Svæði 9 lokað fyrir hreindýraveiðum

Allt sem viðkemur hreindýrum
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Svæði 9 lokað fyrir hreindýraveiðum

Unread post by maggragg »

Umhverfisráðuneytið hefur lokað fyrir veiðar á svæði 9 og fá þeir sem ekki hafa veitt dýr þar ennþá endurgreitt frá umhverfisstofnun.

Tilkynning umhverfissráðuneytisins:

„Í samræmi við tillögu Umhverfisstofnunar verður veiðisvæði 9, Hornafirði, áður Mýrahreppi og Borgarhafnarhreppi (Suðursveit), lokað fyrir allar hreindýraveiðar frá og með 21. ágúst 2010.

Vegna lokunarinnar skal Umhverfisstofnun endurgreiða veiðileyfisgjald þeim veiðimönnum sem ekki hafa náð að veiða samkvæmt úthlutuðum veiðiheimildum á þessu veiðitímabili.

Tillaga þessi er samkvæmt 8. gr. reglugerðar um stjórn hreindýraveiða, nr. 486/2003, og er til komin vegna upplýsinga um verulega fækkun á fjölda dýra á veiðisvæði 9 frá því að auglýsing um hreindýraveiðar fyrir árið 2010 var birt í Lögbirtingarblaðinu 21. janúar 2010.

Breyting þessi er auglýst í samræmi við 6. gr. reglugerðar nr. 486/2003 um stjórn hreindýraveiða, að fenginni tillögu Umhverfisstofnunar, sbr. 14. gr. laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum með áorðnum breytingum.“
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Post Reply