Kvöldið
Eru einhverjir sem hafa hlaðið þessa kúlu í .222 sem væri til í að flýta aðeins fyrir mér. Er búinn að prófa N-130 og 22,2 það kom allt í lagi út.
Ef menn vilja deila með mér upplýsingum þá er ég með bjarni@pabbi.is
.222 og Hornady V-max 40 gn
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.

Bjarni Þór Haraldsson
Dalskógum 5b
700 Egilsstaðir
Dalskógum 5b
700 Egilsstaðir
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: .222 og Hornady V-max 40 gn
Sæll Bjarni.
Ég nota 24 gr. af N-133 á bakvið Nosler ballistik tip hjá mér í Valmet comby riffilhaglabyssuna hjá mér, hef líka notað það í Guðmund Gamla Sako 222 heilskeftan. Þessi hleðsla gefur 3370 fet á sekúndu samkvæmt töflu, það er að koma fantavel út hjá mér.
Ennnn....Bjarni menn hér koma menn fram undir fullu nafni....endilega reddaðu því með að skella fastri undirskrift undir kommentin hjá þér......plíííís! 
Ég nota 24 gr. af N-133 á bakvið Nosler ballistik tip hjá mér í Valmet comby riffilhaglabyssuna hjá mér, hef líka notað það í Guðmund Gamla Sako 222 heilskeftan. Þessi hleðsla gefur 3370 fet á sekúndu samkvæmt töflu, það er að koma fantavel út hjá mér.

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Sveinbjörn
- Posts: 251
- Joined: 17 Jun 2012 23:49
Re: .222 og Hornady V-max 40 gn
Sæll Bjarni og velkominn á spjallið.
Mitt uppáhalds púður í 222rem er IMR 4198 og það færðu í Veiðihorninu. Um árabil fékkst ekki IMR púður og notaði ég þá Norma 200. Norma púður hefur verið selt í Hlað og er hágæða vara.
Væntanlega er hagstæðasta kílóaverðið á VihtaVuori og hef ég einnig hlaðið úr því og virkar það alveg ljómandi vel. En mér finnst IMR4198 koma best út.
Svo eru einnig í boði áhugaverðar púður gerðir í Veiðihorninu sem ég hef ekki haft tíma í að kynna mér og geymi ég mér það þangað til betri tíma.
Svo tek ég undir með Sigga og hvet þig til að skrifa undir nafni og bætu við mynd svo að við vitum við hvern er verið að skrifast á við.

Bestu kveðjur
Sveinbjörn Guðmundsson
Sveinbjörn Guðmundsson
Re: .222 og Hornady V-max 40 gn
Sammála Sveinbirni, með IMR púðrið. Það kom alltaf mjög vel út í 222 Rem.
Ef það er fáanlegt hérlendis, þá myndi ég tvímælalaust nota 4198 í 222.
Og Sveinbjörn.,,, takk fyrir þægilegt viðmót í Ellingsen á laugardaginn.

Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
- Sveinbjörn
- Posts: 251
- Joined: 17 Jun 2012 23:49
Re: .222 og Hornady V-max 40 gn
Þú verður að koma oftar því að ég var ekki að fatta hver maðurinn var. En með því að klóra vel í kollinum þá rámar mig í fullvaxinn og velgerðan mann sem var á gallaskyrtu. Það hefur væntanlega verið þú?
Ég hef stundum verið að hvetja menn til að setja mynd af sér á spjallið en nú rennur það upp fyrir mér að það gangast lítið geri menn þau mistök að hafa jakka skipti.
Eins gott að ég sé ekki í framboði því að ég er einstaklega ómannglöggur. Það kveður svo rammt að því þessa daganna og lýsir sér best þannig að á hverju kvöldi horfi ég á kratarósina í krepptum hnefa. Fer með bænir og hugsa hlýlega til Jóns Baldvins.
En þegar ég vakan næsta dag þekki ég ekki sjálfan mig því að undanfarna fjóra morgna hef ég risið úr rekkju sem Sjálfsstæðismaður.
Til að bæta gráu ofan á svart fullyrðir Jói Byssusmiður það að það sé staðreynd og samhengi milli þess að menn hætti að skjóta hverfi löngun til kvenna.
Því er það ekki að ástæðulausu að ég hef aukið umtalsvert skotæfingar til að sanna karlmennsku mína gagnvart mínum vísa vinnufélaga.
Ekki hef ég orðið þess var að mín sé saknað úr bóli þó að ég sé að skjóta við ljós langt fram á nótt. Og er því fegnastur að fá að hvíla mig eftir þess háttar tarnir.
Fer þessi kenning Jóa Byssusmiðs að vekja upp ýmsar spurningar og spurning um það hvort að þetta sé ekki einhver misskilningur hjá honum.

Fer það ekki svolítið eftir því hvaða riffil er verið að nota og hverskonar skeyti koma úr honum?
Varðandi hnefann og rósina þá er alveg ljóst að þú átt að mæta snemma á kjörstað...
kv.

Sindri Karl Sigurðsson