fyrsta skífan sem ég man að taka mynd af
myndin tekin á síma og eina viðmiðið sem var nærri var tappi af gosflösku sem einhver hafði skilið eftir á skotsvæðinu...
og þar sem að ég hef litla sem enga reynslu í riffilskytteríi og enga leiðsögn fengið (ekki verið nægilega duglegur að sækjast eftir henni) þá er ég bara nokkuð bjartsýnn á framhaldið...
skífa 001
26092012.jpg (53.16 KiB) Viewed 3649 times
Gunnar Óli Kristjánsson murtur525@gmail.com
ef þú átt gamlan cal. 22 þá er ég að safna þeim
(það er betra að spyrja og vera asni í einn dag en að spyrja ekki og vera asni alla ævi)
Þessir Remington rifflar skutu alltaf glettilega vel, en mikið andskoti voru þeir gikkþungir.
Þetta er bara ágæt grúbba hjá þér. Prófaðu að skipta yfir í 52 grs Sierra MK kúlu. Ég gæti trúað að klasinn myndi þéttast aðeins.
Já gikkþungur var hann, en er kominn með Timney gikk núna.
Er að bíða eftir skotum sem verið er að hlaða fyrir mig, verður gaman að sjá hvað gerist.
Veit að vísu ekki hvaða kúlur hann setur í fyrir mig en ég treysti hleðslumanninum betur en sjálfum mér til að meta það..
Má til gamans geta að á rifflinum situr hræ-ódýr sjónauki frá Barska 6-24 (nota 12-14 * stækkun)
Gunnar Óli Kristjánsson murtur525@gmail.com
ef þú átt gamlan cal. 22 þá er ég að safna þeim
(það er betra að spyrja og vera asni í einn dag en að spyrja ekki og vera asni alla ævi)
Set til gamans inn mynd af tveimur grúppum sem skotnar voru með Jalonen cal 6 Br með HV Krieger hlaupi.
Kúlan 68 Berger og færi 100m.
Kíkir: 10-50x 60 Sightron
Ég skaut vinstri grúppunn i( 7 skot), í gegnum 308 kúlugat, sem stækkaði held ég, ekki neitt. Hægri grúppan var örlítið stærri, 5 skot.
Það var dauðalogn.
Held að þetta séu minnstu grúppur sem ég hef skotið.
Hvur veit nema þetta gerist einhvern tímann hjá manni?
Gunnar Óli Kristjánsson murtur525@gmail.com
ef þú átt gamlan cal. 22 þá er ég að safna þeim
(það er betra að spyrja og vera asni í einn dag en að spyrja ekki og vera asni alla ævi)
Þetta er fínt hjá þér. Það er ekki líku saman að jafna. Mjög ólíkir rifflar. Annar léttur veiðiriffill, og hinn nökkvaþungur, sérsmíðaður, og með kíki sem stækkar 50 sinnum.
Já ég er sáttur, en alltaf gott að hafa sér betri menn/konur til fyrirmyndar!
Enda hvernig öðruvísi er hægt að bæta eigið ágæti
Gunnar Óli Kristjánsson murtur525@gmail.com
ef þú átt gamlan cal. 22 þá er ég að safna þeim
(það er betra að spyrja og vera asni í einn dag en að spyrja ekki og vera asni alla ævi)
mældi til gamans kóktappa og er hann 30 mm (MOA 29mm @ 100m)
héðan í frá verður kóktappi eða tíkall í töskunni til að teikna eftir
pælingar meðan ófært er á skotsvæði :(
26092012.jpg (55.02 KiB) Viewed 3420 times
Gunnar Óli Kristjánsson murtur525@gmail.com
ef þú átt gamlan cal. 22 þá er ég að safna þeim
(það er betra að spyrja og vera asni í einn dag en að spyrja ekki og vera asni alla ævi)
nei Maggi eða Magnús (veit ekki hvort skal kalla þig) hef ekki skoðað þetta forrit.
ertu að nota það?
Sigurður eða Siggi (veit ekki heldur hvað skal kalla þig!)
þó ég sé nú ekkert nein svaka skytta þá ætla ég nú ekki að fara að hengja mig á einhverja happa gripi til að geta svo kennt þeim um þegar ílla fer
Góli er sinnar gæfu smiður
gagnast lítt það happa!
Siggi það er sárt og miður
ef treysta þarf á tappa
ps. er kallaður Góli meðal jafningja (G.Óli = Góli)
Gunnar Óli Kristjánsson murtur525@gmail.com
ef þú átt gamlan cal. 22 þá er ég að safna þeim
(það er betra að spyrja og vera asni í einn dag en að spyrja ekki og vera asni alla ævi)
Ég á þetta forrit, reyndar virkar það ekki núna en þetta er braðsniðugt sé maður mikið að spá í grúppum því maður getur skannað skotskífuna í skanna og merkt svo inn kúlugötin og fær nákvæmar upplýsingar um grúppuna. Gott ef maður er mikið að deila grúppum eða bara að stútera sína eigin nákvæmni... Má kalla mig Magga eða Magnús
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546 "Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Ertu með 1,10 fríu útgáfuna eða 2,10. Ég hef aðeins verið að nota fríu útgáfuna og finnst hún alveg virka fínt, en er að spá í það hvað maður fær með 2,10.
Stebbi, ég á 2.10 útgáfuna, en svo þegar ég skipti um tölvu virkaði ekki gamli kóðinn og það hefur gengið illa að fá nýjan. Þannig að maður verður að eiga afrit af forritnu þegar maður fær það.
Það er miklu meiri stuðningur við metrakerfið sem ég sá mest í þessu. Man ekki allveg hvað var fleirra, en þetta er snilldar forrit þegar það virkar
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546 "Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"