Ég er nú ekki tíður penni hér en hef eina spurningu til þeirra leiðsögumanna sem þekkja. Þannig er mál með vexti að ég fór í fyrra á svæði 3, Loðmundarfjörð sem farþegi með öðrum sem átti hreindýraleyfi, gríðarlega fallegur fjörður Loðmundarfjörðurinn. Af öðrum fjöllum ólöstuðum varð ég næstum dolfallinn að sjá á leið minni Hvítserk. Hvílíkt fjall frá réttu sjónarhorni! Þar áður hafði ég verið sem skytta og eða farþegi, hér og þar á svæði 2
Nú langar mig til að sækja um svæði 3 aftur en í ljósi frétta þá heyrist mér að dýrin séu að færa sig yfir á 6 og 7 vegna beitar. Á maður að hlaupa eftir svona fréttum eða er þetta kannski engin frétt og nóg að hafa á svæðum eins og 2 og 3
Allt er þetta nú sagt og pælt í þeirri von um að vinna í lottoinu góða seinna í mánuðinum

Með kveðju
Björn Róbert Jensson