Hleðslugræjur

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Hleðslugræjur

Unread post by Gisminn »

Sælir var að fá þetta í hús svo kúlurnar ættu allar að vera jafnar ;)
http://www.sinclairintl.com/.aspx/pid=3 ... 14-Inserts
Var orðin leiður á að mæla frá oddi og sjá svaka mun á hverri kúlu.
Og það tók 10 daga frá því að ég pantaði og þar til það var í höndunum á mér á Blönduósi.
Heildarkostnaður með öllu 10723kr
Þannig að þeir sem ekki hafa svona verð ég ef ég finn góða formúlu að mæla 5-6 kúlur og fá meðalengd á þeim og gefa svo upp COL ekki satt :twisted:
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Hleðslugræjur

Unread post by maggragg »

Þetta er snilld. Hef sjálfur lengi ætlað mér að panta þetta ásamt Hornady Lock-N-Load OAL Gauge, en ef maður ætlar að mæla skot af einhverri alvöru er þetta eina leiðin. Þetta mælir svokallað "ogive" eða þann punkt á kúlunni sem snertir rílur fyrst. Þannig ef maður veit hvað hvar rílur byrja á rifflinum getur maður mælt mismunandi hleðslur en veit með þokkalegri vissu að kúlan er langt frá rílum. Þessi mæling er mikið nákvæmari en þessi hefðbunda COL þar sem kúluoddurinn er ekkert alltaf eins. Þú ert í góðum málum með þetta :D

Ætla að versla mér þetta fljótlega. Er að safna fyrir nýjum sjónauka núna en þegar það er búið þá held ég að þetta sé næst á listanum hjá mér 8-)
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Hleðslugræjur

Unread post by Gisminn »

Já og nú vantar bara til að klára fullkomnunar áráttuna og fá sér mikro kúlusetjara og nota bara grafít í staðin fyrir feiti þegar maður neckar þá losnar maður við að kúlurnar grói við hylkin.
Veit það af eigin raun
25 skot smurð = 9 skot gróin á 2 mánuðum
25 grafít = Ekkert skot gróið.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Hleðslugræjur

Unread post by maggragg »

Líst vel á þetta með grafítið. Hvar fær maður grafít, og seturðu það innan og utan á hálsin þegar þú neckar? Hvernig die'a notaru?
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Benni
Posts: 122
Joined: 16 Feb 2012 09:33
Fullt nafn: Benjamín Þorsteinsson
Location: Húsavík

Re: Hleðslugræjur

Unread post by Benni »

Sælir mér finnst einna mest skipta máli hvernig háls dæja maður er með, með Redding hef ég bara smurt innan í hálsinn en uppáhalds neck dæinn minn er Lee collet neck siser, hann er alveg frábær hönnun og þarf enga smurningu og maður getur ráðið hversu mikið maður minnkar hálsinn, plús hann kostar mjög lítið.

Annars er ég mjög spenntur að fá nýju Wilson dæjana mína næstu daga(=

Þetta hér er einnig mjög þægilegt til að finna heildarlengd útí rifflur.
http://www.sinclairintl.com/.aspx/pid=3 ... Depth-Tool

Kv Benni
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Hleðslugræjur

Unread post by Gisminn »

Ég keypti grafítið hjá sportbúðini uppi á krókhálsi og keypti tilbúna dollu með einhverjum kúlum sem grípa grafítið og þar setur maður hylkið og svo keypti ég mér aðra dollu með áfyllingu og samanlagt var verði'ð 3800kr ef ég man rétt allavega innan við 4000 kr og dugar vel yfir 1000 skot yrði ekki hissa ef það er ekki nær 2000 skotum og svo þarf bara að kaupa áfyllingu eftir það á 1800 kr ef verðið er óbreytt.
Og þetta er einfalt þrífur hylkið eins og þú vilt snýrð hylkinu á hvolf dýfir upp fyrir háls í grafitíið og í die´ann ég hef notað þetta bæði í lyman og redding og útkoman sú sama engin þvingun og allt voða ljúft og smurt og eins og ég sagði engin kúla sem er að bíta sig í brassið. Einum óvissuþætti færra hylkin eru öll jöfn hál eða hvað maður á að kalla það með grafítíinu. Ég nota samt klístrið ef ég er að fullforma þau
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Hleðslugræjur

Unread post by maggragg »

Takk fyrir þessar upplysingar. Ætla að fá mér svona. Ég er t.d. núna með hleðslur sem ég hlóð í fyrra. Það getur verið munur á ákomu úr nýhlöðnum hylkjum og svo þeim sem voru hlaðin fyrir löngu, einmitt vegna þess að kúlan "bítur" sig í brassið. Þetta gæti komið í veg fyrir það að hluta. Hefurðu eitthvað spáð í "neck tension"?
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Hleðslugræjur

Unread post by Gisminn »

Hehehe nei ég er ekki orðin það langt leiddur enn ;)
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Hleðslugræjur

Unread post by maggragg »

Er ekki heldur kominn út í það, en kannski einhvern daginn. Mikið fjallað um það erlendis og greinilega einhver partur af endurhleðslunni hjá þeim sem eru á kafi í þessu. Held að það sé betra að fara sér hægt og bæta einu við í einu :)
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Hleðslugræjur

Unread post by maggragg »

Er ekki heldur kominn út í það, en kannski einhvern daginn. Mikið fjallað um það erlendis og greinilega einhver partur af endurhleðslunni hjá þeim sem eru á kafi í þessu. Held að það sé betra að fara sér hægt og bæta einu við í einu :)
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Post Reply