Hvað verksmiðju skotum mæla menn með í 6,5x55

Almennt um veiði eða veiðar á bráð sem ekki eru í undirflokkunum
bjarniv
Posts: 32
Joined: 04 Mar 2013 20:59
Fullt nafn: Bjarni Valsson

Hvað verksmiðju skotum mæla menn með í 6,5x55

Unread post by bjarniv »

Sælir,

Hvað verksmiðju skotum mæla menn með í 6,5x55 ef ætlunin er að haus skjóta hreindýr?
Það þyrfti líka að vera nothæft í skrokk skot ef aðstæður leyfðu ekki haus skot.
Kveðja Bjarni Valsson
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Hvað verksmiðju skotum mæla menn með í 6,5x55

Unread post by gylfisig »

Ætli Norma sé ekki skársti kosturinn.
Annaðhvort með 120 grs Nosler bt kúlu, eða þá með 140 grs Nosler Partition. Einnig var hægt að fá 6,5x 55 með 156 grs Norma Oryx kúlu.
Persónulega veldi ég skot með 120 grs nosler bt.
Og mjög persónuleg...., þá myndi ég, fá einhvern til að hlaða fyrir mig, ef ég hef ekki aðstöðu eða kunnáttu til að gera það sjálfur, og reynsluskjóta síðan hleðslunum. :D
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: Hvað verksmiðju skotum mæla menn með í 6,5x55

Unread post by iceboy »

ég er sammála gylfa.

Um að gera bara að hringja í Hlað og þeir hlaða fyrir þig. Þú færð patrónur og allt saman þar og getur þá haldið þig við sömu hleðsluna ár eftir ár.
Árnmar J Guðmundsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Hvað verksmiðju skotum mæla menn með í 6,5x55

Unread post by Veiðimeistarinn »

Bjarni, það er ekki spurning! Norma með 120 gr. ballistik tip kúlum! Síðan er hægt að fá sér Norma með 120 gr. full metal jacet til æfinga, ódýr skot 50 stk. í pakka, það er mjög sambærileg hleðsla í þessum skotum svo þau setja næstum eins.
Þessar 120 gr. ballistic tip kúlur henta mjög vel til að skjóta á haus og ég leyfi reindar aldrei hausskot nema með varmint kúlum svo sem ballestic tip, V-Max eða einhverju svipuðu stöffi.
Síðan er þessi kúla líka fín á brjósthol, þá er hún sett vel fyrir aftan bóginn rétt ofan við mitt dýr, það er hreint lungnaskot og skemmir ekki par.
Það verður bara að passa að þessi kúla hitti alls ekki á bógbein í brjóstholsskoti vegna þess að þá skemmir hún svo mikið, hún skemmir meira en 100 gr. kúla sömu sortar vegna þess að hún er þyngri og heldur betur slagkraftinum.
Ég hef ekki góða reynslu af hlöðnum skotum frá Hlað, þeir eru tregir til að hlaða fyrir menn það sem þeir eru beðnir um.
Margir af mínum veiðimönnum hafa farið til þeirra í Hlað og beðið um hleðslur að minni forskrift, með léttum kúlum og hraða yfir 3000 fet.
Þessir menn hafa undantekningalaust fengið neitun og þeim sagt að það sé ekkert vit í svona hleðslum á hreindýr og þeim verið boðið upp á að hlaða þungar kúlur á litlum hraða og þeim sagt að það sé málið.
Ég mun aldrei fást til að ráðleggja mönnum að fara til Hlaðsmanna og fá hlaðið þar.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
bjarniv
Posts: 32
Joined: 04 Mar 2013 20:59
Fullt nafn: Bjarni Valsson

Re: Hvað verksmiðju skotum mæla menn með í 6,5x55

Unread post by bjarniv »

Takk fyrir þetta strákar. 120 grs ballistik tip er greinilega málið. Og takk fyrir ábendinguna með Norma FMJ skotin, þá er bara að fara og ná sér í pakka og fara að æfa sig. :D
Kveðja Bjarni Valsson
Post Reply