Hreindýr sækja í auknum mæli norður?

Allt sem viðkemur hreindýrum
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Hreindýr sækja í auknum mæli norður?

Unread post by Veiðimeistarinn »

Það var í fréttum á RUV að hreindýr væru í auknum mæli að sækja norðar á veiðisvæði 1, norður í
Þórshafnar og Svalbarðshrepp, vegna fjölgunar.

http://www.ruv.is/sarpurinn/hadegisfret ... and-eystra

Það getur verið tvíbent að tala um að hreindýrunum sé að fjölga og vegna þess séu þau að sækja norður, samkvæmt nýlegum talningum er stofninn ekki að stækka.
Málið er að dýrunum er að fækka á veiðisvæði 2 og hluti af þeim fór norður á svæði 1, hinn hlutinn fór austur á svæði 6 og svæði 7.
Það er ekkert að því að fjöldi hreindýra skuli aukast á svæði 1 og færi sig norðar.
En stöldrum nú aðeins við, þetta hefur gerst áður og gerist á um það bil 10 til 15 ára fresti að dýrin færa sig milli svæða, það þekkjum við sem höfum lifað í sambýli við dýrin gegn um árin hvað sem öllum rannsóknum líður.
Verði dýrunum fjölgað þarna norðurfrá koma þau bara fyrr til baka aftur vegna þess að þau virðast klára einhvern kjörgróður eins og þau virðast hafa gert á Fljótsdalsheiðinni áður en þau fóru norður og austur nú á allra síðustu árum.
Það vantar allar rannsóknir hvað þetta varðar, rannsóknirnar í dag miða allar að því hvert dýrin fara en ekki af hverju þau fóru.
Upp úr 1970 fjölgaði hreindyrunum niður á fjörðum á svæðum 3, suður alla firði á svæði 9 og reyndar norður allt svæði 1.
Það var ekki vegna þess að þeim væri fjölgað þar kerfisbundið, heldur vegna þess að þeim fjölgaði of mikið á svæðum 2 og 1 og þau urðu að leita annað og á næstu 15 árum fjölgaði þeim líka á svæðum 2 og 1 svo það var ekki pláss fyrir þau að koma aftur,nema dýrin norðast af svæði 1 en það er gróðursnauðasta svæðið af þessum svæðum öllum svo þar kláruðu þau kjörgróðurinn tiltölulega fljótt.
Til þess að gera fjölgunina þarna fyrir norðan varanlega þar að fjölga dýrunum til frambúðar.
Attachments
Heindýr á Fagradal mars 2012
Heindýr á Fagradal mars 2012
Last edited by Veiðimeistarinn on 09 Apr 2012 09:42, edited 1 time in total.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Hreindýr sækja í auknum mæli norður?

Unread post by maggragg »

Þetta er áhugavert. Það er því um að ræða eðlilega flutninga dýranna vegna fæðuleitar frekar en að stofninn sé að stækka. Hvað gæti stofnin dreift mikið úr sér út frá austurlandi. Hvar eru náttúrleg landamæri þar sem stofnin kemst ekki yfir? Ég þekki nú ekki mikið til en er af suðurlandinu.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Benni
Posts: 122
Joined: 16 Feb 2012 09:33
Fullt nafn: Benjamín Þorsteinsson
Location: Húsavík

Re: Hreindýr sækja í auknum mæli norður?

Unread post by Benni »

Væri gaman að sjá hvert þau myndu dreyfa sér ef þau fengju að ferðast óáreitt.
Hef heirt að það hafi verið dýr vestan við jökulsá á fjöllum og niður í Kelduhverfinu í Axarfyrði fyrir löngu síðan.
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Hreindýr sækja í auknum mæli norður?

Unread post by Veiðimeistarinn »

Það eru svo sem engin náttúrleg landamæri held ég. Dýrin fara þvers og kruss yfir Jókulsá á Dal, Lagarfljót og Jökulsá í Fljótsdal og hafa farið suður yfir Jökulsá í Lóni og Hornarfjarðarfljót.
Samt sem áður hafa þau ekki farið norður fyrir Jökulsá á Fjöllum svo nokkru nemi, nema eitt og eitt flökkudýr og ekki suður fyrir Jókulsá á Breiðamerkursandi.
Þessar ár ættu ekki að vera náttúruleg landamæri miðað við hin vötnin sem þau fara óhindrað yfir, svo það hlítur að vera eitthvað annað sem veldur.
Náttúrulegu landamærin hljóta að liggja í gróðurfarinu, nú eða veðurfarinu en veðurfarið norðan Vatnajökuls er ónmdeilanlega þurrasta veðurfar á Íslandi, jökullinn tekur svo mikla úrkomu til sín áður en hún nær yfir.
Dýrin hafa fengið að ferðast óáreitt um landið hingað til en útbreiðslan ekki náð lengra yfir en um Austurland þrátt fyrir það.
Jú það voru hreindyr norðan Jökulsár á Fjóllum, enduðu niður í Kelduhverfi, Ásbyrgi og Öxarfirði, fram um seinna stríð en þau versluðust upp og þau síðustu fóru sennilega austur fyrir Jökulsá á Fjöllum og sameinuðust hjörðinni hér eystra upp úr 1940 og björguðu sennilega stofninum hér vegna þess að hann var orðinn svo skildleikaræktaður en með þessari blöndun kom svokallaður blendingsþróttur inn í stofninn og þau hafa plumað sig vel síðan.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Hreindýr sækja í auknum mæli norður?

Unread post by gylfisig »

Sælir allir.
Já, það væri nú gaman ef maður ætti nú eftir að fara Í hreindýratúr austur á Langanes,á bernskustöðvarnar :D
Annars sagði mér bóndi fyrir nokkrum árum síðan, að talsvert stór hópur hreindýra væri búinn að halda til, suður í Heljardal, sem er langt suður á afréttum Þistilfirðinga. Jafnvel væri sú hjörð búin að vera þar í nokkra áratugi.
Ég man eftir því sem unglingur að nokkur hreindýr komu alveg norður á Brekknaheiði, sem er millum Þórshafnar og Bakkafjarðar.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
kúla
Posts: 32
Joined: 11 Mar 2012 15:45
Location: Vopnafirði

Re: Hreindýr sækja í auknum mæli norður?

Unread post by kúla »

Sælir í fyrra ágúst sept voru um 500 til 600 dýrahjörð í heljardalnum
aðalega beljur þetta svæði er mjög erfitt yfirferða og leitótt
Kveðja
Sveinn A Sveinsson
Vopnafirði
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Hreindýr sækja í auknum mæli norður?

Unread post by maggragg »

http://www.visir.is/raett-um-hvort-leyf ... 2120419776

Dýrin eru semsagt skotin ef þau fara út fyrir það svæði sem yfirvöld vilja halda þeim þannig að það eru engar náttúrulegar girðingar aðrar en maðurinn. Spurning hvaða ákvörðun verður tekin um þetta í kvöld.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Hreindýr sækja í auknum mæli norður?

Unread post by Veiðimeistarinn »

Það hefur ekkert hreindýr enn verið skotið vegna þess að þau hafi farið út fyrir skilgreint svæði hreindýra.
Tarfarnir tveir sem sáust við Vatnsfell voru ekki skotnir, gerður var út leiðangur til að fella þá en það var ekki fyrr en undir myrkur sem skyttan fann þá og beið birtu til að fella þá, en þeir sáust aldrei aftur. Þeir hafa sennilega farið austur aftur og sameinast hjörðinni.
Þetta var um fengitímann þegar tarfar voru of margir og það var mikið af törfum að þvælast um einn og upp í þrír saman eftir atvikum, þessir hafa sennilega villst þangað suður í leit að kúm, en áttað sig á villu sinni, enda engar kýr fundið og haskað sér til baka.
Sama haust sást tarfur á Mývatnsöræfum í smalamennsku um fengitímann, það var búið að semja við mig um að fara og skjóta hann ef hann sæist aftur í næstu leitum, en hann sást aldrei aftur. Sennilega hefur hann líka farið til baka þegar hann fann engar kýr þarna, tarfarnir þvælast um óravegu um fengitímann finni þeir ekki kýr.
Eins og ég hef áður sagt held ég að hreindýrin verði aldrei til frambúðar í einhverjum mæli þarna fyrir norðan, kannski einhver örfá til þess að gera, þau koma aftur þegar þau eru búin með kjörgróðurinn á innan við tíu árum, það hafa þau alltaf gert, eins og Skarphéðinn sagði, hafa þau verið þarna áður.
Attachments
Myndalegur flökkutarfur um fengitimann
Myndalegur flökkutarfur um fengitimann
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Post Reply