Ætli ég blandi mér ekki inn í þessa umræðu.
Staðan er ennþá sú að ekki er komin á skylda til að skrifa undir nafni en nýjir notendur geta ekki skráð sig inn öðruvísi. Hinsvegar er mælst til þess að skrifa undir nafni og það hefur virkað mjög vel og skilað góðu spjalli. Hinsvegar er miður ef leiðindi skapast út frá nafnleysinu einu og sér en ekki innihaldi hins nafnlausa póstst. Ég hef miðað við að meðan nafnlausir fylgist með, spyrjir spurninga eða annað þessháttar teldi ég það ekki ástæðu til afskipta. Hinsvegar ef haldið er fram umdeildum fullyrðingum, sem þarfnast rökstuðnings er það ekki ásættanlegt öðruvísi en undir nafni, þar sem tröll nota þá aðferð til að skapa leiðindi.
Til stendur að taka þetta mál fyrir á fundi hjá félaginu og fara yfir alla þætti þess og verða allar skoðanir teknar til greina. Skoðanakönnun er afgerandi í þessu máli en farið verður yfir önnur atriði eins og lagaleg og svo hvaða reglur gilda um þá sem skráð höfðu sig fyrir breytingar auk þess sem breyta þarf notendaskilmálum.
Þannig að til að allt sé á hreinu þá set ég eftirfarandi reglur sem ég mun miða við þangað til að niðurstaða verður komin.
- Ekki er skylt að skrifa undir nafni á þeim þráðum sem ekki taka það sérstaklega fram en allir hvattir til þess áfram.
- Nafnlaus skrif sem þarfnast rökstuðnings, og telja má að leiði til mikilla skoðanaskipta getur verið eytt án frekari rökstuðnings.
- Ef notendur telja nafnlaus skrif vera óeðlileg eða uppfylla ofangreinda skilgreiningu skulu þeir tilkynna póstinn/notanda með þar til gerðum hnappi.
- Ef fimm tilkynningar berast um sama notanda verður farið yfir málið og eftir atvikum pósti eytt eða notandi bannaður tímabundið eða varanlega eftir ástæðum.
- Virðum alla
Þessar reglur gilda þar til að ákvörðun hefur verið tekin um hvaða stöðu spjallborðið mun hafa varðandi þessi mál. Ég vona að þið virðið það við mig að ég gefi mér tíma til að taka ákvörðun um þetta og bera þetta undir stjórnina.
Berum virðingum fyrir öllum. Það er lykilatriðið og þeir fáu sem kjósa nafnleysi hafa yfirleitt ekkert illt í hyggju enda verður gripið inní ef annað kemur í ljós. Þeir eru þó áfram hvattir til þess að skrifa undir nafni því að sjálfsögðu er það skemmtilegra.