

Varðandi BC stuðullinn, aftur, þá finnst mér samt alveg magnað að framleiðendur kúlunnar skuli láta einhvern "einyrkja" standa sér framar í raunmælingum á kúlunum sínum. Maður sér alveg fyrir sér að menn sem eru all-in í þessu myndu jafnvel færa sig (hætta að nota kúlur) frá framleiðendum sem væru ekki að gefa "réttar upplýsingar" (nothæfar/nákvæmar) frá sér. Heldur bara það sem liti best út á blaði eða eitthvað sem væri fengið út með ónákvæmum útreikningi.
En það er kannski lítill hluti af öllum riffileigendum sem fer svo djúpt í þetta sport að pæla í aukastöfum af BC-stuðli og þeir sem það gera hafa líklega flestir komist í tæri við Bryan Litz og hans niðustöður

Varðandi hvort þetta sé over-kill á 100-200m eins og Gylfi bendir kannski réttilega á, þá hef ég bara ekki ennþá rekist á (prófað) neina sem skýtur betur á 100m úr mínum 6.5x55 en þessa Lapua Scenar 139 gr. (sem er auðvitað ekki titluð veiðikúla), en ég á þó nóg eftir að prófa úr allri flórunni. T.d. Berger hunting kúlurnar. Annars var, eins og áður kom fram, 140 gr. Sierra GameKing að koma mjög vel út líka. Man þó ekki hvaða BC stuðul hún hefur.