243.win hleðsla

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Eggert
Posts: 10
Joined: 22 Jul 2012 11:38

243.win hleðsla

Unread post by Eggert »

Heilir og sælir spjallverjar.
Vantar að vita byrjunarhleðslu á 100.gr sierra spbt og n-160 púður í 243.
og hvaða hleðslur hafa að verið að koma vel út.
Hef verið með 45,5 af n-560 en en er ekki sáttur.
Kveðja
Eggert Bergsveinsson
eggertb1@gmail.com
User avatar
Stefán_Jökull
Posts: 76
Joined: 28 May 2012 10:41
Location: Skagafjörður

Re: 243.win hleðsla

Unread post by Stefán_Jökull »

Vihtavuori (lapua.com) mælir með 34.4grs. af N-160. Hvernig hlaup ertu með (fyrirgefðu forvitnina)?
Kv. Stefán Jökull
User avatar
oliar
Posts: 53
Joined: 24 Feb 2012 09:38
Location: Reykjavík

Re: 243.win hleðsla

Unread post by oliar »

reyndar má alls ekki miða við Speer Grand slam þegar skoðaðar eru 100 graina kúlur þar sem hún er miklu stífari ef hefðbundnar SP skúlur eins og Sierra. Í 7 útgáfu er Honady SP kúlan notuð.
Svo við höldum áfram með útgáfu 7 á er byrjunarhleðslan fyrir N-160 einmitt 42.7 og max 46.9.
Ég hef sjálfur verið að nota allt frá 43 til 46 grain þar sem 44.0 og 45.0 eru það svipaðar að ég geri ekki upp á milli þeirra en um léttan veiðiriffil er að ræða og þegar hann setur 5 skot undir 1" þá er ég sáttur.
Til að gæta allrar sanngirni þá er ég með norska hleðslubók (Laddeboken utgave 7) sem er að ég held nýjasta útgáfan frá þeim og eru þeir með 38.0 sem lámark og 40.0 sem hámark og eru þeir að nota Hornady SP og Sako forrester með 1/10 í twist í 243.
Persónulega myndi ég ekki þora að fara niður í tæp 35 grain þar sem fyllingin er orðin lítil að mér finnst það óþægilegt.
Á hinn bóginn finnst mér kúluvalið á Lapua undarlegt og enn undarlegra hvers vegna hleðslutölurnar eru svona mikið lægri en fyrri útgáfur !!!!!!
Kveðja. Óli Þór Árnason
Eggert
Posts: 10
Joined: 22 Jul 2012 11:38

Re: 243.win hleðsla

Unread post by Eggert »

Takk fyrir félagar.Fór og prófaði í dag hleðslur með n-160 og 100.gr.sierra kúlunni.
í 43,5 fór boltinn aðeins að þyngjast primer að byrja að flétast út .Enginn munur á 44.gr
hvorki á bolta né primer.Ætla að prófa næst 43,gr og færa nær rílum,Grúppurnar voru
eins og hagladreif sýnu skárst úr 44.hleðslunni.(er með kúlu 0,9 mm frá rílum sierra mál)
Hvað er óhætt að fara nálægt.Einnig hvort þið vitið um aðra 100.gr kúlu sem vert væri að prófa
er að hugsa í hreindýr (þarf að vera þokkalega nákvæm)
Kveðja
Eggert Bergsveinsson
eggertb1@gmail.com
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: 243.win hleðsla

Unread post by gylfisig »

Eins og ég sagði við þig áður; ég hefði prófað að vera neðar. Minnir að ég hafi gefið þér upp 41 grs af N- 160.
Svo hefði ég prófað 95 grs Nosler bt. Hún hefur verið nákvæm í marga 243 cal riffla.
Skítt með 100 grs lágmark á hreindýr.
100 grs kúla er nálægt þolmörkum í 243. Hann ræður betur við aðeins léttari kúlu, og slagkraftur þarf ekkert að vera minni, með aðeins léttari kúlu, sem er þá á meiri hraða.
Mitt mat er, að 70-90 grs séu þyngdirnar í 243.
Hef alltaf sett spurningamerki við 100 grs kúlu í þetta cal.
Átti 243 í mörg ár, og notaði 80 grs kúlu í hann eftir að hafa prófað nánast allar fáanlegar 6 mm kúlur.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Fiskimann
Posts: 55
Joined: 12 Oct 2012 10:03

Re: 243.win hleðsla

Unread post by Fiskimann »

Sælir félagar
Ég gerði heiðarlega tilraun til að finna hleðslu fyrir 100 gn kúlu, með ýmsum kúlum og púðri en ekkert gekk. 70 gn Sierra kom frábærlega út með N160 púðrinu. Mæli með að kaupa tilbúin skot fyrir hreindýrið. Federal skotin virkuðu þolanlega hjá mér og voru að mig minnir ódýrust. Passaðu þig á því að hægbrennandi púður eins og N160 getur einnig verið varasamt á of lítilli hleðslu.
Kv. Guðmundur Friðriksson
Guðmundur Friðriksson
Sveinbjörn V
Posts: 109
Joined: 13 Dec 2012 20:55

Re: 243.win hleðsla

Unread post by Sveinbjörn V »

Þessi kúla kom sæmilega út hjá mér með 41,1 grs. af N160 og C.O.L. 66,65mm.
Er með Howa 1500 og gerði þessa hleðslu líka fyrir gamlan brno.
Þessi hleðsla er í hærri kantinum minnir mig, svo ég er sammála Gylfa sig. með 41grs.
Það er dáldið erfitt að finna uppl. um þessa ágætu kúlu.

Ef þú lætur kúluna snerta rillur þá er 38grs. af N160 mjög nákvæmt hjá mér, en minni hraði.
Sveinbjörn V. Jóhannsson
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: 243.win hleðsla

Unread post by Gisminn »

Sælir aðeins fylgst með hérna og ráðin eflaust góð en mér finnst stórlega vanta að vita hvernig riffill þetta er eða allavega twistið. Flestir eru með 10 en Savage er með 9,5 í twist og það er allt annað mál. Ég var með svoleiðis grip sem bara yfir höfuð vildi ekki 70 graina kúlur en var þrusu nákvæmur með Hornardy 87gr V-Max og bara nokkuð góður með 100 graina kúlu þá fallið yrði fljótt mikið.
En mín skoðun er að 9,5 Tvistið er bara að verða of kraft fyrir stuttar og léttar kúlur.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Eggert
Posts: 10
Joined: 22 Jul 2012 11:38

Re: 243.win hleðsla

Unread post by Eggert »

Sælir spjallverjar ´
Ég þakka góð viðbrögð við fyrirspurninni Er með Sako lás og Lothar Walther hlaup 10.twist
70.gr blitz er að koma fautavel út hjá mér.Prófaði Federal 100.gr sem er með Sierra kúluna
og kom sæmilega út og stefni að ná svipuðu með hleðslu.En finnst að hlaða þetta þunga kúlu
sé línudans Ef ég gefst upp(ekki alveg strax) verður farið í 7-08 eða 270.Hvort er nákvæmara?
Kveðja
Eggert Bergsveinsson
eggertb1@gmail.com
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: 243.win hleðsla

Unread post by maggragg »

Það er erfitt að segja hvort er nákvæmara, það er oft meira en bara hylkið sem hefur áhrif á það. 7-08 er byggt á .308 sem er talið mjög nákvæmt hylki. .270 hinsvegar er lítið þekkt sem markhylki en þeim mun þekktara sem eitt af vinsælustu hylkjunum til veiða. Það væri mín ágiskun að 7-08 væri nákvæmara en það er bara lítil sem engin reynsla af .270 í markskotfimi, hvort það stafar af því að það sé ónákvæmara eða það hafi bara ekki skapast hefð á að nota það þar veit ég ekki.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: 243.win hleðsla

Unread post by Veiðimeistarinn »

Eggert það er spurningin um hvað þú ætlar að nota riffilinn, áður en við förum að tala um nákvæmni eins og Magnús kom inná.
Ef þú ætlar að nota hann til veiða er engin spurning að taka 270.
En aftur til markskytterís þá er ég ekki alveg sá besti til að leiðbeina, en ég mundi segja að hvorugur þessi hentaði kannski sérstaklega vel.
Þá er spurningin um 6,5-08 frekar en 7-08, er það ekki kallað 260?
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: 243.win hleðsla

Unread post by maggragg »

Rétt hjá þér Sigurður, .260 Rem heitir það í dag.

Hvað hylki er best er ein algengasta spurningin á svona spjallsvæðum en það er bara ekki til neitt sem heitir best. Þetta eru allt hylki sem skjóta mismunandi kúlum á mismunandi hraða með mismunandi nákvæmni.

Til eru mismunandi veiðibráðir og henta mismunandi hylki eftir því hvort er verið að skjóta lítil dýr á löngu færi, eða stór þung dýr á stuttu, eða dýr á hlaupum o.s.f.v. Þá getur hentað að hafa létta og mjög hraða kúlu þar sem færi eru óþekkt eða ekki nákvæm og þá hefur fall mikið að segja

Í markskotfimi skiptir nákvæmni höfuðmáli en hraði minnstu mál þar sem færið er þekkt, Einnig er horft á sem minnst bakslag og hægt er að komast upp með án þess að fórna öðru. Á lengri færi henta þyngri kúlur sem hafa meiri BC stuðul enda færið þekkt.

Hægt er að finna eitthvað sem dugar í allt en það verður aldrei það besta í allt. Þetta eru alltaf skemmtilegar umræður og best er einmitt að ræða kosti og galla við hvert hylki fyrir sig og bera það saman við þarfirnar sem maður leggur upp með.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Sveinbjörn V
Posts: 109
Joined: 13 Dec 2012 20:55

Re: 243.win hleðsla

Unread post by Sveinbjörn V »

Eins og Sigurður sagði þá er þetta allt spurning hvað þú ætlar að nota græjuna.
Þessi kúla er vel þess virði að reyna við í 243win með 1/10 segi ég, með BC upp á 419 á milli 2800-2200
Ég bara sé ekki ástæðu til að gefast upp á 243 sem veiðibyssu.
Það er aðalmálið að læra á það sem maður á, alveg sama hvað það er stórt/lítið.
Sveinbjörn V. Jóhannsson
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: 243.win hleðsla

Unread post by E.Har »

nákvæmlega ekkert að þessari útfærslu og ekki nokkur minnsta ástæða ti að gefast upp á þessu.
Eini gallin er að hann fer sennilega verr með
100 gr kúlur en dugar sam algjörlega á t.d hreidýr.
Ætti að vera frábær tófu og fuglabyssa og svo má örugglega renna rymer í hana og fá einhvað enn sprækara út.

Ef þú værir að smíða þér hreindýrabyssu þá yrði sennilega 6,5 frekar en 6 mm fyrir valinu en fyrir eitt og eitt dýr a tveggja til þriggja ára fresti þa er þessi meira en boðleg.

Ef þig langar í breyðari kúlu þá virðist allt nákvæmt sem er byggt á 308 hylkinu
6 mm sem er 243
6,5 mm sem er 260 rem
7 mm sem er 7-08

svo minnir mig að Sako lásin sé nógulangur fyrur 284 hylkið! yrðir bara að skoða það.

Eg myndi halda honum í 243 og skjóta þessum 1-2000 skotum sem hlaupið þolir og hugsa svo málið næst þegar skipt verður um hlaup, bara njota hanns eins og hann er :-)
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
Post Reply