að meta færi (haglabyssa)

Almennt um veiði eða veiðar á bráð sem ekki eru í undirflokkunum
User avatar
Gunnar Óli
Posts: 71
Joined: 16 Jun 2012 06:16
Fullt nafn: Gunnar Óli Kristjánsson
Location: Akureyri

að meta færi (haglabyssa)

Unread post by Gunnar Óli »

sælir/sælar

langaði að segja frá einni aðferð til að læra að meta haglabyssufæri!!

ég hef ekki prufað þetta sjálfur en þekki þó einn sem hefur prufað þetta með góðum árangri!

takið flugdreka og merkið spottann með 5 eða 10 metra millibili (eða því millibili sem hver og einn kýs)
og svo er farið út (skemmir ekki ef það er vindur;)) flugdrekanum flogið og færin metin.. :)

sá er sagði mér frá þessu talaði um að þetta munaði miklu þegar hann fór svo í gæsir eftir að hafa gert þetta nokkrum sinnum og var hann fljótt farinn að getað sagt fjarlægðina á færinu þó svo að annar (sonur hans) væri með drekan..

væri gaman að heyra fleiri "húsráð" frá mönnum um hitt og þetta!!
aðeins of stutt :/
aðeins of stutt :/
upps.jpg (298.89 KiB) Viewed 1832 times
Gunnar Óli Kristjánsson
murtur525@gmail.com
ef þú átt gamlan cal. 22 þá er ég að safna þeim ;)
(það er betra að spyrja og vera asni í einn dag en að spyrja ekki og vera asni alla ævi)
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: að meta færi (haglabyssa)

Unread post by Gisminn »

Þetta er sniðugt ráð ég á það til að vera fjarlægðarblindur á styttri færum 30-100 metrum og ég nota indiána aðferðina ég tek ekki skot á gæs eða önd nema ég sjái vel augun þá er hún í 30-40 metrum.Nota Rio 42gramma númer 5 og svo númer 3 þegar líður á haustið.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Gunnar Óli
Posts: 71
Joined: 16 Jun 2012 06:16
Fullt nafn: Gunnar Óli Kristjánsson
Location: Akureyri

Re: að meta færi (haglabyssa)

Unread post by Gunnar Óli »

sælir aftur

gleymdi að nefna að flugdrekinn verður helst að vera svipaður að stærð og bráðin sem á að veiða (veit ekki hversu smá flugdreka hægt er að fá)..

indjána aðferðin :D ekki vitlaust að temja sér slíkt
Gunnar Óli Kristjánsson
murtur525@gmail.com
ef þú átt gamlan cal. 22 þá er ég að safna þeim ;)
(það er betra að spyrja og vera asni í einn dag en að spyrja ekki og vera asni alla ævi)
User avatar
257wby
Posts: 193
Joined: 21 Sep 2011 07:39
Fullt nafn: Guðmann Jónasson
Location: Blönduós

Re: að meta færi (haglabyssa)

Unread post by 257wby »

Þetta er góð hugmynd, ótrúlega margir eiga í erfiðleikum með að meta fjarlægðir.Ég hef hitt menn sem telja sig skjóta gæsir á 50-60m færum en svo þegar ég fer með þá á pall 1 á skeet vellinum og segi þeim að það séu tæpir 40 metrar yfir í mark skúrinn þá renna nú oft á þá 2 til 3 grímur :D
Þegar ég er á veiðum þá reyni ég að finna einhvern punkt sem er á ystu mörkum þess færis sem ég treysti mér til að skjóta á,getur verið girðingarstaur eða eitthvað í þeim dúrnum .

Kv.
Guðmann
Kv.
Guðmann Jónasson
kronos@simnet.is

Helstu verkfæri
Antonio Zoli Kronos 12 Ga u/y
Beretta A-300 12Ga semi auto
Otterup M70 breyttur á flesta kanta.
Mossberg 352 semi auto 22lr.
User avatar
skepnan
Skytta
Posts: 256
Joined: 01 Apr 2012 12:35

Re: að meta færi (haglabyssa)

Unread post by skepnan »

Sælir, svo er hægt að hafa eina gerfigæs á sirka 30-35 metrum og hafa hana jafnvel staka frá hópnum enda er það alvanalegt hjá gæsahópum að gamlar gæsir séu í "útverði". Þá er hægt að meta vel fjarlægðina. En ég er líka svona "indíáni" eins og Steini og vil sjá augun, þá er ég sáttur. Vona bara að ég verði ekki nærsýnn með aldrinum, það gæti endað illa :twisted: :lol:

Kveðja Keli
Þorkell D. Eiríksson
keli.skepnan@gmail.com
Fljótsdalur í Fljótshlíð
User avatar
Gunnar Óli
Posts: 71
Joined: 16 Jun 2012 06:16
Fullt nafn: Gunnar Óli Kristjánsson
Location: Akureyri

Re: að meta færi (haglabyssa)

Unread post by Gunnar Óli »

já vissulega er gott að vera með á hreinu hve langt er í t.d. ystu gervigæs eða hafa eina staka einhversstaðar! en fyrir mig þá finnst mér auðveldara að meta fjarlægð á jörðu en á flugi og þar gæti drekinn hjálpað mér!!

en alltaf gott að venja sig á að skjóta ekki í vafa-færi..
Gunnar Óli Kristjánsson
murtur525@gmail.com
ef þú átt gamlan cal. 22 þá er ég að safna þeim ;)
(það er betra að spyrja og vera asni í einn dag en að spyrja ekki og vera asni alla ævi)
User avatar
skepnan
Skytta
Posts: 256
Joined: 01 Apr 2012 12:35

Re: að meta færi (haglabyssa)

Unread post by skepnan »

Sæll Gunnar, ef þú hefur "fjarlægðar gæsina" í aðflugslínu þá er auðveldara að átta sig á því hvenær flugið flaug inn fyrir fjarlægðarlínuna "and you can open fire" ;)

Kveðja Keli
Þorkell D. Eiríksson
keli.skepnan@gmail.com
Fljótsdalur í Fljótshlíð
Post Reply