Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Nú fer að styttast í að græjurnar til að steipa kúlur komi að utan og hef verið að skoða hvar hægt sé að verða sér út um blý en ekki fundið neitt ennþá.
Veit einhver um eitthvað magn af blýi? td, gamlar sökkur, dekkjablý eða eitthvað svoleiðis sem hægt er að fá fyrir lítið? Helst fyrir norðan til að spara sendingarkostnað
Sælir.
Get mögulega útvegað þér dekkjablý skal kanna það fljótlega eftir helgi, hvað þarft þú mikið? og hvað liggur þér mikið á þessu gæti kænski komið þessu til þín frítt eða alla vega á Ak.
Og svona fyrir forvitni hvaða cal og þyngd á að steipa
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Jón það væri vel þegið, er ekkert ákveðið magn sem mig vantar, er að fara að steipa 140gr semi wadcutters og 148 wadcutters cal 358 fyrir 38 Special.
Planið var að koma sér upp smá lager af blýi með tímanum og allt er betra en ekkert því trillukarlarnir eru að sópa öllu blýi upp sem hægt er að komast í fyrir sökkugerð því þær eru orðnar svo hrikalega dýrar.
Jónas heldurðu að það sé ekki einhver skammbyssukallinn með gildru blýið í áskrift?
Icefox wrote:Jón það væri vel þegið, er ekkert ákveðið magn sem mig vantar, er að fara að steipa 140gr semi wadcutters og 148 wadcutters cal 358 fyrir 38 Special.
Planið var að koma sér upp smá lager af blýi með tímanum og allt er betra en ekkert því trillukarlarnir eru að sópa öllu blýi upp sem hægt er að komast í fyrir sökkugerð því þær eru orðnar svo hrikalega dýrar.
Jónas heldurðu að það sé ekki einhver skammbyssukallinn með gildru blýið í áskrift?
Við erum að undirbúa að moka miklu magni af blýi úr gildruni hjá okkur sem enginn einn hefur áskrift að frekar en annar. Ég veit samt ekki hvort þetta blý er mjög gott til þess að steypa kúlur úr þó er örugglega sjálfsagt að reyna það.
Þú gætir prófað að tala við Halla á Álftanesinu en hann hefur að ég held prófað að steypa kúlur úr þessu sem er í gildruni hjá okkur og lét ekki vel af því ef ég man rétt. Síminn hjá honum er: 892-9545.
Það eru alveg örugglega nokkur hundruð kíló af blýi í þessari gildru, hugsanlega eitthver tonn, sem þér er velkomið að fá ef þú getur nálgast þau.