Smá spurningu varðandi magasin í Tikku
Er með Tikku Tactical í 308 og magasínið virðist ekki taka lengri skot en 71mm.
Tók ekki eftir þessu fyrr en í dag þar sem ég hef aðeins hlaðið einu skoti í einu.
Ákvað að prófa að setja í magasínið og þá komust skotin ekki í.
Er að hlaða Scenar kúlur í col 72,5 mm og Nosler Ballistic Tip í col 73,5 mm.
Skiptir svo sem ekki máli í pappanum en vildi gjarnan hafa fleiri skot tilbúin í veiðinni
Kannast einhver við vandamálið og hefur jafnvel lausn á því annað en að sökkva kúlunum dýpra í hylkið.
Kveðja Ólafur
Magasin í Tikku Tactical
Re: Magasin í Tikku Tactical
Svolitið sérstakt, þar sem standard kúlusetning fyrir 308 er gefin upp i flestum ef ekki öllum hleðslubókum 71,12 mm.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Re: Magasin í Tikku Tactical
Tvær leiðir
Farðu og keyptu þér Tikka magasín fyrir lengri skot - t.d. magasín fyrir 270 Win
Einnig getur þú gert eins og ég og skipt um botnplötu og magasín - færð það t.d. hér www.tikkaperformance.com - en það kostar slatta