Sæll SindriSindri
Sælir aftur.
Það er ekki nóg að nota Butch og bursta þegar svo er komið að hlaupið er orðið eins og hjá mér og Sigga. Þá er það farið að þrengjast og það eina sem virkar er massi, það sést ekki meðn neinu móti að hlaupið sé skítugt og það er ástæðan fyrir því að ég endaði með hvellhettulausar patrónur v/yfirþrýstings.
Kannski má segja eftir á að bakslagið var komið vel yfir velsæmismörk áður og maður hefði átt að kveikja á perunni þar sem ég var hættur að geta skotið nema 10 skotum liggjandi. Eftir þetta finnst manni bakslagið úr hreinu og eðlilegu hlaupi á 7mm rem mag ekki vera merkilegt.
Var ekki hægt að sjá þetta með Bore Scope? Er þetta vandamál sem var hjá ykkur ekki það sem kallað er Carbon fouling?
Ég las þráð um þetta á accurateshoother.com um daginn þar sem einn náungi sem var með 6,5 x 47 riffil með Kriger hlaupi á. Hann var búinn að skjóta 1200 skotum úr honum þegar nákvæmnin fór að dala verulega.
Sá hafði aldrei notað bursta til að hreinsa riffilinn, heldur bara patch-a. Hann endaði á því að senda riffilinn til byssusmiðs sem talaði einmitt um þetta vandamál með Carbon fouling-u. Set hérna inn linkinn á þráðinn ef einhver hefur áhuga á því að lesa hann, mjög fróðlegur þráður um þetta efni:
http://forum.accurateshooter.com/index. ... =3797064.0
Ég myndi halda að hylki eins og 6,5 x 284 og 7 mm Rem Mag þurfi yfir höfuð meiri þrif en hylki eins og 6,5 x 55, 308 o.fl. Ég er svosem enginn sérfræðingur í þessum þrifa málum, en hef einmitt heyrt að það verði ærið verk að þrífa Carbon foulingu úr hlaupinu ef hún kemst á flug.
Gaman væri að vita hvort einhver vill deila með okkur sinni þekkingu á þessu vandamáli, því ég hef nú bara ekki nógu mikla reynslu til að miðla af sjálfur í sambandi við þetta.
Hvernig virkar þessi Massi sem þið settuð í hlaupið og hvernig fer maður að því að nudda honum í? Er ekki hætta á því að skemma hlaupið með þessu?