
Buxnaskálmar.
Buxnaskálmar.
Þar sem að plássið í skápnum mínum er af skornum skamti (og fer minnkandi) brá ég á það ráð að klippa skálmar af götóttum gallabuxum og bregða yfir rifflana til þess að þeir yrðu ekki fyrir rispum þegar að maður tekur þá út. Reyndar bjó ég einmitt til rest undir afturskeptið úr gallabuxnaskálm en þá hugmynd gaukaði öðlingurinn Gylfi Sig, Húsvíkingur að mér og er ég með grjón í skálminni
og virkar það vel.

- Attachments
-
- skálmar.jpg (20.47 KiB) Viewed 2017 times
-
- photo.JPG (39.89 KiB) Viewed 2017 times
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
Re: Buxnaskálmar.
Ég er einmitt með svona "rest" úr gallabuxum en ég fyllti þær með ösku enda ófá tonnin sem ég hef aðgang að hérna
Reyndar mótast hún ótrúlega vel þar sem hún er svo fínkornótt.
Kveðja Keli


Reyndar mótast hún ótrúlega vel þar sem hún er svo fínkornótt.
Kveðja Keli
Re: Buxnaskálmar.
Keli, þetta er klárlega góð bissness hugmynd markaðssetja fyrir Westan
"rest for rifles, with Pure Icelandic volcanic ash.

"rest for rifles, with Pure Icelandic volcanic ash.

Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
Re: Buxnaskálmar.
Já segðu Þórður, ég gæti grætt alveg "böns off monní"
Kveðja Keli



Kveðja Keli
Re: Buxnaskálmar.
Mikið kannast ég við þetta nú þegar þröngt er orðið í skápurinn ! Rak fallega Sakoinn minn í hilluna þegar ég tók hann út úr skápnum um daginn og fékk þessa fínu dæld í skeftiðSpíri wrote:Þar sem að plássið í skápnum mínum er af skornum skammti (og fer minnkandi) brá ég á það ráð að klippa skálmar af götóttum gallabuxum og bregða yfir rifflana til þess að þeir yrðu ekki fyrir rispum þegar að maður tekur þá út.

Nú er ég búinn að setja fyllt tappa á hornið á hilluna sem er inn í skápnum

Kv. Ingvar Kristjánsson
Re: Buxnaskálmar.
Kanski ekki alveg tengt en þó tengt ef þeir sem eru að spá í byssuskápum fyrir rifflana sína þá skulu þeir passa að þeir séu nógu djúpir ég rispaði kíkinn minn með núningi í mínum fyrsta skáp
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson