Veiði dagsins 2013

Allt sem viðkemur hreindýrum
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by sindrisig »

Nei, þessu er ekki alveg saman að jafna.

Ég fékk ekki nóg um helgina með þér þannig að ég skrapp rétt fyrir kvöldmat í einn "taktu" túr. Sóttum 3 tarfa á Barðsnesið með bát, að auki fóru 2 á pikköpp palli. Var kominn heim í kvöldmat um miðnættið, svolítið blautur eftir seinni lendinguna en það er gott til þess að vita að Sæsi var enn blautari en ég. Hann tók svo vel á móti mér á tuðrunni að hún, með góðri hjálp úthafsins, ákvað að fara yfir hann í fjörunni. En þetta fór allt vel enda menn ýmsu vanir.
Sindri Karl Sigurðsson
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by gylfisig »

Eg fór aðra tarfaferð á sv. 7 með kunningja mínum, í gær.
Leiðsögumaður, Alli Bróa, ásamt meistara Val.
Við lögðum eldsnemma af stað áleiðis á Brattháls. Fundum fljótlega væna tarfa ekki langt frá Bótahnjúk. Dyrin voru á töluverðri ferð, og við komumst ekki strax í færi. Veður ansi kuldalegt. Hvass af norðan, og slydduhraglandi. Við komust samt nokkuð fljótt í sæmilegt færi. Vænn tarfur var valinn, og hann féll á um 250 . færi í miklum hliðarvindi.
Riffill : Jalonen, cal 6,5x284
Kúla: Nosler Bt. 120 grs
Við fórum auðvitað með tarfinn niður í Skriðustekk, til Höskuldar sem sér um alla verkun.
Dilkurinn vóg 101 kg.
Og til sannindamerkis um að tarfur hefði verið skotinn, hengdi Höskuldur sönnunargögn þar af lútandi á Garp minn. :D
Attachments
06082013535.jpg
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by Veiðimeistarinn »

Jæja ég fór til veiða í gær, langur dagur.
Lagt upp kl. 8 frá Vaðbrekku, farið rakleitt norður í Bakkfjörð og upp frá Miðfjarðarnesseli inn í Miðfjarðardrög, komnir þangað um hádegi.
Dýrin fundust innan við Kvíslamót gengið frá skálanum í Kvílamótum 4 kílómetra inneftir og Vignir Stefánsson felldi kú klukkan 19:45. Við vorum heppnir menn sem voru í samfloti við okkur voru með sexhjól svo hægt var að taka kúna á hjóli út að bíl, annars hefðum við þurft að bera hana.
Kýrin var geld tveggja vetra 45 kíló. Skotin á 110 metra færi með Remington 700 cal. 243 með 100 gr. Sierra gameking kúlu.
Vorum komnir aftur heim í Vaðbrekku kl. 4 í nótt.
Attachments
Vignir Stefánsson með væna hreinkú sem hann felldi í Kvíslamótum.  Ytri og Syðri Hágangar í baksýn.
Vignir Stefánsson með væna hreinkú sem hann felldi í Kvíslamótum. Ytri og Syðri Hágangar í baksýn.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by sindrisig »

Þetta er helvíti langur spotti, hve langt var ekið?
Sindri Karl Sigurðsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by Veiðimeistarinn »

Mig minnir að það hafi verið 340 kílómetrar fram og til baka frá Vaðbrekku, þar af 70 kílómetrar á fjallinu.
Vel á minnst veiðimaðurinn var á Suzuki Vitara jeppa og komst klakklaust fram og til baka.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
gkristjansson
Skytta
Posts: 250
Joined: 02 May 2012 14:21
Location: Ungverjaland

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by gkristjansson »

Bara svona að gamni, hér er samantekt yfir hvaða caliber menn eru að nota á hreindýr:
Caliber notað á hreindýr
Caliber notað á hreindýr
Hreindyr_caliber.JPG (22.21 KiB) Viewed 6508 times
Mér sýnist að 6.5 sé annsi vinsælt....
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by Veiðimeistarinn »

Veiði dagsins í gær var engin.
Farið inn Selárdal í Vopnafirðiá bíl inn að Fremri Hamri, þaðan gengið upp í Kistufell þar sem Ólafur Gauti var búinn að finna dýr (toppgæd enda nágranni minn og drakk í sig hreindýraveiðar með móðurmjólkinni)
Þeir rett náðu að skjóta það var komin rigning og svo lagðist þokan yfir og dýrin hurfu inn í þokuna eftir skotið, ég fylgdi þeim eftir út undir Syðri Hágang að Almenningsárvötnum, rakti slóðina og sá þau nokkrum sinnum, svona rakst á þau í þokunni en þau urðu alltaf vör við mig ég var alltaf kominn svo nálægt þegar ég sá þau síðan var svo mikil rigning að ekki var hægt að skjóta bæði sáust dýrin ógreinilega og það rigndi svo mikið á kíknn að ekki sæast í gegn um hann svo ég labbaði þvert niður í Selardal niður með Almenningsá ytri og kom í bílinn hundblautur inn að beini á móts við Lýtingsstaði eftir nær 28 kílómetra labb og það var eiginlega allt búið nema góða skapið :D
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
pgests
Posts: 17
Joined: 25 Aug 2012 07:55

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by pgests »

Nú er kominn 17. ágúst og gaman væri að fá fleiri veiðisögur. Jafnvel danskar :D .
Pálmi Gestsson
User avatar
Stebbi Sniper
Posts: 492
Joined: 09 Jun 2012 00:58
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by Stebbi Sniper »

Sæll Pálmi

Vantar ekki söguna þína hérna inn ennþá? Það er örugglega áhugaverð saga! Eru þið félagar ekki búnir að skoða hverja einustu þúfu á svæði 1 undanfarna viku? Örugglega margt sem hefur drifið á dagna í þessum túr!
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
User avatar
pgests
Posts: 17
Joined: 25 Aug 2012 07:55

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by pgests »

Jú það dreif ýmislegt á daga okkar þar eystra. Ætli sé ekki best að láta sagnameistarann (SA) um það - nú eða þá Aðalstein Hákonarson. Það má segja að svæði 1 austan og sunnan Grímsstaða og Möðrudals alveg niður í fjörur á Bakkaflóa sé að verða kunnuglegt.
Pálmi Gestsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by Veiðimeistarinn »

Já það hefur ýmislagt á dagana drifið síðan ég skrifaði hérna inn seinast ennnn....ekki mikil veiði!
Þann 10. fór ég með tvo veiðimenn á svæði 1, þann sem ekki veiddi í gær og Sigurgeir, labbaði 16,8 km. upp úr Seláredal við Innri Almenningsá upp í Kistufell og upp á það, sáum dýr undir Kistufellinu sem strikuðu sig upp á há fellið og ég á eftir en þau voru horfin sýnum þegar ég kom upp, kíkt í allar áttir, ekkert sást, síðan niður aftur.
Þann 11. fór ég aftur með Sigurgeir og þá var fyrsti dagur Pálma Gests, við ókum sem leið lá norður í Bakkafjörð, inn í Miðfjarðardrög, Kverkártungu, Kvíslamót og ég skrapp langleiðina inn á Barðmel en ekkert sást og ekið heim aftur, tæpir 400 kílómetrar.
Þann 12. fór ég óg tók á móti dönskum kokki og veiðimanni með tökuliði sem var að taka upp sjónvarpsþátt, ásamt tveimur íslenskum veiðimönnum og ók sem leið lá inn á Miðfjarðarheiði þar sem gist var í gangnakofa.
http://www.dr.dk/tv/program/nak-aed https://www.facebook.com/nakogaed
Aðalsteinn frændi minn Hákonarson tók Pálma og Sigurgeir að sér og þeir fóru út í Vopnafjörð upp frá Ytri Hlíð, inn í Aðalból, í Mælifellsheiðina, norður á Haug og inn á Biskupsháls ekkert sást.
Þann 13. var gerður út mikill leiðangur í Miðfjarðardrög og víðar, Aðalsteinn Hákonarson fór með Pálma og Sigurgeir inn frá Miðfjarðarheiðarkofa og gengu þeir þaðan inn í Syðri Hágang og norður í Kvíslarmót þar sem þeir urðu mér samferða inn á Barðmel, Jón Hávarður fór inn Asturheiði og Vesturheiði inn í Hafralón og austur á Barðmel þar sem öll hersingin hittist, ekkert sást og heim við svo búið nema ég með danina gisti aftur í gangnakofanum.
Þann 14. var frí hjá Pálma og Sigurgeir en ég snuddaði með danina í Miðfjarðardrögunum, ekkert nema þrjóskan enn ekkert fannst samt.
Þann 15 skilaði ég dönunum af mér veiðilausum á Egilsstaðaflugvöll en Aðalsteinn fór með Pálma sem nú var á 5ta degi og Sigurgeir sem var á 6tta degi norður í Selárbotna þar sem þeir fundu dýr og kláruðu að veiða um hádegisbilið.
Það voru lukkulegir veiðimenn Sigurgeir og Pálmi sem veiddu þarna í góðu veðri í Selárbornunum að ég tali nú ekki um rígmontinn leiðsögumanninn.
Attachments
Sigurgeir með sína veiði, steingelda kú.
Sigurgeir með sína veiði, steingelda kú.
palmi.gests2.jpg (185.85 KiB) Viewed 6332 times
Pálmi Gestsson og Aðalsteinn Hákonarson við tarfinn sem viktaði 108 kíló með 95 mm fitu á mölum.
Pálmi Gestsson og Aðalsteinn Hákonarson við tarfinn sem viktaði 108 kíló með 95 mm fitu á mölum.
Hérna er listræn mynd eftir Pálma, hann er nú einu sinni listamaður!
Hérna er listræn mynd eftir Pálma, hann er nú einu sinni listamaður!
palmi.gests3.jpg (218.15 KiB) Viewed 6341 times
Last edited by Veiðimeistarinn on 17 Aug 2013 23:46, edited 2 times in total.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by Veiðimeistarinn »

Þann 16. ágúst fór ég með Bjarna Júlíusson á svæði 2. Fundum strax dýr undir Bjálfafellinu innan við Snæfell, eftir að hafa skoðað 450 dýra hóp á Eyjunum á móts við Hálskofann og hann skaut 40 kg. kú niður undir Ytri Begkvísl.
Sonur hans Sigurjón snaraði henni á bakið með haus og hala og bar upp í bíl sem var við krossinn alls 3,5 km. heimkomin viktaði kúin eins og hann bar hana 55 kg með öllu.
Veiðiriffill Bjarna var Brno CZ 550 cal 308 :cry: með 150 gr. ballistik tip kúlu.
Attachments
Bjarni Júlíusson kampakátur kúna.
Bjarni Júlíusson kampakátur kúna.
Sigurjóni Bjarnasyni varð ekki skotaskuld úr að skella kúnni á bakið og skondra með hana í bílinn.
Sigurjóni Bjarnasyni varð ekki skotaskuld úr að skella kúnni á bakið og skondra með hana í bílinn.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
pgests
Posts: 17
Joined: 25 Aug 2012 07:55

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by pgests »

Þetta er glæsilegt! Ég komst að því í þessari ferð að hreindýraveiðar eru sýnd veiði en ekki gefin! Komst að því endanlega að þetta er ekkert aktu-taktu svæði ( vissi það nú reyndar af fyrri reynslu) í sumum tilfellum reyndar aktu - aktu því þeir voru einhver þúsund kílómetrarnir sem við ókum í þessari miklu leit að dýrunum að ég tali nú ekki um þetta laaaanga rugg inn heiðarnar, sérstaklega þó Miðfjarðarheiðina! Lærði heilmikið í um hálendi norð-austurlands í þessari ferð svo þetta var ekki allt til einskis, langt frá því. Þegar veiðiferð endar svona vel eins og þessi eftir tölvuvert erfiði er árangurinn enn sætari en ella. Og ekki er manni nú í kot vísað þegar Vaðbrekka og gestgjafar eru annar vegar! Átti skemmtilegar stundir milli stríða með höfðingjanum í Vaðbrekku, Danna, og að sjálfsögðu með snillingnum vini mínum, veiðimeistara allra tíma, Sigurði Aðalsteins sjálfum.
Kærar þakkir fyrir eftirminnilega ferð og skemmtilega vist (eins og ævinlega) á Vaðbrekku.
Pálmi Gestsson
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by gylfisig »

Læk á þetta :D
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by Spíri »

Þetta er veiðiskapur, það sannast þarna að þolinmæðin er mjög öflugt vopn á veiðum. Til hamingju veiðimenn með flott dýr :D
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by sindrisig »

Voru ekki merktir kálfar á svæði eitt, með gps ól? Væri nú nær að nota tæknina og hætta þessu helvítis brölti um alla móa og mela og kíkja á kvikindin í tölvunni hans Jóa....

kv.
Sindri Karl Sigurðsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by Veiðimeistarinn »

Eftirtekjan hefur verið rýr hjá mér seinustu daga nema 18. ágúst þá veiddu Guðfinnur Kristjánsson og Laszlo Szebenyi sinn tarfinn hvor hjá mér uppi á Dimmafjallgarði við Dimmagil.
Tarfur Guðfinns var 90 kg en með sérstök horn, tarfur Laszlo var 107 kg.
Báðir notuðu þeir veiðiriffil sem þeir höfðu að láni frá Jóa byssusmið Sauer 202 cal 2506 með 100 gr Barns TSX kúlu og færi voru 160 metrar hjá Guðfinni og 80 metrar hjá Laszlo.
Síðan var ég 19. á svæði 1 með tarf fundum dýr austan við Hauginn löbbuðum 18 km á eftir þeim og náðum engu.
Aðalsteinn Hákonarson https://www.facebook.com/Hreindyraveidar tók af mér veiðimanninn daginn eftir og þá veiddu þeir við Skarðsána í Möðrudalnum.
Ég leitaði hins vegar að tarfi á svæði 2 þann dag fann engan nógu stóran gengum þó aðeins innanum á Vesturöræfunum þar var einn tveggja vetra, seyyum hann á hefðum kannski betur skotið hann.
20. og 21. var ég aftur á svæði 2 nú með 3 tarfa, fórum austur á Múla fundum 4 tarfa og nokkrar kýr 20. við Ytri Sauðá heitna (búið að stífla hana og veita henni norður til Grjótár) týndum þeim dýrum ú roki og rigningu inn með ánni.
Aftur þar í dag sá dýrin á Þjófagilsfóanum sem hafa verið á Eyjunum undanfarna daga þáu eru enn á friðlandinu en koma kannski yfir á Vesturöræfi á morgun eða hinn þar er nóg af törfum, fór um allt innstykki Múla og sá ekki klauf þar.
Attachments
Þeir félagar Laszlo og Guðfinnur skríða af stað til að skoða dýrin.
Þeir félagar Laszlo og Guðfinnur skríða af stað til að skoða dýrin.
Guðfinnur með sérstaklega hornprúðan tarf, efri krónan er mjög sérstök svona spaðalöguð.
Guðfinnur með sérstaklega hornprúðan tarf, efri krónan er mjög sérstök svona spaðalöguð.
Laszlo með tarfinn sinn ásamt börnum sínum Lacko og Beu.
Laszlo með tarfinn sinn ásamt börnum sínum Lacko og Beu.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
gkristjansson
Skytta
Posts: 250
Joined: 02 May 2012 14:21
Location: Ungverjaland

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by gkristjansson »

Vill bara bæta því við að þetta var meiriháttar dagur með meistaranum og að við félagarnir, ég og Laszlo, erum honum mjög þakklátir fyrir daginn og veiðina. Ég er þess fullviss að bæði við félagarnir og börnin hans Laszlo gleymum þessu seint. Dýr fundust ekki fyrr en undir kvöldmat og þá einungis vegna þrautseigju Sigurðar!

Síðan þegar að við vorum komnir í dýrin þá tók okkur ekki nema rétt rúman hálftímann að fella báða tarfana en vorum reyndar ekki komnir í koju fyrr en hálf fjögur um nóttina sem svona rétt sýnir hversu langt þurfti að sækja til dýranna ;)

Nú er bara að bíða eftir næstu hreindýra veiði.......
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson
User avatar
veiðifrúin
Posts: 17
Joined: 30 Oct 2012 20:15

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by veiðifrúin »

Þann 20 ág. var vaknað kl. 4.30 og gerðum við okkur klár og brunuðum svo inn í Hallormsstað og náðum þar í gædinn okkar Einar Axelson .Hengdum kerruna hans aftaní bílinn okkar og svo var sexhjólinu ekið upp á kerruna.
Einar ákvað strax að fara inn að Snæfelli og fórum við þangað, og fórum svo upp á Langhnjúk að athugað með dýr, eftir smástund spyr Einar okkur hvort við sjáum steina þarna úti á sléttunni eiginlega við Krossfiskavatnið jú við sáum eitthvað þar og var hann ákveðinn í að þetta væru dýr. Ákváðum samt að fara upp á Bjálfa og athuga með útsýni þar, en þá var svo mikið rokið að við sáum ekkert þar.
Næst ætluðum við að fara gamlan slóða niður að skálanum við Sauðána en þar var búið að setja kerru fyrir og tikynna lokun tímabundið vegna bleitu sem var í vor, löngu þornuð.

Forðuðum okkur í snarhasti úr þessum Þjóðgarði og fórum upp að Hálsalóni og ókum svo eftir vegi Landsvirkjunar, sáum dýrin mjög fljótlega aftur og fórum að reyna að nálgast þau, en þau lágu öll nema ein belja sem var á útkíkkinu svo lagði hún sig líka svo við skriðum af stað og fórum svona 2 kílómetra og vorum komin í þokkalegt færi svona frá 170 til 200 metra, það var hífandi rok og -1 í frosti.
Við biðum þarna í ca 1 til 2 tíma og stóð eitt og eitt dýr upp öðru hvoru, en svo reis upp belja sem mér leist vel á og sendi ég henni eitt skot og féll hún steindauð til jarðar, þessi hópur sem hún var í hefur verið svona 140-160 dýr, Svo förum við að gera að dýrinu og koma því niður í bíl, sjáum við þá ekki svaka hóp með 4-600 dýra sem stefndi bara á Hálsalónið og þegar við vorum að fara komu tveir jeppar með fullt af mönnum og ætluðu þeir að reyna að ná í sín dýr þar. Allt búið hjá okkur um hádegi og stefnan tekinnt til Hjartar í Skóghlíð :roll:

Sako 308
Sierra gameking 150 gr
WV 150 48 gr
færi 200 m

http://mariagunnars.123.is/pictures/
Attachments
P1010783 2.JPG
Last edited by veiðifrúin on 25 Aug 2013 00:44, edited 1 time in total.
Kveðja
María B Gunnarsdóttir
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by Veiðimeistarinn »

Jæja, loksins veiddi ég á skaplegum tíma í dag á svæði 1 eftir veiðilausan dag í gær á sama svæði.
Fann tarfa norðan við Skjöldólfsstaðahnjúkinn í morgun og var búinn að fella 3 tarfa fyrir hádegi 2 við Sandhæðina norðan við Hnjúkinn og þann þriðja norður undir Skjaldklofa við Gilsána.
Gunnar Jóhann Gunnarsson og Kristmundur Skarphéðinsson felldu við Hnjúkinn og Sigurður Hörður Kristjánsson norðan við Gilsána.
Gunnar felldi 105 kg. tarf veiðiriffill hans Sako 85 cal. 243 með Norma Orix 100 gr. kúlu og færið 70 metrar.
Kristmundur felldi annan 105 kg. tarf strax í kjölfarið með Carl Gustaf 6,5x55 metrifflinum, hann var með 123 gr Hornady A-Max kúlu og færið 100 metrar, nánast fríhendis en með stuðningi þó af stórum steini og tarfurinn á nokkurri ferð, listaskot hreint lungnaskot.
Sigurður Hörður náði svo sínum tarfi sem viktaði 82 kg. norðan við Gilsána 270 metra færi Howa 1500 Axom cal. 270 win. með 130 gr. Hornady SST.
Attachments
Gunnar Jóhann Gunnarsson ásamt konu sinni Hafdísi Svövu Níelsdóttir með veiði dagsins.
Gunnar Jóhann Gunnarsson ásamt konu sinni Hafdísi Svövu Níelsdóttir með veiði dagsins.
Tarfurinn hans Kristmundar var sérstakur á hann vantaði hluta af báðum hornunum, Carl Gustafinn hans á baki tarfsins.
Tarfurinn hans Kristmundar var sérstakur á hann vantaði hluta af báðum hornunum, Carl Gustafinn hans á baki tarfsins.
Sigurður Hörður Kristjánsson við tarfinn sinn ásamt Kristmundi Skarphéðinssyni.
Sigurður Hörður Kristjánsson við tarfinn sinn ásamt Kristmundi Skarphéðinssyni.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Post Reply