Grúbbu spurning með 270 Win og 6,5x55

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
User avatar
skepnan
Skytta
Posts: 256
Joined: 01 Apr 2012 12:35

Re: Grúbbu spurning með 270 Win og 6,5x55

Unread post by skepnan »

Hvaða hvaða, bara kominn bekkjar-hvíldar (bench-rest) nákvæmni í Howuna og það með léttu hlaupi :lol: :lol: :o
Heldur þú að þetta dugi nokkuð á hreindýr :?:
Þetta er búin að vera löng fæðing hjá okkur en örfáum kúlupökkunum seinna er "alles klar" og hægt að fara að æfa sig fyrir hreindýrapróf :D
Þegar ég segi okkur, þá meina ég að Steini sá um að hlaða og skjóta og sjá um verklegu hlutina en ég sá um að rífast og skammast við hann í símanum og reka hann áfram :lol: :twisted: :lol: Svona sirkabát.......!! :roll:
Svo að ég vitna bara í Skálmöld og segi:
Sól kemur upp og sigur er unninn,
sit ég við brunninn
Brynhildi hjá og bíð þess er kemur.
Barði á þremur,
því er ég orðinn marktækur maður,
mjög er ég glaður.
Hvernig skal greitt og hver hefur valdið?
Hvert verður gjaldið?

Ja-það er spurningin, hvert verður gjaldið??? :shock:

Kveðja Keli
Þorkell D. Eiríksson
keli.skepnan@gmail.com
Fljótsdalur í Fljótshlíð
User avatar
Sveinbjörn
Posts: 251
Joined: 17 Jun 2012 23:49

Re: Grúbbu spurning með 270 Win og 6,5x55

Unread post by Sveinbjörn »

Er þetta ekki langsótt skýring með hækkun eða lækkun eftir hitastigi.

Ég geri það ævinlega þegar ég er að skjóta með gamla Sako sem Afi átti að gera nákvæmlega eins og Afi gerði.

Er alltaf í ullarnærfötum og grúppan er á vísum stað. :lol:
Bestu kveðjur
Sveinbjörn Guðmundsson
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Grúbbu spurning með 270 Win og 6,5x55

Unread post by Gisminn »

Ja þú segir að gúbban sé á vísum stað en er það góður staður ;) En án gríns þá segð þú mér þar sem ég stilli með sandpokum þannig að rifflarnir eru kjurrir og er með kross í kross og til að útiloka mig þegar ég finn hleðslur bara svo ég geti treyst þeim þegar á reynir og ég verð aðal skekkjan í dæminu.
Í báðum cal er sama púður N-160 það var núllað(athugað hvor núllstaða hefði breyst) milli calibera hlaðið í bæði skipti á sama tíma
svo hvaða hugmynd hefðir þú af þessari hækkun á annarsvegar 5 skot úr 270 og svo 5 úr 6,5x55 ?
Hugmyndir vel þegnar.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Grúbbu spurning með 270 Win og 6,5x55

Unread post by E.Har »

Flottar hleðslur vel skotið en það sem meira er um vert briljant tilvitnun í goð okkar aldar SÁLMÖLD :twisted: :twisted:
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
User avatar
Sveinbjörn
Posts: 251
Joined: 17 Jun 2012 23:49

Re: Grúbbu spurning með 270 Win og 6,5x55

Unread post by Sveinbjörn »

Já Steini.Nú er ég skák og mát :roll:
Bestu kveðjur
Sveinbjörn Guðmundsson
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Grúbbu spurning með 270 Win og 6,5x55

Unread post by Gisminn »

Jamm en ég er sáttur við hleðsluna þar sem þessi sleggja ætti að halda vel grúbbuni á 200 metrum
En 123 A-Maxinn í 6,5x55 er að hrekkja pínulítið svo ég ætla að byrja nánast út í rillum með x hleðslu og bakka svo um 0,5mm þar til ég losna við flyerinn og þar sem ég er með krapt twist þá grunar mig að ég eigi ekki að láta hana flýta sér alltof mikið.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
skepnan
Skytta
Posts: 256
Joined: 01 Apr 2012 12:35

Re: Grúbbu spurning með 270 Win og 6,5x55

Unread post by skepnan »

Jú þetta er hin ágætasta grúppa fyrir hið alræmda .270 kalíber :twisted:
Mynd0061.jpg
Loksins tókst mér að koma þessu úr símanum og yfir á tölvuna, átti auðvitað að vera löngu komið :oops:

Kveðja Keli
Þorkell D. Eiríksson
keli.skepnan@gmail.com
Fljótsdalur í Fljótshlíð
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Grúbbu spurning með 270 Win og 6,5x55

Unread post by E.Har »

Er það ekki baa fínt út úr veiðiriffli!
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Grúbbu spurning með 270 Win og 6,5x55

Unread post by gylfisig »

Þetta hefði nú einhvern tíma verið talið góð grúbba úr veiðiriffli.
Spurning hvort riffillinn skýtur alltaf svona vel, sömu hleðslunni.
Varðandi hækkun/lækkun á ákomu, eftir hitastigi, þá er það nú bara vel líklegt að ákoman hækki, samfara auknu hitastigi á skotstað. Þrýstingur eykst með hærra hitastigi. Max hleðsla að vetri til getur verið stórhættuleg að sumri, þar sem hitastig er mun hærra.... eða er kannski alltaf þessi skítakuldi á Blönduósi :D Amk er alltaf þessi bölvuð hafgola þegar maður rennir þarna í gegn, um hásumar :D
Varðandi það að nota magnum primer í 270, þá er það nú alveg óhætt.
270 win er langt hylki, sem þolir það alveg. Hins vegar er kannski ágætt að skoða hvort það er einhver munur á nákvæmni, milli standard primera, og svo magnum.
Óþarflega öflug hvellhetta getur komið niður á nákvæmni.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Grúbbu spurning með 270 Win og 6,5x55

Unread post by Gisminn »

Hehehe nei kuldin er ekki alltaf viðloðandi þessa paradís :-)
Og ég vona að riffillinn fari ekki að breyta sér strax en hann sýndi fallegustu grúbburnar í kaldara veðrinu en opnaði sig í meiri hita og hækkaði ákomuna en ekkert til að gera veður útaf en ég reyndi hann ekkert út á lengri færin en held að hann sé flottur þar.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Stebbi Sniper
Posts: 492
Joined: 09 Jun 2012 00:58
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Grúbbu spurning með 270 Win og 6,5x55

Unread post by Stebbi Sniper »

Þetta spjald hefur nú ekki verið hengt á hlöðuvegg, svo mikið er víst!!! :lol:
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Grúbbu spurning með 270 Win og 6,5x55

Unread post by Gisminn »

Það er sat og ég get alveg viðurkent að ég var orðin nett pirraður hvað riffillinn var ósamvinnuþýður en þegar ég áttaði mig á því að það var heill krísuvíkuvegur út í rillur fór ég með kúluna 0,44mm frá og byrjaði þar að pota og eins og fyrir töfra datt þessi inn eftir smá tilraunir á 3 skotum og var svona grúbba og þá var farið heim og hlaðin 4 skot og er myndin af þeim og ég ekki smá montinn og svo bara áður en ég sendi hann burtu þá tók ég eina 4 skota runu í viðbót og var sú grúbba 14mm enda mikið meiri hiti.
En afhverju 4 skot en ekki 5 jú ég tímdi því ekki því þessar kúlur og púður fást ekki í landinu og ekki vitað hvenær þær koma aftur og drengurinn verður að hafa nógu mörg skot til að geta æft sig pínu og tekið hreindýraprófið og fellt dýr :-)
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Post Reply