Sælir.
Rakst á þetta í einum af slormiðlum frænda vorra. Eflaust hafa einhverjir skoðanir á þessu og mætti þá gjarnan rifja upp hina margrómuðu "Hringormanefnd". Verst að Palli Leifs skuli ekki reka nefið hér inn af og til, þetta væri eitthvað handa honum að kjamsa á.
http://www.kystogfjord.no/nyheter/forsi ... or-kystsel
Selveiðar Norðmanna
Selveiðar Norðmanna
Sindri Karl Sigurðsson
Re: Selveiðar Norðmanna
Já, Páll Leifson og hringormanefnd...
Ég fékk það skemtilega verkefni eitt sumarið fyrir 20 árum eða svo, að aðstoða Pál við selveiðar og vargaskytterí á Borgarfiði og Mýrunum. Lagði ég líka til bát, Theri 385 sem ég átti. Það var ansi blóðugt sumar. Yfirleitt setti ég Pál upp í sker og lónaði fyrir utan meðan hann beið eftir færinu. Síðan silgdi ég að selnum og goggaði hann. Man ég sérstaklega eftir útsel sem skotinn var við Miðfjarðarskerið. Við gátum enganvegin innbyrt skepnuna, þannig að við bundum hann aftaní. Var það rétt svo að 10 hestöflin hefðu það í land á móti norðangolunni.
Þetta var skemtilegt sumar en ég skaut ekki sel í nokkur ár á eftir.

Kveðja - Ólafur Ágúst Stefánsson