Er þetta ekki í áttina hjá Skotvís ?

Almennt um veiði eða veiðar á bráð sem ekki eru í undirflokkunum
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Er þetta ekki í áttina hjá Skotvís ?

Unread post by Gisminn »

http://www.visir.is/framtid-veidistjorn ... 2121129758
Að mínu mati gæti þetta verið grunnur að einhverju sem ég gæti treyst.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Er þetta ekki í áttina hjá Skotvís ?

Unread post by Veiðimeistarinn »

Kannski eru þessar tillögur eitthvað í áttina, en það eru hrikalega stórir gallar á þeim.
Til dæmis:
Svona svæðisskipting gengur aldrei upp nema Miðhálendið fylgi með viðkomandi landhlutum, það gengur aldrei að með 500 meta hæðarlínu séu menn að fara á milli svæða, ég tek sem dæmi að jörðin Vaðbrekka mundi að tæplega hálfu leiti lenda í Austurlands og Suðausturlandssvæðinu en rúmlega helmingur jarðarinnar í Miðhálendissvæði.
Að öðru leiti er svæðisskiptingin góð, nema kannski er of mikið að hafa Vesturland og Vestfirði í einu svæði, það eru svo ólíkar aðstæður að mörgu leiti á þessum svæðum að þekking svæðisráða mundi nýtast betur með þessi svæði sitt í hvoru lagi.
Það gengur aldrei upp að fulltrúar svæðanna geti átt sæti í fleira en einu svæðisráði, ef svo væri mundi það auka hættu miðstýringu sem er þó nóg fyrir.
Til dæmis gætu félagasamtökin og opinberu aðilarnir sem hér eru nefnd verið með einn og sama fulltrúan í öllum svæðisráðunum, þá erum vð komnir með stöðu sem gerir svæðisráðin eins og eitt svæðisráð og það er það sem við erum að forðast með þessum tillögum.
Stærsti gallin við þessar tillögur er þó að ekki er gert ráð fyrir að þeir sem sitji í svæðisráðunum eigi búsetu og heimili á viðkomandi svæði, til þess að svona uppbygging virki verður að gera það að skilyrði að fulltrúarnir séu búsettir á svæðunum öðru vísi er ekki hægt að tryggja að sérþekking á viðkomandi svæðum skili sér að fullu.
Einnig væri betra að sá sem hér er kallaður ritari svæðisráðsins verði fastur starfsmaður svæðisráðanna og við ráðningu hans verði fyrst og fremst tekið tillit til staþekkingar hans á svæðinu en ekki krafist háskólamenntunar eða að viðkomandi sé líffræðingur.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Er þetta ekki í áttina hjá Skotvís ?

Unread post by E.Har »

Tillagan miðar við 6-8 svæði.
Skil alveg að klúfa Vestfyrði og vesturland í sundur.
Lika að skipta um miðhálendislínu eða sleppa því.

Hugmyndin er að fá vandaðri veiðistjórnun.
Kerfið núna þar sem Umhverfistofnun leggur til og ráðherra tekur ákvörðun í öllum málum er auðvitað galið :-)
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Er þetta ekki í áttina hjá Skotvís ?

Unread post by Gisminn »

Þetta Eru góðir punktar og heilmikið til í þeim og eflaust ætti ekki að vera mikið mál að sníða þá að tillöguni eða það sem væri betra!!! Framkvæmdinni
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Post Reply