
Þessi 6,5-47 er alveg eftir minum óskum.
Hvaða lás er í grunnin þar?
E.Har wrote:Snirtilega gert![]()
Þessi 6,5-47 er alveg eftir minum óskum.
Hvaða lás er í grunnin þar?
Sæll AlfreðBc3 wrote:er hylkið turnað alveg niður á axlinar hjá þér? eða lítur það bara þannig út? annars flottir rifflar og endilega komdu með típuna á 22lr keppnisriflinum hjá þér
Skemmtileg sagaatlimann wrote: Við sömdum um verð og ég lét slag standa, þannig að nú er riffillinn komin "heim" og fer líklega aldrei aftur úr mínum höndum. En sem komið er hef ég ekki fellt neina bráð með honum, bara verið að skjóta uppá svæði í Höfnum, en ég gæti ekki verið sáttari með gripinn
Jæja nóg komið af rausi... læt hér 2 myndir fylgja með
Sauer 202 Classic, örvhentur
cal. 6,5x55
með Zeiss Victory Diavari 3-12 x 56 T*
Takk fyrir það,konnari wrote:
Skemmtileg saga![]()
Glæsilegur riffill og frábært gler á honum ! Þú færð ekki betri samsetningu fyrir veiðiriffil. Til hamingju með hann
atlimann wrote:Jæja verður meður ekki að vera með í þessum þræði.
Það er reyndar smá saga á bakvið það hvernig ég komst yfir þennan riffil, þannig er málið að í lok árs 2006 þá fór ég í Ellingsen og pantaði mér Sauer 202 örvhentan í cal.6.5x55, mér var sagt að það væri ca. 3ja mánaða bið eftir honum sem var bara í góðu lagi mínvegna.
Þrír mánuðir liðu og þá fór ég aftur í Ellingsen en þá var komið smá babb í bátinn, því að verksmiðjan úti hafði flutt og allar pantanir voru í einhverju rugli, þannig að þeir voru engu nær hvenær byssan myndi koma til landsins, ég hafð boðist til að borga inn á byssuna þegar ég pantaði hana en sá sem afgreiddi mig sagði að það væri óþarfi því hann þekkti til mín í gegnum starfsmann Ellingsen sem ég þekki. Mér var sagt að þetta myndi á endanum skila sér en enginn tíma setning var á því, þannig að ég kom reglulega í búðina til að taka stöðuna á málunum.
Svo fékk ég úthlutað hreindýri 2007 og þegar líða tók að tímabili þá bólaði ekkert á rifflinum, en þeir í Ellingsen lánuðu mér riffil og fór ég með hann á veiðar.
Árið leið og enn hafði riffillinn ekki skilað sér og var ég ekki sá eini í stöðunni því það höfðu verið pantaðir 5 örvhentir rifflar í hinum ýmsu calíberum og ég held að það hafi verið 2-3 í cal.6.5x55.
Árið 2008 var byssan ekki enn komin, ég fékk úthlutað öðru hreindýri og þurfti þá að leita annað með að fá lánaðan riffil, svo kom kreppa, ég missti vinnuna í lok ársins og þá var ekki lengur í myndinni að fara fjárfesta í riffli.
Í mars/aríl 2009 þá var ég að mæla göturnar og staulaðist inn í Ellingsen og viti menn þá var riffilinn kominn og var upp í hillu tilbúinn fyrir "mig"ég talaði við sölumanninn og spurði um þennan riffil og þá sagði hann að þetta væri sá síðasti, ég náttúrulega varð alveg veikur og starði bara í gegnum glerið og þurfti svo að bíta í það súra epli að ég var ekki að fara að eignast þennan riffil þarna á þessum tímapunkti. Og svo til að strá salti í sárin þá vandi ég komur mínar í Ellingsen næstu mánuðina bara svona til að tékka hvort hann væri ekki alveg örugglega enn til, en svo komu vonbrigðin í lok árs 2009, þá var búið að selja hann.
Þar með var þessari þrautargöngu lokið og ég gat hætt að spá í þessu.... þangað til í fyrra (2012), þá hringir hann Tóti Óla í mig og tjáir mér það að riffillinn "minn" sé auglýstur til sölu á annari sambærilegri netsíðu (þar sem menn koma yfirleitt ekki fram undir nafni).
Ég var nú ekki alveg að fara að kaupa mér riffil þá stundina en ég hef samt sem áður samband við manninn eftir að hafa hugsað málið í nokkra daga og hann var enn til sölu.
Ég spurði manninn hvenær hann hafði keypt riffilinn og hann sagði að henn hefði keypt hann nýjan í lok árs 2009, þannig að hér var riffillinn "minn" kominn og með mun betri sjónauka en ég hafði nokkurntíma ætlað mér að setja á hann.
Við sömdum um verð og ég lét slag standa, þannig að nú er riffillinn komin "heim" og fer líklega aldrei aftur úr mínum höndum. En sem komið er hef ég ekki fellt neina bráð með honum, bara verið að skjóta uppá svæði í Höfnum, en ég gæti ekki verið sáttari með gripinn
Jæja nóg komið af rausi... læt hér 2 myndir fylgja með
Sauer 202 Classic, örvhentur
cal. 6,5x55
með Zeiss Victory Diavari 3-12 x 56 T*
Þetta hefur gegnið bara mjög vel.jon_m wrote: Flottur riffill. Ég var búinn að skoða hann nokkuð oft í Ellingsen á sínum tíma, ef ég hefði skellt mér á hann er ég ekki viss um að þú værir með hann í dag. Ég gugnaði meðal annars af því að ég hélt að það gæti orðið erfitt að venjast örvhentum riffli eftir að hafa verið með rétthenta í 20 ár. Hvernig hefur það gengið ?
Ég fór svo með manni á veiðar í sumar sem var með nákvæmlega eins riffil og þá vaknaði áhuginn aftur. En er örvhent málið ?
kveðja
Jón M
Takk fyrir það ! Ég var nú svo heppinn að kaupa megnið af safninu fyrir hrunMagnus wrote:Flott byssusafn hjá Ingvari. Ég öfunda þigVæri gaman að vita hvernig sjónauka þú ert með á þeim. Það hljóta að vera nokkrar milljónar sem þú hefur fjárfest þarna.