Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Allt sem viðkemur byssum
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Unread post by Gísli Snæ »

Jæja, það tók ekki langan tíma. Eftir að hafa ákveðið skyndilega í upphafi vikunnar að mig langaði til að uppfæra sjónaukann á Tikkunni þá skellti ég inn auglýsingu þar sem ég auglýsti hinn frábæra Vortex Viper PST til sölu - bara til að athuga hvort að áhugi væri fyrir honum.

Það var mikill áhugi, og fengu færri en vildur. T.d. var kaupandinn að ganga út um dyrnar hjá mér þegar að sá síðasti hringdi og var sár svekktur að hafa misst af Vortexnum.

En þegar að hann var farinn var næsta verkefni að kaupa nýtt gler og eftir smá umhugsun varð niðurstaðan Nightforce NXS 5,5-22x56 með Zero Stop og High Speed Turrets. Honum var smellt á í dag og þetta er niðurstaðan. Ég er sáttur :)

Image
Afsakið - myndin tekin á farsíma.
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
User avatar
skepnan
Skytta
Posts: 256
Joined: 01 Apr 2012 12:35

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Unread post by skepnan »

Til lukku með nýja gripinn :D

Kveðja Keli
Þorkell D. Eiríksson
keli.skepnan@gmail.com
Fljótsdalur í Fljótshlíð
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Unread post by Gísli Snæ »

Verst að ég er að fara á sjóinn á eftir og kem ekki heim fyrr en í apríl
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Unread post by Veiðimeistarinn »

Gísli það er gaman að sjá að þó þú eyðir kannski miklum tíma og fé í riffilinn þinn, þá er eldhúsið samt ekki látið sitja á hakanum, það er líka toppgræjað...... :lol:
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Unread post by Gísli Snæ »

Toppgræjað :) Mig vantar ísskáp - frystiskáp, annan ofninn og háf. Verð að fara að eyða minna í byssur.
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Unread post by konnari »

Gísli ! Í hvaða caliberi er aftur riffillinn þinn ?
Kv. Ingvar Kristjánsson
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Unread post by karlguðna »

iss eldhúsið má bíða !! en byssan er must , :lol:
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
User avatar
atlimann
Posts: 37
Joined: 21 Jun 2012 18:23
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Unread post by atlimann »

Djöfull er þetta fallegt verkfæri í allastaði... riffill og gler
Atli Már Erlingsson
Verkfæri
Benelli Super Black Eagle II Lefty
Remington 870 SPS Camo
Sauer 202 Classic cal. 6.5x55 Lefty m/ Zeiss Victory Diavari 3-12 x 56 T
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Unread post by Gísli Snæ »

260 Rem Ingvar
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
Magnus
Posts: 31
Joined: 18 Feb 2013 15:23
Fullt nafn: Magnús Sigmundsson

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Unread post by Magnus »

Mjög flottur riffill.
Magnús Sigmundsson
User avatar
Stebbi Sniper
Posts: 492
Joined: 09 Jun 2012 00:58
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Unread post by Stebbi Sniper »

Þetta tónar allt ákaflega vel saman... Fallegur riffill með flottan sjónauka, í úrvals caliberi... Þetta getur ekki annað en virkað!!! ;)

Það er mjög gaman að sjá hvað þú ert búinn að leggja mikinn metnað í þennan riffil Gísli!
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Unread post by Gísli Snæ »

Takk Stefán. Þarf nú ekkert að segja ykkur hvernig þessi della er :). Maður fær þetta alveg á heilann og hættir ekkert fyrr en maður verður sáttur. Og þegar maður er orðinn sáttur, þá fer maður strax að hugsa um hvað maður getur betrum bætt. Klikkun :)
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Unread post by konnari »

Gísli Snæ wrote:Takk Stefán. Þarf nú ekkert að segja ykkur hvernig þessi della er :). Maður fær þetta alveg á heilann og hættir ekkert fyrr en maður verður sáttur. Og þegar maður er orðinn sáttur, þá fer maður strax að hugsa um hvað maður getur betrum bætt. Klikkun :)
Láttu við þekkja það.....þetta er ótrúlegt :mrgreen:
Kv. Ingvar Kristjánsson
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Unread post by TotiOla »

Gísli Snæ wrote:Maður fær þetta alveg á heilann og hættir ekkert fyrr en maður verður sáttur. Og þegar maður er orðinn sáttur, þá fer maður strax að hugsa um hvað maður getur betrum bætt. Klikkun :)
Maður getur svo sannarlega tekið undir þetta :D

En virkilega flottur riffill, eins og ég hef sagt áður. Alveg til fyrirmyndar og er að mörgu leiti fyrirmynd þess sem mig langar að gera við Tikkuna mína :mrgreen:
Mbk.
Þórarinn Ólason
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Unread post by Gísli Snæ »

Bara að brjóta sparibaukinn Tóti og skella sér upp í Hlað og kíkja á nýtt skefti. Þú þarft ekki meira - þinn er það flottur nú þegar.

Virtist vera mikið úrval af GRS þegar ég fór og verslaði sjónaukann, svört, rauð, blá.
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Unread post by Spíri »

Einkar flott tikka hjá þér Gísli ein spurning, hvaða krómhringur er á milli hlaupsins og lássins? og annað pantaðiru botnplötuna og magasínið frá vinum okkar hjá tikkaperformance??
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna

Unread post by Gísli Snæ »

Heyrðu Þórður - þetta er nýtt recoil lug. Arnfinnur setti það á þegar hann beddaði riffilinn. Og já botnplatan og magasínið var pantað frá www.tikkaperformance.com
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
Post Reply