Gott dæmi um það eru menn sem stunda Benchrest skotfimi. Í dag fékk gott tækifæri til að fylgjast með því og deildi ég skothúsi með þremur Benchrest skyttum. Eitt gekk þó jafnt yfir okkur alla sem vorum að skjóta í Hafnarheiði og gerði Kári ekki mannamun þar. Vindur var af Suð-Austri og missterkar hviður með.
Það voru ekki kjör aðstæður til að slá met eða reyna nýjar hleðslur. En ég fékk góða upprifjun á því hvernig veiðihleðslan mín færir sig til undan vindinum og er sáttur með mitt.
Ég gaf mér góðan tíma til að fylgjast með því sem skotfélagar mínir voru að gera ásamt því að gefa græjum þeirra góðan gaum. Ekki get ég annað sagt en að ég dáist af eljusemi og búnaði Bensaranna. Það er talsvert á sig lagt til að gera gott betra og í stuttumáli og einfaldaðri mynd þá voru þeir að gera á 300 metrum það sem ég er sáttur með á 100 metrum. Reyndar færi ég þetta aðeins í stílinn

Enda tel ég sanngjarnt að þeir fái eitthvað fyrir aurinn og alla þá vinnu sem liggur þar að baki. Svo kom mér Það Spánskt fyrir sjónir að horfa á þá góna á vindrellu og taka skotið á sama tíma. Fyrir utan mun á græjum og tilfæringum við skotfimina áttum við það allir sameiginlegt að setjast reglulega niður með heitt í bolla. Gleyma amstri dagsins og hafa gaman að því að skjóta hver með sínu nefi.
Ekki á ég von á því að ég komi til með að hella mér í þessa dellu og held mig áfram við veiðiriffla með það fyrirheit að fara oftar og æfa meira. Samt er það nú svo að þeir sem eru tilbúnir til að fara alla leið ryðja brautina fyrir okkur hina. Það má kannski líkja þessu við Formúluna þar sem vélar, smurolíur og hjólbarðar þróast svo yfir í að vera aðgengileg vara fyrir okkur hina. Við skotmenn fáum betri lása, gler og ný skothylki til að leika okkur með.
Þegar ég var krakki fékk ég ásamt systir minni að skjóta af gömlum 22 Rússa sem afi okkar átti. Sjónaukin var undarleg smíð og í grennsta lagi. En það skipti okkur ekki máli því að við höfðum ánægju af því að hitta eitthvað og ég játa það glaður í dag að systir var betri skytta. Með það að leiðarljósi hvet ég alla til að taka vel á móti þeim sem eru að taka sín fyrstu skref og samgleðjast hverjar svo sem græjurnar eru. Svo eru það þeir sem vilja fara alla leið og feta ekki alltaf slóð samferðamanna. Vekja jafnvel upp öfund þeirra sem fyrir eru og lenda á kannt við þá sem fyrir eru fyrir þær sakir einar að vilja gera betur en meðal Jón.