Grein um hljóðdeyfa í keppnum

Allt um Benchrest, Silhouette, ISSF og aðrar riffilgreinar ásamt öllu sem viðkemur skotfimi með rifflum
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Grein um hljóðdeyfa í keppnum

Unread post by maggragg »

Rakst á áhugaverða grein á accurateshooter.com en hún fjallar hvernig hljóðdeyfar koma út í keppnum og hvaða áhrif þeir hafa á nákvæmni. Var lítið próf gert og kom í ljós að hljóðdeyfirinn hafði engin neikvæð áhrif, heldur öfugt þá þéttust grúppurnar þegar hljóðdeyfir var notaður. Eini gallinn sem greinarhöfundar fundu er að þegar hljóðdeyfirinn hitnar myndast tvíbrá sem truflar skyttuna, en þessvegna eru með með sérstaka einangrunarhólka utan um hljóðdeyfana.

Greinin: http://bulletin.accurateshooter.com/201 ... a-article/

Image
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
agustbm
Posts: 38
Joined: 31 May 2012 16:52

Re: Grein um hljóðdeyfa í keppnum

Unread post by agustbm »

Sæll Magnús,
Virkilega gaman hvað þú sinnir þessum vef vel og kemur með nýjasta fróðleik og fleira tengt þessu skemmtilega sporti :)

Ég var að veiða í Skotlandi fyrir stuttu og þar eru hljóðdeyfar nánast á öllum rifflum sem sjást á þessum slóðum.
Ég gerði smá prufu áður en haldið var á fjallið og skaut á pappa, með og án deyfis - svona til að kanna virknina. NOTA BENE: ÉG ER ALLS EKKI AÐ FULLYRÐA AÐ ÞETTA VIRKI SVONA Í ÖLLUM TILFELLUM, en svona kom þetta út hjá mér. Grúppurnar þéttust greinilega. Ég var að nota Sako 75 6.5x55 SE

Bestu kveðjur,
Ágúst Bjarki Magnússon
Attachments
2 grúppur, með og án deyfis
2 grúppur, með og án deyfis
sako.2.jpg (63.66 KiB) Viewed 2101 times
2 grúppur, með og án deyfis
2 grúppur, með og án deyfis
sako.1.jpg (61.15 KiB) Viewed 2101 times
Veiðikveðja,
Ágúst Bjarki Magnússon
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Grein um hljóðdeyfa í keppnum

Unread post by maggragg »

Sæll Ágúst

Ég hef gaman að því að leita af upplýsingum og því ekki að deila þeim með öðrum.

Ástæðan fyrir því að grúppur þéttast frekar þegar hljóðdeyfir er notaður er að gasið myndar einhverskonar loftsveipa þegar kúlan yfirgefur hlaupið og getur haft áhrif á kúluna. Með hljóðdeyfi, eða hlaupbremsu minnka þessir loftsveipar og hafa minni áhrif á kúluna eftir að hún yfirgefur hlaupið. Þetta er alþekkt fyrirbæri en er auðvitað mismunandi eftir rifflum og gerðum af hljóðdeyfum/hlaupbremsum en reglan er yfirleitt þessi Þessi grein staðfestir þetta og sýnir einmitt frammá að þetta hentar ekki síður til skotfimi.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Hrafnjo
Posts: 55
Joined: 03 Jan 2011 17:33

Re: Grein um hljóðdeyfa í keppnum

Unread post by Hrafnjo »

Sælir kappar

Ég las aðeins yfir nýju lögin í gær og var að spá í hvernig þetta verður eiginlega túlkað fyrir hljóðdeyfana. Átta mig hreinlega ekki alveg á því hvaða skilyrði maður mun þurfa að uppfylla til að geta fengið hljóðdeyfi ef lögin fara óbreytt í gegn.

Kv,
Hrafn
Kveðja,
Hrafn Jóhannesson
agustbm
Posts: 38
Joined: 31 May 2012 16:52

Re: Grein um hljóðdeyfa í keppnum

Unread post by agustbm »

Sælir strákar/allir :)

Í sambandi við nýju lögin, þá vonandi - ef taka á mið af lögunum í okkar nágranna norðurlöndum, þarftu aðeins að sækja um á þeirri forsendu að þú ætlir þér að vernda þína heilsu og annara hvort sem er á veiðum eða skotsvæði. Í sjálfum sér, þar sem gefinn er kostur á að fá leyfi fyrir stóra centerkveikta riffla, ættu menn svona yfir höfuð að geta fengið leyfi sem "hengt er" á viðkomandi riffil.

Eftir að hafa veitt nokkrum sinnum á Englandi og í Skotlandi finnst manni að þetta ætti að vera meira en lítið sjálfsagður hlutur, og eru þeir nú mjög strangir á vopnalögum þarna niðurfrá.

Bestu kveðjur,
Ágúst Bjarki
Veiðikveðja,
Ágúst Bjarki Magnússon
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Grein um hljóðdeyfa í keppnum

Unread post by sindrisig »

Sammála síðasta ræðumanni.

Annað sem gæti verið tengt þessu er að bakslagið minnkar umtalsvert við það að nota dempara og það eitt gæti bætt hittni skyttunar. Hitt er að grúppurnar færast til en það sést ágætlega á pappírnum hjá Magnúsi og Ágústi Bjarka hvernig þær hliðrast. Ástæðan fyrir því er breytt sveiflutíðni hlaupsins við "framlengingu" og/eða breytingu á þyngdarpunkti þess.

Góðar pælingar.
Kv.
Sindri Karl Sigurðsson
Post Reply