ga semi auto
Otterup M70 breyttur á flesta kanta.
Mossberg 352 semi auto 22lr.
Sveinn
Posts: 166
Joined: 07 May 2012 20:58

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by Sveinn »

Gaman að menn skuli hafa áhuga á vönduðum sjónaukum fyrir 22lr, rétt viðhorf fyrir góðan 22lr. Ég myndi spara þennan Zeiss sem Siggi í Hlað er að selja fyrir stærra cal (gott verð hjá Sigga, flottur kíkir) og velja í staðinn Weaver 3-10x44 í Vesturröst á 38 Kkr, hef kíkt í gengum þennan og hann er flottur:
http://www.vesturrost.is/?p=3529

Kíkjar geta verið óendanlega dýrir, spurning um að velja rétt verkfæri fyrir rétta bráð og rétt færi og verkefni.
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
jonh
Posts: 4
Joined: 25 Aug 2012 01:54

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by jonh »

Hafið þið einhverja reynslu af Nikon Prostaff ? Get ekki séð betur en að þeir séu að fá ágætis dóma úti og virðast vera á fínu verði.
Jón Heiðar Hannesson
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by Gisminn »

Nei við fyrri spurningu en Nikon er nú þekt fyrir góðar linsur í myndavélar svo þeir ættu að geta gert frambærilega sjónauka.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
dain
Posts: 13
Joined: 11 Oct 2012 02:26

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by dain »

Ég var að vonast eftir örlítið meira aðdrætti en 10x en ég mun vissulega skoða þann sem þú bentir á Sveinn.

En ef ég enda svo með að fá mér .17HMR að þá væri etv. ekkert vitlaust að fá sér Quad sjónaukann.

Ég mun skoða þetta aðeins og ætla að prufa Hawkee í 75-100m og sjá hvernig hann kemur út við slíkt færi. Reyni að meta út frá því.

Hvað eru annars drægnin hjá .22 og .177 caliberunum?
Daníel Ingólfsson
Sako Quad Synthetic .22 cal
Sveinn
Posts: 166
Joined: 07 May 2012 20:58

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by Sveinn »

Varðandi Nikon þá er Nikon ekki sama og Nikon, ódýrustu línurnar (eins og Prostaff) í stóru merkjunum (Leupold, Burris, Nikon, Vortex, Bushnell o.fl.) eru venjulega ekki peninganna virði, þó ódýrar séu, framleitt í Kína með ódýrum og lélegum glerjum. Ef þú færir þig upp um gæðalínu færðu miklu betri kíki fyrir peninginn. Í Nikon USA er það Buckmaster línan sem er fyrir ofan Prostaff, kíktu á þá á http://www.opticsplanet.com.

10x (jafnvel 9x) er fín á 22lr, þú ert væntanlega að núlla á 50 eða 75m. Með góðu gleri sérðu það skýrt.

Ég veit lítið um 17hmr en eftirfarandi mynd gæti hjálpað. Menn æfa sig á 22lr fyrst og fremst vegna þess að skotin eru ódýr. 17hmr nær miklu meiri hraða og kúlan fellur minna.
Attachments
17vs22.jpg
17vs22.jpg (68.3 KiB) Viewed 5915 times
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
marin
Posts: 72
Joined: 17 May 2012 04:42

Re: Vandaðir sjónaukar f. 22 cal.

Unread post by marin »

Sæll. Ef þú ert að pæla í kíki á verðbilinu 100-150 þús, þá er skyttan á Akureyri með snilldar verkfæri Sightron SIII 6-24x50 MRAD 145,900 kr , á sjálfur kíkir frá Sightron og veit um nokkra sem eiga Sightron og eru mjög ánægðir með þá.
Kveðja.
Árni Kristinsson
Fjallabyggð
Post Reply