Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
sofnaði líka á verðinum, á 40 skot hlaðin, en ekkert MRP næstu tvo mánuðina og óvíst með vihtavuori - þarf maður að fara prófa sig áfram með ameríska púðrið? verður ekki bara það sama með það? Hlaðmenn mæltu með því bara að kaupa hlaðin skot en þá er sjálfhætt af fjárhagsástæðum.
Ég á fyrningar sem gæti bæði innihaldið N-560 og N-165, gæti látið þig hafa ef þú getur nálgast það á höfuðborgarsvæðinu. Skal kíkja niður og ath hvað það er mikið, gæti alveg dugað þér eitthvað!
Fór niður og viktaði þetta sem ég á og útkoman er 440 grömm af N-560 og mjög lítið eða 50 grömm af N-165, enda var það púðrið sem ég notaði í þetta cal á meðan ég átti riffil í því.
Í dag á ég bara 6,5 x 47 og hef því ekkert við 560 púðrið að gera í bili svo þú mátt fá það á kotnaðarverði ef þú vilt.
Þetta ætti að duga þér í eitthvað meira en 100 skot hugsa ég.