Sælir.
Ég ætla að byrja á að spurja hvaða tegund af riffli er verið að tala um og hvaða nr. af sierra kúlu ?
Þetta er mjög líklega of löng kúlusetning fyrst það sér á kúlunni.
Þú hefur semsagt sennilega ekki hlaðið með þessari 100 graina kúlu áður ??
Ég hef það fyrir reglu þegar ég prófa nýja kúlutegund að kanna fyrst hvar hún snertir rillurnar í mínum riffli og auðvitað skrifa það niður í bók.
Það getur verið mjög varasamt að taka einhverjar tölur um kúlusetningu af netinu og nota beint fyrir 243win. Það prófaði það einn vinur okkar hér um daginn
Ég hef orðið var við það að það er mjög misjafn hvað er langt fram í rillur á 243win
Td. veit ég að Sierra gameking 100graina #1560, er að snerta rillur með COAL 67,05mm í tveimur Howa, einum Wheterby og einum Brno, en svo veit ég um Winchester og Sako sem þessi sama kúla snertir ekki rillur fyrr en í 68,25mm.
Þetta er mismunur uppá 1,2 mm sem væri gaman að fá að heyra útskíringu á.
Getur verið að þetta sé munurinn á short action og long action ?
Sierra gefur upp coal 2.650" = 67,31mm fyrir þessa #1560 kúlu og einnig #1540, en það er bara svo langt frá því að það gangi upp í Howa 243win hjá mér. Einhverstaðar fann ég líka tölur með coal 2,710" !
http://accurateshooter.net/Downloads/sierra243win.pdf
Sveinbjörn V. Jóhannsson