Púður

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
User avatar
oliar
Posts: 53
Joined: 24 Feb 2012 09:38
Location: Reykjavík

Re: Púður

Unread post by oliar »

Sælir. Ég er að nota eftirfarandi.......
N140 til N170 í 6.5x55 og einnig Norma MRP
N140-N160 fyrir 243 og Norma MRP
N110 fyrir Hornet
N340,350 og 105 fyrir haglaskotin (39 grömm að 63 grömmum)
Kveðja. Óli Þór Árnason
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Púður

Unread post by Veiðimeistarinn »

Kristmundur, er þá betra fyrir mig að nota N160 púðrið í staðinn fyrir N560 í 6,5-284 hjá mér?
Ég lenti í því sama og Sindri, sótmyndun í hlaupinu eftir að hafa notað eingöngu N560 en það var jafn gott eftir að Auólfsstaðabondinn hafði massað það fyrir mig.
Attachments
Já hann Jóhann bóndi hreinsaði úr honum sótið með massanum, með bros á vör.
Já hann Jóhann bóndi hreinsaði úr honum sótið með massanum, með bros á vör.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Púður

Unread post by sindrisig »

Ég ætla í það minnsta að skipta yfir í 160 púðrið menn hafa ekki verið að lenda í þessu, svo ég viti til, með það. Nítróglyserínið í 500 púðrinu er líklega sökudólgurinn, hækkar trúlega hitann það mikið að það fellur all verulega inn í hlaupið. Það versta við þetta er að það er ekki nokkur leið að sjá að eitthvað sé að, spegilslétt og fínt þegar kíkt er í gegn. Það er svo sem ekkert mál að nota það áfram en það þarf greinilega að skipta um stíl við hreinsun á hlaupinu. T.d. renna með massa í gegnum það eftir 50-100 skot eða svo.
Sindri Karl Sigurðsson
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Púður

Unread post by Spíri »

Já honum Jóhanni frænda mínum á Auðólfsstöðum verður nú seint í kot vísað þegar byssur eru annars vegar. Gaman að sjá mynd af frænda hjá þér herra Veiðimeistari :D
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
User avatar
Stebbi Sniper
Posts: 492
Joined: 09 Jun 2012 00:58
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Púður

Unread post by Stebbi Sniper »

Sæll Sigurður

Ég notaði N-560 púður til að byrja með í Tikkuna mína (6,5 - 284), en var aldrei ánægður með nákvæmnina með því og einnig var ég var við meira sót, nú hef ég skipt alveg yfir í N-165, sem mér finnst koma mikið betur út. Ég veit um nokkra sem hafa verið að skjóta talsvert með 100 gr Nosler BT kúlum, en ég hef mest notað 100 grs og 139 grs Scenar kúlur. Ég hef líka notað 120 grs Nosler talsvert og aðeins prófað 130 grs Sierra.

Það besta sem ég hef skotið í móti með þessum riffli skaut ég sennilega með 108 grs Scenar og 58 grs af VV N-165 sem er svona frekar mild hleðsla en svínvirkaði alveg í minn riffil. Þessi kúla er, eins og aðrar Scenar kúlur náttúrulega markkúla þannig að þú værir kannski ekki að velja hana geri ég ráð fyrir.

Varðandi þrif á 6,5 x 284 þá er mjög mikilvægt að bursta vel með koparbursta. Ég veit að menn hafa mismunandi skoðanir á þrifum á byssum en ég bursta minn riffil mjög vel með Butch og koparbursta og læt svo liggja í honum í nokkra klukkutíma, svo bursta ég aðeins yfir aftur og renni svo púðunum í gegn. Ég myndi líka mæla með Bore guide.
Attachments

[The extension pdf has been deactivated and can no longer be displayed.]

Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Púður

Unread post by Veiðimeistarinn »

Takk fyrir þetta Stefán og Sindri, ég var einmitt að klára N560 púðrið síðasta sumar og mun núna að því er mér sýnist velja á milli N160 eins og þú notar Sindri eða N165 eins og þú notar Stefán.
Gladdi mig að sjá þessi úrslit í Veiðirifflamótinu 19. ágúst, í léttari flokknum, 6,5-284 viðist yfirburðakaliber eins og stigatölurnar gefa til kynna, en það veldur víst nokkru hver á heldur :D
Ég hef í það minnsta aldrei séð eftir því neina einustu stund að veja þetta kalíber í minn veiðiriffil, það ber allt að sama brunni að þetta hafi verið rétt val hjá mér og það val er orðið endanlegt val að minni hálfu.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Púður

Unread post by sindrisig »

Sælir aftur.

Það er ekki nóg að nota Butch og bursta þegar svo er komið að hlaupið er orðið eins og hjá mér og Sigga. Þá er það farið að þrengjast og það eina sem virkar er massi, það sést ekki meðn neinu móti að hlaupið sé skítugt og það er ástæðan fyrir því að ég endaði með hvellhettulausar patrónur v/yfirþrýstings.

Kannski má segja eftir á að bakslagið var komið vel yfir velsæmismörk áður og maður hefði átt að kveikja á perunni þar sem ég var hættur að geta skotið nema 10 skotum liggjandi. Eftir þetta finnst manni bakslagið úr hreinu og eðlilegu hlaupi á 7mm rem mag ekki vera merkilegt.
Sindri Karl Sigurðsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Púður

Unread post by Veiðimeistarinn »

Eftir að hafa aðeins velt fyrir mér hleðslum og brunahraða í Vihta Vuori bæklingnum hallast ég heldur að N165 púðrinu, á þó eftir að skoða þetta nánar með mér ,,vihtari" mönnum.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Púður

Unread post by gylfisig »

Jæja.. ég var þá ekki einn um að hafa fundist þetta með 500 púðrið. :D
Varðandi kaliberið 6,5-284 þá notaði ég eingöngu Norma MRP fyrir 120 grs kúlur.
þetta kal er svosem þekkt fyrir að vera frekt á hlaupin, en það ætti ekki að vera vandamál, gæti menn þess að þrífa vel, skjóta ekki ört, og svo hefur það talsvert mikið að segja, hvort verið er með max hleðslur, eða einhvern meðalveg. Max hleðslan fer mun verr með hlaupið. Ég held að 165 púður fyrir 95-100 grs kúlu í 6,5-284 sé orðið frekar "hægt" fyrir svo létta kúlu. Myndi frekar stóla á N-160 fyrir þær þyngdir. Ég átti samtal við forsvarsmann verslunar sem flytur inn amerísku púðrin, og tjáði hann mér að hann reiknaði með því að áfram yrði flutt inn púður fra USA, og sé ég ekki ástæðu til að efast um það.
Vonandi verður það púður áfram til í þeirri verslun, með hækkandi sól. Reyndar keypti ég upp, allt RE-15 púðrið þar :D Það er gott að hafa í huga, að þegar búið er að koma sér upp þeirri hleðslu sem mönnum líkar, að birgja sig vel upp af t.d. púðri og þeirri kúlu sem hentar. Dæmin sanna að oft verða verslanir uppiskroppa með þessar vörur á miðri vertíð, og þá þarf að leggjast undir feld, og finna nýja hleðslu, með öðru púðri, svo dæmi sé tekið. Þetta er ég margbúinn að reka mig á, og passa mig nú orðið á að eiga alltaf nóg af bæði púðri og kúlum, og svo auðvitað primerum líka. Hvet alla sem á annað borð eru að hlaða eitthvað að ráði, að kaupa ekki bara einn bauk af púðri, og tvo pk af kúlum. Auðvitað kostar það sitt ef kaupa á talsvert magn, en betra er að eiga nóg heldur en að verða "krúkk".
Þeir eru ansi margir sem bankað hafa upp á hjá mér til að fá lánaða ögn af púðri, eða nokkrar kúlur :D
Varðandi hreinsun, og óhreinindi í hlaupum, þá sendi ég kannski inn grein um mössun og hreinsun almennt, þegar betur stendur á.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Púður

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Í skápnum er:
Hodgdon H4195
Norma 200
IMR 4895
IMR4198
VV N-110
VV N-130
VV N-140
VV N-150
VV N-550
VV N-160
Er að hlaða í:
.22 Hornet
.222
6,5x55se
6,5x57mauser
7,5x55 swiss
7,64x54r
.30-06
.303Brit
.450 marlin
Næst í innkaupum er sennilega Bluedot eða svart púður í Navy Coltinn og efst á óskalistanum er Lil Gun.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Kristmundur
Posts: 75
Joined: 30 Jul 2012 17:18

Re: Púður

Unread post by Kristmundur »

Sæll Siggi já eg mundi hiklaust mæla með N160,eg get gefið þer upp hleðslur fyrir lettari kúlurnar sem hafa virkað hjá mer,vertu í sambandi við tækifæri
Kv.
Kveðja.
Kristmundur Skarpheðinsson
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Púður

Unread post by sindrisig »

Sælir.

Ein spurning til Jóns Kristjáns.:

Hvað þarf mikið af svörtu púðri á móti hinu reyklausa?
Sindri Karl Sigurðsson
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Púður

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Ég er nú alls ekki að fara að blanda þessu tvennu samann þótt það meigi kænski skilja það þannig. Navy Coltinn er eingöngu fyrir svartpúður enda framhlaðinn rúlla, bluedot á nota í 10 ga haglarörs æfingar
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Ingvar
Posts: 6
Joined: 04 Oct 2012 16:47
Location: Akureyri

Re: Púður

Unread post by Ingvar »

sælir

Ég er með þetta vandamá á 204 ruger var að nota n 530 púður og eftir að
hafa skópað hlaupið líður mér ekki vel með það svona svart að innan, það er
ekki búið að tapa nákvæmni en er mjög fljótt að taka kopar fæ dökkbláan lit í
hreinsun eftir örfá skot, hvernig er þessi mössun framkvænd?
er líka með 6.5x284 og var að nota n 560 í hann en var ekki var við þetta
í honum en skipti í n 165 fyrir 2 árum þegar ekki var hægt að fá n 560 og
hef notað það með góðum árangri síðan.
Ingvar Stefánsson
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Púður

Unread post by sindrisig »

Sæll.

Var búinn að pósta á þennan hér : http://spjall.skyttur.is/skotvopn/thrif ... -t835.html .

Annars er þetta ekki flókið, þú finnur hvernig útfellingin rífur í duluna/tappan og hvernig átakið léttist þegar þú ert kominn framhjá (þrifið frá lás og framúr hlaupinu). Þetta eru fyrstu 10 -15 cm sem eru vandamálið.
Sindri Karl Sigurðsson
Fiskimann
Posts: 55
Joined: 12 Oct 2012 10:03

Re: Púður

Unread post by Fiskimann »

Sælir félagar
Ég mæli með því að þegar þið eru að velta fyrir ykkur hvaða púður sé réttast að prófa, að lesa á WW síðunni hverju þeir mæla með í viðkomandi hylki og kúluþyngd. Að gera þetta eins og Veiðimeistari segir í samráði við þá. Það hefur allavega reynst mér betur en að spyrjast fyrir á annars ágætum spjallsíðum.
Kv. Guðmundur Friðriksson
Guðmundur Friðriksson
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Púður

Unread post by E.Har »

Skil ekki þessa þrifa fölni :mrgreen:

Mrp er einnig frekar heitt eins og 500 linan.

Skora á menn að setja inn í forritin sín t.d annarsvegar 160 púður og sumarhita í 20 g celsius og svo vetrar hita í -15 skoða droppið á löngu rebbafæri t,d 300 m.

Þá fer ann aftur að langa í heitt púður!
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
User avatar
Sveinbjörn
Posts: 251
Joined: 17 Jun 2012 23:49

Re: Púður

Unread post by Sveinbjörn »

Eftir að hafa skoða veðurspærnar vel og vandlega dró ég þá ályktun að ég fengi sæmilegt veður á skotæfingarsvæðinu í Hafnarheiði.

Flestir Suðurnesjamenn sem þurft að haga sínum störfum og gerðum eftir veðri hafa lært það af reynslu að rétt áður en hann fer úr sunnan og suðaustan yfir í suðvestanátt er nokkuð gott fyrirheit á næstum því logn í góðan hálftíma.

Með það í huga fór ég af stað og með í för var 6,5x55 riffill og púðrið á bakvið kúluna var N550. Þegar ég var búinn að taka tvö skot svona rétt til að fá tilfinninguna þá náði ég því að gera mont GRÚPPU og svo aðra til. Í gleði minni og til að gera eitthvað á meðan hlaupið kólnaði hringdi ég í mann til að deila þessu undri.

En svo fór af því glansinn og árangur í öfugu hlutfalli við væntingar og erfiði þegar haldið var áfram skotæfingu. Ekki gat ég kennt um slitnu hlaupi, rangri kúlusetningu eða hliðarvindi. Svo kom skýringin og var það alveg augljóst. Þetta er N550 púðrinu að kenna ég hafði lesið það á netinu og sannir Íslendingar trúa flestu sem þeir lesa.
Til að gera langa sögu stutta þá var farið í það að hreinsa og skrúbba. Ég var búinn að skjót hátt í 30 skotum og það var alveg augljóst að hér var lausnin kominn.
Að lokinni aðgerð var sest niður og taldi ég það nánast forms atriði að skjót þriggja skota grúppu þar sem götin lægju hvert utan í örðu. En viti menn það bara gerðist ekki og þegar heim var haldið gerði ég mig glaðan með að skjóta vel innan þeirra marka sem krafist er til hreindýraveiða.
Vissulega var ég með veiðirifill en ekki markriffill og hana nú!!

Eftir sem áður þá er ég jafn nær um galla og kosti við N500 línu í púðri. Get ég því hlakkað til endalausra hugleiðinga um það. Ásamt því að gefa sjálfum mér fyrir heit um að æfa meira og lúta þeirri staðreynd að leti og æfingarleysi er gerandinn í þessu hvað mig varðar.
Bestu kveðjur
Sveinbjörn Guðmundsson
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Púður

Unread post by Spíri »

Hvaða kúlur ertu að nota í 6,5x55 Sveinbjörn?? Er með einn 6,5x55 og nota nánast eingöngu N-160 púður í hann. Er að nota allt frá 100grs uppí 140grs kúlur
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
User avatar
Sveinbjörn
Posts: 251
Joined: 17 Jun 2012 23:49

Re: Púður

Unread post by Sveinbjörn »

Það sem ég var að prófa í dag var Hornady 129gr Interbond og Hornady 140gr A-Max. Púður N550 og magnið vill ég hafa fyrir mig en þær upplýsingar eru allar í hleðslubækling WV.

140gr kúlan var að koma betur út. Það verður fróðlegt að sjá hvernig það gerir sig á lengra færi. Löngu færin mín eru 200 og 300 metrar.

Mér er ekki vel við að gefa upp magn á púðri og hvet menn til að fara eftir upplýsingum frá framleiðanda. Innsláttarvilla getur orðið afdrifarík.

Í þeim 6,5x55 rifflum sem ég hef verið með áður þá hef ég fengið bestar grúppur með 123gr Lapua og N550.
Ég eins og fleiri er að bíða eftir sendingu af Hornady kúlum og kem ég til með að prófa einnig léttari kúlur í þennan riffill. Síðastliðið sumar prófaði ég einnig N560 og ekki var ég alveg sáttur með það.
En það er orðið tímabært að reyna einnig N150 og N160 við tækifæri.
Svo er reyndar ein spennandi kúla frá Barns
http://www.barnesbullets.com/products/c ... sx-bullet/

Sennilega splæsi ég í einn svona pakka til að prófa.
Nú ætla ég að sækja um í hreindýralottói og því er það markmið næstu vikna að koma mér í æfingu.
Það yrði nú meira grínið ef karlinn í Ellingsen félli á prófinu :lol: :lol: :lol:
Bestu kveðjur
Sveinbjörn Guðmundsson
Post Reply