Compressed load

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Fiskimann
Posts: 55
Joined: 12 Oct 2012 10:03

Compressed load

Unread post by Fiskimann »

Sælir félagar
Ég er að velta fyrir mér hvort einhver hefur yfirhlaðið (compressed) í 223 R. Langar að prófa 75 grn Hornady kúlu með hleðslu sem er innan marka skv. WW síðunni. Hins vegar er kúlan það löng að hún er komin niður í púðrið. Hvernig er þetta framkvæmt. Er kúlunni bara þrykkt ofan í púðrið með dæjanum? Ausið nú úr viskubrunni ykkar.
Kv. Guðmundur Friðriksson
Guðmundur Friðriksson
User avatar
Birgir stranda
Posts: 37
Joined: 25 Apr 2012 22:05

Re: Compressed load

Unread post by Birgir stranda »

Ég er með Ruger 223 Rem. Hef í mörg ár hlaðið 25.9 gr vv133 með 50 gr sierra kúlu.
Þetta er heitasta hleðslan fyrir 50 gr í kladdanum, hylkið fullt og púðrið compressed.
Það virðast ekki fylgja því nein vandamál, hylkin endast vel og svoleiðis.
Þetta er líka það sem kemur best út í mínum riffli.
Birgir Guðmundsson,
Grundarfirði
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Compressed load

Unread post by maggragg »

Það er helst eitt sem þarf að varast, en það er að ef hylkið er of þjappað, þá getur það þrýst kúlunni út aftur og ef hún svo snertir rílur sem dæmi þá er voðinn vís ef hleðslan var heit fyrir og ekki gerð með það í huga að snerta rílur. Bara fylgja því sem hleðslubókin segir og fara varlega. Ég veit ekki hversu mikið má mest þjappa, hvort það sé í kringum 108 eða 110%
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
Stebbi Sniper
Posts: 492
Joined: 09 Jun 2012 00:58
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Compressed load

Unread post by Stebbi Sniper »

Einnig mà bæta við að ef þù ert með droptúbu à skammtaranum þà raðast púðrið betur í hylkið svo það er ekki víst að þú þurfir að pressa kúluna mikið ofan í púðrið. Það munar talsvert miklu à 6,5 x 284 hvað kemst mikið í hylkið.

Droptúba er svona rör niður úr skammtaranum... bara hugmynd! Farðu samt varlega eins og Maggi bendir à. Vinna sig hægt upp og fylgjast með þrýstings merkjum à hylkjunum.
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
Fiskimann
Posts: 55
Joined: 12 Oct 2012 10:03

Re: Compressed load

Unread post by Fiskimann »

Sælir félagar
Þetta er á svipuðum nótum og var búinn að lesa á netinu. Var samt ekki á heimasíðum sem ég treysti alveg. Þegar ég set í hylkin og er í vandræðum með pláss þá dripla ég púðrinu hægt úr vigtarskálinni. Munar töluvert um það. Hins vegar skilst mér að það komi á móti að púðrið pressast minna saman. Las einnig einnig eins og kom fram hér fyrir ofan að kúlan getur pressast aftur út. Einhver mælti með að mæla aftur eftir 24 tíma. Sjáum hvað setur. Hefur e-r prófað Akley improved, þeas að láta bora skothúsið lítilsháttar út. Munar þessum 3 grn af púðri sem vantar. Skilst að hylkin og hlaupið endist betur hvað sem til er í því.
Kv. Guðmundur Friðriksson
Guðmundur Friðriksson
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Compressed load

Unread post by gylfisig »

Ég var með 22-250 A.I. fyrir nokkrum árum síðan.
Það var ansi vel þjappað, í það. Ef ég man rétt, þá var ég að setja 46 eða 47 grs af Norma 204 í hylkið við 52 grs Sierra mk. Hraðinn var mikill, samkv töflu rúmlega 4000 ft.
Man að það brakaði í öllu draslinu, þegar kúlan fór ofan í kúfullt hylkið. Lenti ekki í vandræðum, nema að því leytinu að hylkin dugðu afar stutt með þessum heitu A.I. hleðslum, og ég gafst einfaldlega upp á að nota það. Skipti um hlaup, og fór þá í 6 BR.
Sá ekki tilganginn i þessum ofurhraða, versus slakri endingu hylkjanna. Reyndar varð ég laus við hylkjavesen þegar ég minnkaði hleðsluna, en þá var ég einfaldlega kominn á sama level og original 22-250. Þannig að tilgangurinn helgaði nú varla meðalið.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Compressed load

Unread post by E.Har »

Gylfi ég fór svipaða leið rett fyrir 1990 var með tvo 22-250, annar AI gamall sako þunghleyftur og sa skau betur þvi meira sem var sett ihann. Hinn win featherveigt og hann skaut ollu yfir 3200 fetum illa.
Skipti þeim ut, endaði næst i 6.5-55 ;-). rólegheit þar.

Man að eg var með rúmlega 20 cm dropptubu til að koma púðrinu i hylkin!
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Compressed load

Unread post by maggragg »

Mynd fengin lánuð af accurateshooter.com en hér eru sýnd hvað áhrif droptúbur m.a. hafa á það hvernig púður raðast í hylkin.

ImageImage
ImageImage

Heimild: http://bulletin.accurateshooter.com/201 ... mn-height/
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Compressed load

Unread post by Gisminn »

Ein smá spurning til þeirra sem þekkja. Ef maður er að kremja púðrið er maður þá ekki að breyta kornastærðini og þá eiginleikum púðursins?
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Post Reply