Bjarndýra veiðar!
Bjarndýra veiðar!
Jæja félagar ég hef lengi átt mér þann draum að fella bjarndýr, sennilega á ég aldrei eftir að fá að fella ísbjörn þó það sé æðsta óskin(nema maður kanski flitji á Krókinn
). Getur einhver bent mér tengla hjá einhverjum sem bjóða uppá bjarndýra veiðar í kanada eða bandaríkjunum? Ætla að setja það á tíu ára planið að skjóta bangsa 
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
- Aflabrestur
- Posts: 490
- Joined: 25 Feb 2012 08:01
- Location: Sauðárkrókur
Re: Bjarndýra veiðar!
Sælir.
Prufaðu að bjóða Tómasi Árdal á Króknum góðan daginn tomas@mikligardur.is eða 852-4411 Hann er búinn að fara þarna út og fella bangsa og gæti beint þér í rétta átt.
Annars værir þú velkominn á krókinn.

kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
- Guðni Einars
- Posts: 31
- Joined: 25 Apr 2012 13:04
Re: Bjarndýra veiðar!
Ég fór með félaga mínum fyrir nokkrum árum til Nýfundnalands til svartbjarnaveiða. Við fengum hvor um sig tvo svartbirni, sá stærsti var um 450 pund. Veiðiþjónustan sem sá um ferð okkar heitir Tuckamore Lodge http://tuckamorelodge.com/ og er rétt hjá St. Anthony, nyrst í Nýfundnalandi. Það er ekki langt frá L'Anse aux Meadows þar sem Þorfinnur Karlsefni og Guðríður Þorbjarnardóttir bjuggu fyrst Evrópumanna í N-Ameríku og eignuðust Snorra Þorfinnsson. Ég skrifaði um þessa ferð í Skotvísblaðið. Við flugum í gegnum Halifax og þaðan til Deer Lake í Nýfundnalandi og vorum sóttir þangað.
Þú skalt endilega fara í svartbjörn, eigir þú þess nokkurn kost.
Þú skalt endilega fara í svartbjörn, eigir þú þess nokkurn kost.
Með kveðju,
Guðni Einarsson
Guðni Einarsson
- gkristjansson
- Skytta
- Posts: 250
- Joined: 02 May 2012 14:21
- Location: Ungverjaland
Re: Bjarndýra veiðar!
Ég hef verið þarna hjá þeim á Tuckamore Lodge og get mælt með þeim, gott fólk og góð aðstaða.
Er að fara aftur til þeirra núna í September þetta árið til að eltast við "Moose" og svartbjörn.
Er að fara aftur til þeirra núna í September þetta árið til að eltast við "Moose" og svartbjörn.
Kveðja,
Guðfinnur Kristjánsson
Guðfinnur Kristjánsson
Re: Bjarndýra veiðar!
Þakka svörin félagar nú er bara að byrja að plana 
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
Re: Bjarndýra veiðar!
Hérna er linkur á eina skemmtilega síðu sem er með veiðiferðir út um allan heim.
Það er þó allavega gaman að skoða myndirnar og láta sig dreyma.
http://mylla.no/
njótið
Það er þó allavega gaman að skoða myndirnar og láta sig dreyma.
http://mylla.no/
njótið
Árnmar J Guðmundsson