Tikku skeptisbreitingar

Allt sem viðkemur byssum
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Tikku skeptisbreitingar

Unread post by karlguðna »

Sælir allir, Hvernig er það með ykkur Tikku menn sem eigið varmint útgáfuna , hafið þið farið út í það að setja á hana stillanlegan skeptis-kinn-púða eins og er á super varmint útgáfunni. langar að bæta mína tikku því mér fynnst kinnin ekki liggja nógu stöðug við skeptið, væri gaman að "heyra" frá einhverjum sem hefur farið út í þetta .
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Tikku skeptisbreitingar

Unread post by TotiOla »

Sæll Karl

Ég er með Varmint Tikku en hef ekki farið út í þessa breytingu. Mig langar þó, seinna meir, að fá mér flott skepti í líkingu við það sem menn hérna (t.d. Gísli Snæ o.fl. með GRS skepti) hafa verið að setja undir Tikkur.

Mætti ég forvitnast, hvað þú ert með stóra framlinsu á sjónaukanum hjá þér og hvort hún liggur alveg við hlaup? Sjálfur er ég með 50mm linsu og rétt undir 5mm niður í hlaup. Með þetta setup hef ég ekki fundið fyrir þessu með "óstöðugleika við skepti".
Mbk.
Þórarinn Ólason
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Tikku skeptisbreitingar

Unread post by Gísli Snæ »

Myndi bara fá mér nýtt skefti - GRS eða KKC uppi í Hlað.
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
User avatar
T.K.
Posts: 166
Joined: 03 Sep 2010 20:54

Re: Tikku skeptisbreitingar

Unread post by T.K. »

Fyrir forvitnis sakir, þarf ekki að sækja um leyfi frá yfirvaldinu ef menn ætla að breyta skeptinu?
Elskið friðinn og strjúkið kviðinn
Þórir Kristinsson
Árni
Posts: 145
Joined: 23 Jan 2013 11:14
Fullt nafn: Árni Ragnar

Re: Tikku skeptisbreitingar

Unread post by Árni »

Nei þarft ekki leyfi til þess.
Árni Ragnar Steindórsson
1337@internet.is
S: 666-0808
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Tikku skeptisbreitingar

Unread post by TotiOla »

Gísli Snæ wrote:Myndi bara fá mér nýtt skefti - GRS eða KKC uppi í Hlað.
Tek undir þetta með Gísla. Ég er að reyna að safna ;) En ef þú hefur ekki tök á +100 þús. kr. fjárfestingu í þetta þá er alltaf möguleikinn að reyna að fá SuperVarmint skepti hjá einhverjum sem er að uppfæra, þó sá markaður sé kannski ekki stór hér á landi :)

Á meðan þú leitar gætir þú fengið þér, eða útbúið, lausann/áfestanlegan púða í réttri hæð fyrir þig. Passaðu þig bara að gera ekki þau mistök að ætla að festa hann á til frambúðar því þá kemur þú að öllum líkindum ekki boltanum í/úr né hreinsistöng í gegnum riffilinn, með góðu móti.
Mbk.
Þórarinn Ólason
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Tikku skeptisbreitingar

Unread post by karlguðna »

Sælir félagar, jú Tóti ég er með nákvæmlega sömu uppstillingu og þú, jú og GRS er stefnan, alveg svaka flott skepti og hljóta að vera góð með öllum þessum fínu stillingum. það að þetta sé vandamál hjá mér með kinnpúðann er kannski orðum aukið en mér "liði" betur ef ég hefði betri "kinnstöðu" ef hægt er að nota það orð Reyndar er ég svo grænn í þessum riffil málum að ég áhvað að lesa leiðbeiningarnar sem fylgja kíkinum (eitthvað sem karlmenn gera sjaldan) og viti menn eftir að ég var búinn að stilla parallax adjustment og fl. þá var þetta "vandamál" ekki eins alvarlegt og að mér fannst áður, :oops:
en takk fyrir ykkar innlegg ,það er gott að hafa aðgang að jafn áhugasömum mönnum og maður er sjálfur og sem eru alltaf tilbúnir að gefa góð ráð.
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
Magnus
Posts: 31
Joined: 18 Feb 2013 15:23
Fullt nafn: Magnús Sigmundsson

Re: Tikku skeptisbreitingar

Unread post by Magnus »

Nú er svipað verð á að kaupa tikku varmint og setja grs skepti á hana og að kaupa sako varmint sem er með flottu skepti (að mínu mati). Hvort ætli sé betri riffill?
Magnús Sigmundsson
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Tikku skeptisbreitingar

Unread post by TotiOla »

Ef beddun fylgir GRS þá mundi ég setja minn pening á Tikkuna ;) Annars er "betra" afstætt þegar mismunandi aðilar koma að ferlinu og hafa mismunandi smekk og þarfir.
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
kúla
Posts: 32
Joined: 11 Mar 2012 15:45
Location: Vopnafirði

Re: Tikku skeptisbreitingar

Unread post by kúla »

Komiði sælir ég er með svona tikku varmint með súper varmint skefti þetta er að koma mjög vel út
og svo er búið að setja rail ofan á sporið fyrir kíkirinn svo hann liggur 2mm frá hlaupinu.
cal 6.5x284
Kveðja
Sveinn A Sveinsson
Vopnafirði
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Tikku skeptisbreitingar

Unread post by karlguðna »

súper vamintinn er með bæði basa og stillanlegan kinnpúða frá framleiðanda, ég er kominn með basa en hefði viljað fá stillanlegan kinnpúða svona þangað til að maður hefur efni á grs skepti . segðu mér hækkar þú þinn púða á skeptinu??
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Tikku skeptisbreitingar

Unread post by Gísli Snæ »

Svona er minn í dag - rail og sjónauki með 50 mm framlinsu. Ég er að hækka kinnpúðann þegar ég skýt.

Image
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
User avatar
kúla
Posts: 32
Joined: 11 Mar 2012 15:45
Location: Vopnafirði

Re: Tikku skeptisbreitingar

Unread post by kúla »

Ég hækka um 2 klikk þá passar augað við krossinn í kíkinum.
Kveðja
Sveinn A Sveinsson
Vopnafirði
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Tikku skeptisbreitingar

Unread post by karlguðna »

Gísli rosalega er þessi flottur , maður verður bara að fara stynga undan eitthvað af mjólkurpeningunum þegar lítið ber á og verða sér út um svona skepti. en hvaða cal. er þessi ég sé þú ert með brake, er ekki dempari aftan á þessu skepti ? er það þá ekki að duga ?
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Tikku skeptisbreitingar

Unread post by Gísli Snæ »

Hann er í 260 Rem Karl. Jú það er mjög góður púði á skeftinu en ég ákvað að fá mér bremsu líka þannig í dag hoppar hann nánast ekkert og slær mjög lítið.
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Tikku skeptisbreitingar

Unread post by karlguðna »

verulega smart . :D :D hérna eru nokkur skepti sem hægt væri að brúka.

https://tikkaperformance.com/index.php? ... uct_id=405
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
Post Reply