Hreindýraleyfin og skilavefurinn

Allt sem viðkemur hreindýrum
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn

Unread post by iceboy »

Þú ert líka bara durgur..hehe
Til hamingju gamli
Árnmar J Guðmundsson
User avatar
Bowtech
Posts: 184
Joined: 11 Jan 2011 12:34
Fullt nafn: Indriði Ragnar Grétarsson
Location: Sauðárkrókur
Contact:

Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn

Unread post by Bowtech »

Ekki veit ég hvað menn eru að kvarta með skilavefinn, gekk hnökralaust fyrir sig bæði að skila tölum og sæka nýtt kort og dýr.
Last edited by Bowtech on 27 Jan 2013 19:32, edited 1 time in total.
Kv
Indriði R. Grétarsson.
Bogaskytta Cal.308
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn

Unread post by TotiOla »

Bowtech wrote:... gekk hnokralaust fyrir sig ...
Þetta hlýtur að vera afstætt hugtak :roll: Jahh, eða þú einn af hinum útvöldu ;) En við hljótum að geta verið sammála um að vefurinn lítur út fyrir að vera forritaður 1995 og virknin eftir því.

Þrátt fyrir að einn af hverjum tíu komist stóráfallalaust í gegnum þennan úrelta vef þá finnst mér þetta ekki boðlegt :x Gerum við ekki orðið meiri kröfur en það sem notendur?
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
Bowtech
Posts: 184
Joined: 11 Jan 2011 12:34
Fullt nafn: Indriði Ragnar Grétarsson
Location: Sauðárkrókur
Contact:

Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn

Unread post by Bowtech »

Já þetta tókst hjá mér í fyrstu tilraun. En ég verð að vera sammála að á köflum var vefurinn hægur. En svo er spurning hvort að það sé hýsíngaraðilinn en ekki kerfið sjálft sem er vandmálið, nú eða bæði.
Kv
Indriði R. Grétarsson.
Bogaskytta Cal.308
User avatar
gkristjansson
Skytta
Posts: 250
Joined: 02 May 2012 14:21
Location: Ungverjaland

Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn

Unread post by gkristjansson »

Ég vinn reyndar sjálfur (meðal annars) við svona lagað (hönnun og forritun á vef síðum) og ég held að þeir aðilar sem upprunalega hönnuðu og forrituðu þessar síður eru ekki lengur hjá UST og núna eru einhverjir nýir að reyna að breyta þessu (að sjálfsögðu á síðustu stundu) og kunna ekki alveg inn á hvernig þetta all virkar (eða á að virka) þannig að allar breytingar eru erfiðar......
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson
Árni
Posts: 145
Joined: 23 Jan 2013 11:14
Fullt nafn: Árni Ragnar

Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn

Unread post by Árni »

Það er bara enginn hæfur að sjá um þennan vef, það þarf ekkert að fegra það.
Að það standi hér og það að það megi alls ekki ýta á enter hér er bara skýr leið að sjá að það er enginn að sjá um þennan vef.
Árni Ragnar Steindórsson
1337@internet.is
S: 666-0808
User avatar
gkristjansson
Skytta
Posts: 250
Joined: 02 May 2012 14:21
Location: Ungverjaland

Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn

Unread post by gkristjansson »

Kannski ekki alveg sammála um "...að enginn hæfur að sjá um þennan vef...", ég held að það sé fullt af góðum mönnum sem eru alveg hæfir um að sjá um svona lagað.

Hins vegar held ég að, því miður, að við erum minnihluta hópur og hún Svíndís er ekki að eyða of milklum kröftum (fjármunum) í það að þjóna þessum hluta af hennar starfi........
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson
User avatar
gkristjansson
Skytta
Posts: 250
Joined: 02 May 2012 14:21
Location: Ungverjaland

Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn

Unread post by gkristjansson »

Bara rétt til að bæta við:

Ég náði (einhvern veginn) að bæði senda inn veiðiskýrslu, sækja um veiðikort og hreindýr en ég persónulega er ekki svo viss um að þetta hafi gengið rétt að þannig að ég senti tölvupóst á 'veidistjorn@umhverfisstofnun.is' um að ég vildi fá staðfestingu um að þetta hafi nú skilað sér rétt til þeirra (ekki gaman að halda að maður hafi sótt um hreindýr og veiðileyfi en er ekki satt / rétt)
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn

Unread post by TotiOla »

gkristjansson wrote:ég senti tölvupóst á 'veidistjorn@umhverfisstofnun.is' um að ég vildi fá staðfestingu um að þetta hafi nú skilað sér rétt til þeirra (ekki gaman að halda að maður hafi sótt um hreindýr og veiðileyfi en er ekki satt / rétt)
Ég fékk staðfestingu senda, bæði fyrir skil á veiðiskýrslu/umsókn um veiðikort sem og umsókn á hreindýraleyfi :|

Það kom reyndar alveg góðum 1-2 tímum eftir að ég skilaði en ef þú hefur ekki fengið svoleiðis þá skaltu fylgja þessum póstum þínum eftir (eða skoða SPAM-filterinn á pósthólfinu þínu) ;)
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
gkristjansson
Skytta
Posts: 250
Joined: 02 May 2012 14:21
Location: Ungverjaland

Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn

Unread post by gkristjansson »

Sæll,

Ég fékk reyndar staðfestingu um að ég hefði skilað inn veiðiskýrsu (2012) en þar sem síðan þar sem ég fyllti inn tölur var að sýna ýmis ártöl þá fannst mér réttast að bara fá staðfestingu um að ég hafi skilað rétt.

Ég reyndi að fara aftur inn á skilavefinn bara til að sjá skilaboðin "Þú ert þegar búinn að skila inn...." 2012" tölum en þegar að vefsíðan bara fraus aftur og aftur þá ákvað ég að senda tölvupóstinn.

Eins og ég reyndi að segja hér áður, þá finnst mér betra að vera viss heldur en að hafa trú á því að þetta (skrýtna) apparat virki.
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson
Post Reply